blaðið - 18.05.2006, Qupperneq 2
2IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 blaöið
10
15
20
13
17
09
11
17
29
28
12
14
20
10
19
14
24
07
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn ()02 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
O HeiðskírtO Léttskýjað€*A. Skýjað Alskýjaðifvr-11 Rigning, lítilsháttar^^Rigning^íí^i-Súld Snjókoma£?< /• Slydda Snjóél
Skúr
ii'JJ'Jjlr*
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Paris
Stokkhólmur
Vin
Þórshöfn
Dýrastaíbúðar-
hús sögunnar
Fleiri en íslendingar geta nú
eytt óheyrilegum peningum í
fasteignakaup. I suðurhluta Kali-
forníuríkis í Bandaríkjunum
er til sölu íbúðarhús og er sett
á það 6 milljarðar íslenskra
króna. Finnist kaupandi sem
er tilbúinn að greiða uppsett
verð verður það dýrasta íbúðar-
húsnæði sögunnar, samkvæmt
samtökum bandarískra fast-
eignasala. Húsið er þrjú þúsund
fermetrar að stærð og í því eru
flest þau þægindi sem auðmenn
sækjast eftir, svo sem vatna-
skemmtigarður og íþróttasalur.
Húsið er við sjóinn og frá því er
stutt í alla þjónustu.
Húsið er í eigu Frank Pritt, sem
stofnaði á sínum tíma hugbúnað-
arfyrirtækið Attachmate Corp.
"ÍSLANDS MÁLNING
Sérhönnuð mátning fyrir íslenskar aðstæður.
Sætúni 4/Sími 5171500
Verðbólgan
í hámarki?
Tólf mánaða verðbólga mun
lækka lítillega, úr 7,6% í 7,5%,
gangi spá greiningardeildar
Landsbankans eftir. Þetta
kemur fram í Vegvísi bankans.
Bankinn telur líklegt að mesti
verðbólgukúfurinn sé kominn
fram og að toppnum hafi hugs-
anlega verið náð.
í maímánuði hækkaði verð
á bílum um 5% og innfluttri
matvöru um 0,8%. Líklegt er
að einhverra áhrifa af veikingu
krónunnar muni gæta áfram í
júni. Lækkun eldsneytisverðs
nemur um 1,5% það sem af er
mánuðinum, en vegna mikilla
sveiflna tekur bankinn ekki til-
lit til þeirra breytinga í spánni.
Reiknað er með einhverri
hækkun á matvöru í júnímán-
uði. Bankinn telur óvissu spár-
innar vera jafnt til hækkunar
og lækkunar, en stærstu óvissu-
þættina vera gengisbreyting
krónunnar, þróun olíuverðs og
fasteignaverð.
Ertu að fá kvef?
j* Zhena's Gypsy Tea
gæti hjálpað
j 2 ;
Lemon Jasmine, grænt
■í'j* te með lemon myrtle
Sölustaðir
Bakarameistarinn, Bernhöfts-bakarí,
Breiðholtsbakarí, Fjarðarkaup, Gjafir
Jarðar, Hjá Jóa Fel, Kaffi Hljomalind,
Kaffi Berg, La Vida, Maður Lifandi,
Melabúðin, Ostabúðin, Yggdrasill,
Kaffi Rós á Akureyri.
Englatár - Listhúsinu - 551 8686
/^ Innimálning Gljástig 3,7,20
/ Verð frá kr. 298 pr.ltr.
/ Gæða málning á frábæru verði
/ Útimálning
/ Viðarvörn
/ Lakkmálning
/ Þakmálning
/ Gólfmálning
/ Gluggamálning
Haldið upp á þjóðhátíðardag
Norðmenn héldu upp á þjóðhátíðardag sinn í gær með pompi og prakt. Norðmenn búsettir hér á landi létu ekki sitt eftir liggja og
fjölmenntu f skrúðgöngu frá Norræna húsinu niður í miðbæ Reykjavíkur. Þessi ungi snáði hafði komið sér vel fyrir í vagni skreyttum
norskum fánum.
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. IS0 9001 gæðastaöli.
