blaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 28

blaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 28
28 I FJÖLSKYLDAN FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 blaðið Eí þú kýst mig, ef þú bara kýst mig... Borgarstjórnarkosningar eru framundan og þeir fimm flokkar sem eru í framboði keppast við að kynna sínar hugmyndir og framtíðarsýn. Margir segja deyfð yfir kosningabaráttunni en víst er að stjórnmálamenn eru á þönum út um allan bæ að reyna að ná til kjósenda. . I kosningabaráttunni í ár er mikið um lokkandi loforð og mörg hver snúa að fjölskyldunni enda er fjölskyldan sá hornsteinn samfélagsins, sem elur framtíðina. Blaðið brá á það ráð að senda flokkunum nokkrar spurningar um fjöl- skyldustefnu þeirra og hér má sjá svörin. Það er ekki úr vegi að eiga þessar síður, geyma í fjögur ár og sjá svo hvernig mönnum hefur gegnið að efna loforðin. svanhvit@bladid.net Vinstrihreyfingin - grænt framboð Hagsmunir barna eru hags- munir samíélagsins alls Offita barna hefur aukist verulega undanfarin ár. Er réttlcetanlegt að skólar og leikskólaeldhús borgarinnar bjóði upp á mikið magn unninnar matvöru i skólamötuneytum sínum, likt oggert er í dag? „Skólamáltíðir þurfa að vera hollar og góðar, samrýmast lýðheilsumarkmiðum og án endur- gjalds. Við samsetningu matarins þarf að huga að því að hann sé bæði fjölbreyttur og næringar- ríkur og innihaldi meðal annars grænmeti og ávexti. Meiri hreyfing í stundatöflu og aukin úti- kennsla stuðlar að heilbrigðara líferni. Með lengdum skóladegi og einsetningu skóla við lok síðustu aldar var hlutur list- og verk- greina ekki aukinn að sama skapi eins og til stóð. Enn eru aðeins tvær stundir til hreyfingar á stundaskrá. Þetta er alvarlegt mál í sjálfu sér og ekki síst í ljósi vaxandi skyndibitamenningar og minnkandi hreyfingar barna. Börnin eru keyrð milli staða og sitja meira í frítímanum við tölvur og sjónvörp en áður var. Fyrsta skref er að auka skipulagða hreyfingu í skólanum, annað að auka samstarf frístundaheimila og íþróttafélaganna og loks að auka útikennslu í umhverfismennt og náttúrufræðigreinum. Auk þess má í þessu sambandi nefna hollar og nær- ingarríkar skólamáltíðir fyrir alla sem hluta af skóladeginum. Siðast en ekki síst gæti skólinn vakið máls á ferðamáta skólabarna og þar með hvetja þau til að ganga og hjóla í skólann í stað- inn fyrir að foreldrar keyri þau.“ Vinnudagur ungra barna of langur Mun Vinstrihreyfingin - græntframboð beita sér fyrir samstarfi við aðila vinnumarkaðarins um fjölskylduvœnni vinnutíma, vinnuaðstöðu ogfrí- daga og tryggja að börn alist, að minnsta kosti að einhverju leyti, upp í faðmi foreldra sinna fremur er kerfisins? „Leikskólar eru faglegar og metnaðarfullar stofnanir þar sem fagfólk starfar að uppeldi og menntun barna, oft við erfið skilyrði vegna manneklu, hávaða og aðstöðuleysis. Leikskólar eru í huga okkar Vinstrigrænna ekki „kerfið“ heldur góðir skólar. Hitt ber að nefna að vinnu- dagur ungra barna er að jafnaði allt of langur og stór hluti barna dvelst i leikskólanum allt að 9 tímum á dag. Þetta er áhyggjuefni sem þarf að hleypa inn í opinbera umræðu því hagsmunir barna eru hagsmunir samfélagsins alls. Velta má því upp hvort ekki sé rétt að fara að huga að styttingu vinnuvikunnar í því skyni að auka samverutíma fjölskyldunnar. Sömuleiðis þarf að gera átak í því að fjölga menntuðum leikskóla- kennurum, huga að áætluðu rými fyrir hvert leikskólabarn, hámarksfjölda barna á deild og hljóðvist á leikskólum." Hyggst Vinstrihreyfingin - grænt framboð gera öllum börnum kleift að stunda tómstundir, óháð efnahag og hvaða útfœrslu hafiðþið í huga? „Já, við viljum auka jafnrétti barna til tóm- stunda- oglistnáms. Við uppbygginguíþrótta- og tómstundamála þarf að hafa lýðheilsumarkmið að leiðarljósi, þátttöku sem flestra í fjölskyld- unni og sem flestra aldurshópa. f stefnu okkar í VG er sérstaklega fjallað um að gæta skuli að jafnræði stráka og stelpna við framlög til íþrótta- m a n n - virkja eða annarrar aðstöðu til hreyfingar. For- varnarstefnu borgarinnar þarf að hrinda í framkvæmd í góðu samstarfi við þjónustumið- stöð, íþróttafélög og aðra aðila í hverfinu. Öfl- ugar forvarnir eru mikilvægar á forsendum fjöl- breytni og þátttöku allra. Við í VG viljum jafna aðstöðu barna og ungmenna til íþróttaiðkunar og skoða í því tilviki sérstaklega möguleika til að styðja við iðkunina með beinum hætti, líkt og gert hefur verið í Hafnarfirði. Efla þarf sérstaklega hlut tónlistar í leik- og grunnskólum og annars skapandi náms. En ekki siður að frístundaheimilin verði efld enn frekar undir stjórn ÍTR og fleiri íþróttagreinar kynntar þar auk mögulegrar samvinnu við tónlistarskólana.“ Hvernigætlar Vinstrihreyfingin -græntframboð að leysa dagvistunarúrræðaleysi foreldra 9-18 mánaða barna vegna skorts á dagmæðrum og annarri dagvistun fyrirþennan aldurshóp? „Með því að halda áfram uppbyggingu leik- skólans og bjóða leikskólapláss frá lokum fæð- ingarorlofs. Einnig með því að dagmæðrakerfið verði tekið til endurskoðunar þannig að dag- mæður verði starfsmenn borgarinnar, geti leyst hver aðra af og fái faglegan og skipulagslegan stuðning. Samhliða þessari uppbyggingu þarf að lengja fæðingarorlofið upp i tólf mánuði að minnsta kosti.“ Félagsleg úrlausnarefni ekki leyst með fatnaði Það hefur verið mikil umræða um gjaldfrjálsa leikskóla undanfarið. Mun ekki sá kostnaður sem gjaldfrjáls leikskóli hefur íför með sérkoma niðurá launakjörum menntaðra ogómenntaðra fóstra ogviðhaldi leikvalla ogbygginga? „Gjaldfrjáls leikskóli snýst um menntastefnu. Leikskólinn er fyrsta skólastigið, rekið af samfé- laginu og á að vera án skólagjalda eins og hin skólastigin. Aldrei myndi hvarfla að okkur að hefja gjaldtöku fyrir grunnskólann þrátt fýrir slök kjör grunnskólakennara. Grettistaki hefur auk þess verið lyft í tíð núverandi meirihluta að því er varðar bæði kjör leikskólakennara og ann- ars starfsfólks leikskólanna.“ Er rökrétt að gera leikskóla gjaldfrjálsa þegar ekki er mannafl til aðfullmanna skólana vegna lélegra launa? „Já, rekstur leikskóla á ekki að fjármagna með þjónustugjöldum og beinni gjaldtöku frekar en grunnskólann eða framhaldsskólann. Ábyrgð á lágum launum þeirra sem starfa við uppeldi og menntun er ekki foreldranna heldur stjórn- valda og samfélagsins alls. Allt of mikil áhersla er lögð á mælanleg og hörð gildi í samfélaginu, markað, peninga og hagvöxt. Stjórnmál eiga líka að snúast um samfélag í þágu fólks og um- hverfis. Samfélag sem er gott fyrir börn er gott samfélag fyrir alla.“ Svandís Svavarsdóttir svaraði spurninga- listanum fyrir hönd Vinstrihreyfingar- innar - grænt framboð en hún er í 1. sæti í framboðslista Vinstrihreyfingarinnar til borgarstjórnarkosninga. Samfylkingin: Leikskólanám er dýr- ara en háskólanám Offita barna hefur aukist verulega undanfarin ár. Er réttlætanlegt að skólar og leikskólaeld- hús borgarinnar bjóði upp á mikið magn unn- innar matvöru i skólamötuneytum sínum, líkt oggert er í dag? „Eg er ekki viss um að fullyrðingin eigi rétt á sér um „mikið magn unninnar matvöru". Mikil áhersla var lögð á það við innleiðingu mötuneyta að með því væri verið að gefa færi á elduðum mat á staðnum, ferskmeti og slíku, andstætt því sem væri í boði ef skólarnir fengju aðsendan bakkamat eins og D-listinn barðist fyrir. Talsverð vakning hefur verið um mikilvægi þess að skólamatur sé hollur og góður og hefur menntaráð nú haft forgöngu um ráðningu næringarfræðings sem á að vera skólaeldhúsum til ráðuneytis. Jafnframt höfum við haft það að leiðarljósi að foreldrar kynntu sér rekstur mötuneytanna og hefðu áhrif á það framboð sem þar er, því þannig skapast best aðhald og sátt um það sem börn- unum er boðið.