Segir sjálfstæðismenn stunda
pólitískan hráskinnaleik
Árni Þór Sigurðsson segir fullyrðingar um að borgarmeirihluti sé í stríði við einkabílinn
fráleitar. R-listinn vilji hinsvegar leggja áherslu á umhverfisvæna samgöngumáta.
Borgarstjórn er ekki að lýsa yfir
stríði á hendur einkabílnum í nýrri
samgöngustefnu Reykjavíkurborgar
að sögn Árna Þórs Sigurðssonar,
borgarfulltrúa. Hann segir niark-
mið stefnunnar vera m.a. að skapa
jafnræði milli ólíkra samgöngumáta
en að einkabíllinn verði eftir sem
áður ráðandi ferðamáti. Sjálfstæðis-
menn í borgarstjórn hafa gagnrýnt
stefnuna harkalega á undanförnum
dögum og telja hana alls ekki til
þess gerða að bæta samgöngumál í
borginni.
Umhverfisvæn stefna
Meirihluti borgarstjórnar sam-
þykkti á þriðjudaginn nýja sam-
göngustefnu Reykjavíkurborgar
eftir rúmlega tveggja klukkutíma
langar umræður.
I stefnunni er lögð áhersla á
umhverfisvæna samgöngumáta
m.a. með byggingu nýrra hjólreiða-
brauta í borginni sem og lagningu
fleiri göngustíga. Þá kemur fram að
stefna eigi að draga úr umferð einka-
bíla i borginni m.a. með því að at-
huga möguleikana á gjaldskyldum
bílastæðum við skóla og vinnustaði.
Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt
stefnuna og bent á að hún leysi ekki
samgönguvanda höfuðborgarinnar.
Bygging nýrra úthverfa kalli á meiri-
háttar úrbætur á gatnakerfinu sem
samgöngustefnan taki ekki á. Þá
segja þeir ekkert tillit tekið til einka-
bílsins og líta megi á samgöngustefn-
una í heild sem aðför að honum.
1 máli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar,
borgarfulltrúa, í Blaðinu síðastlið-
inn laugardag kom fram að hann
teldi ennfremur varhugavert að
taka upp gjaldtöku á bílastæðum
við skóla og vinnustaði borgarinnar.
Slíkt kerfi myndi aðeins bitna á
þeim sem síst mættu við því.
Bílinn áfram ráðandi ferðamáti
Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi
Árni Þór Sigurðsson
og formaður umhverfissviðs, segir
sjálfstæðismenn stunda pólitískan
hráskinnaleik. Ekki sé verið að lýsa
yfir stríði á hendur einkabílnum
heldur fyrst og fremst að skapa raun-
verulegan valkost fyrir borgarbúa
milli ólíkra ferðamáta. „Það er frá-
leitt að halda því fram að við séum
að fara í eitthvert stríð við einka-
bílinn. Hann verður eftir sem áður
ráðandi ferðamáti. Við bendum á að
50% af borgarlandinu í dag fer undir
umferðarmannvirki eins og götur
og bílastæði. Meginspurningin er
hvort halda eigi áfram á þessari
braut eða reyna að skapa jafnræði
með ólíkum samgöngumátum og
gefa fólki raunverulegan valkost."
Þá segir Árni ekkert vera búið að
ákveða með hugsanlega gjaldtöku
á bílastæðum við skóla og vinnu-
staði. Hann bendir á að þessum
möguleika sé aðeins velt upp í fram-
kvæmdaáætlun sem er viðauki við
samgöngustefnuna. „Þetta er mjög
algengt í löndunum í kringum okkur
og nú þegar höfum við gjaldskyldu
víða í miðborginni til að stýra um-
ferðarflæðinu. Landspítalinn hefur
af eigin frumkvæði óskað eftir því
að koma upp gjaldskyldu að hluta til
á sínum stæðum til að leysa viðvar-
andi bilastæðavandamál. Þá hefur
Háskólinn einnig sýnt áhuga á svip-
uðu fyrirkomulagi. Það er ekki hægt
að taka meira og meira rými mið-
svæðis í borginni undir bílastæði
og það er verið að reyna taka á þeim
vanda með þessu hugmyndum."
blaðið_
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net