“ Hið gullna jafnvægi Mun Samfylkingin beita sér fyrir samstarfi við aðila vinnumarkaðarins um fjölskyldu- vænni vinnutíma, vinnuaðstöðu ogfrídaga og tryggja að börn alist, að minnsta kosti að ein- hverju leyti, upp ífaðmi foreldra sinna fremur er kerfisins? „Reykjavíkurborg hefur haft forystu um verk- efnið Hið gullna jafnvægi sem snýst einmitt um jafnrétti kynjanna, sveigjanlegan vinnu- tíma og aðrar fjölskylduvænar aðgerðir. Það er unnið í samvinnu við aðila vinnumarkaðar- ins og framsækin fyrirtæki í borginni. Stefna Samfylkingarinnar um íþróttir, tómstundir og listnám inn í skólanna stefnir einnig að sama marki, að auka samveru fjölskyldna.“ Hyggst Samfylkingin gera öllum börnum kleift að stunda tómstundir, óháð efnahag og hvaða útfærslu hafið þið í huga? „Það gerum við nú þegar, en Samfylkingin telur að enn þurfi að bæta úr. Niðurgreitt tóm- stunda- og íþróttaframboð er gríðarlegt í borg- inni. Borgin greiðir háa styrki til íþróttafélaga, tónlistar- og myndlistarskóla og svo mætti áfram telja. Einnig greiðum við niður sum- arnámskeið. Þetta er allt þáttur í því að gera sem flestum fært að vera með í því sem hugur þeirra stendur til. Eigi að síður er hætta á því að þau börn sem koma frá efnalitlum heim- ilum fái ekki notið, og því höfum við auglýst og boðið sérstaka styrki til þeirra. Skiptir tala heimila sem slíka aðstoð hafa fengið nokkur hundruðum. Útfærsla okkar í framtíðinni verður að bjóða fram tómstundir í tengslum við frístunda- heimilin og skólana, þannig að við sköpum samfelldan skóladag þar sem auðvelt verður að fella tómstundir að öðru í vinnudegi barn- anna. Við viljum gjarnan kanna til þrautar þann kost að færa styrkina yfir til notenda sjálfra, að ein- ^ „ hverju leyti, svo val notenda ' verði beint og milliliðalaust á þeirri þjónustu sem er í boði. Það þarf hins vegar að gerast með samkomulagi við þá mörgu sem í dag fábeina styrkiborg- arinnar til að bjóða fram þjónustu, svo sem íþróttafélög og aðra - og aðdragandi þarf að vera nokkur svo bæði notendur og veitendur þjónustu fái tóm til að undirbúa aðlögun. En aukið val notenda tómstundaþjónustu, jafn- ræði milli veitenda og notenda er það sem koma skal. Þá mun fjölbreytni aukast og allir fá að njóta.“ Hvernig ætlar Samfylkingin að leysa dagvist- unarúrrœðaleysi foreldra 9-18 mánaða barna vegna skorts á dagmœðrum og annarri dag- vistunfyrirþennan aldurshóp? „Með byggingu leikskóla og eflingu dagfor- eldrakerfisins.Leikskólabyltingundanfarinna ára hefur gjörbreytt lífsskilyrðum fjölskyldna í borginni. Samfylkingin vill tryggja örugg úr- ræði fyrir börn frá lokum fæðingarorlofs og nýta þjónustumiðstöðvar borgarinnar í því skyni að aðstoða foreldra við að finna úrræði við hæfi. Samfylkingin vill fjölga leikskóla- plássum fyrir yngsta aldurshópinn og efla dag- foreldrakerfið. Við viljum kanna hvort fleiri dagforeldrar hafi áhuga á nýta gæsluvelli borg- arinnar til samreksturs eins og gefið hefur góða raun.“ Það hefur verið mikil umræða um gjaldfrjálsa leikskóla undanfarið. Mun ekki sá kostnaður sem gjaldfrjáls leikskóli hefur í för með sér koma niður á launakjörum menntaðra og ómenntaðra fóstra og viðhaldi leikvalla og bygginga? „Nei. Samfylking hefur sýnt það í verki að við höfum forgangsraðað í þágu þjónustu við börn og við höfum dregið vagninn í því að hækka laun umönnunarstétta.11 Er rökrétt að gera leikskóla gjaldfrjálsa þegar ekki er mannafl til að fullmanna skólana vegna lélegra launa? „Gjaldfrjáls leikskóli endurspeglar það að leikskólinn er fyrsta skólastigið og fáránlegt að hann sé dýrari en háskólanám. Hann er réttlætismál. Laun í leikskólum eiga vitanlega að endurspegla þá miklu ábyrgð og mikilvæga starf sem þar er innt af hendi. Þetta tvennt eru ekki andstæður heldur helst í hendur í stefnu Samfylkingarinnar.“ Dagur B. Eggertsson svaraði spurn- ingalistanum en hann er í 1. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar til borgarstjórnarkosninga.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.