blaðið - 18.05.2006, Page 30

blaðið - 18.05.2006, Page 30
30 I FJÖLSKYLDAN FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 blaöÍÖ Frjálslyndi flokkurinn og óháðir Mannsœmandi laun mikilvœg Framsóknarflokkurinn Stœtóbilstjórar fjöl- skyldunnar óþarfir Offita barna hefur aukist verulega undanfarin ár. Er réttlætanlegt að skólar og leikskólaeldhús borgar- innar bjóði upp á mikið magn unn- innar matvöru í skólamötuneytum sínum, líkt oggert er í dag? „Þróun offitu felur í sér mun fleiri þætti en mataræðið og má kannski helst kenna þar um breyttum þjóð- félagslegum aðstæðum. Lífshættir okkar og dagleg hreyfing hafa breyst ekki síður en mataræðið og það er nauðsynlegt að huga að öllum þáttunum. Við þurfum að stefna að hollum mat í skólum, ekki bara í há- deginu heldur líka í nestishléum. Til að tryggja hollustugildi og öryggi í framreiðslu þarf eftirlit en umfram allt þarf að tryggja að skólamötu- neytin hafi þann aðbúnað sem nauð- synlegur er til að bjóða hollan og góðan mat. Aukinni hreyfingu á skólatíma, iþróttum og útiveru alla daga jafnt í kennslu sem og frímínútum, þar sem meðal annars mætti kenna leiki. Það þarf að hanna skólalóðir með vellíðan, hreyfingu og leiki barna að leiðarljósi, skólalóðir þar sem umhverfishvatar eru nýttir til hins ítrasta. Öruggar göngu- eða hjól- reiðaleiðir í skóla eru einnig hluti af hverfaskipulagi sem er veigamikið atriði í að stuðla að heilbrigðri líkamsþyngd. Forvarnastarfsemi þar sem lögð er áhersla á hollan mat og heilbrigða hreyfingu sem hentar öllum, en ein- skorðast ekki við ákveðið holdafar." Sveigjanleiki eykur starfsánægju Mun Frjálslyndi flokkurinn beita sér fyrir samstarfi við aðila vinnu- markaðarins um fjölskylduvænni vinnutíma, vinnuaðstöðu ogfrídaga og tryggja að börn alist, að minnsta kosti að einhverju leyti, upp ífaðmi foreldra sinna fremur er kerfisins? „Við viljum skapa forsendur til þess að jafnvægi náist milli fjölskyldulífs og atvinnuþátttöku og að samþætt- ing verði eins góð og mögulegt er á milli skóla, félagsstarfs-, íþrótta- og tómstundamála. Ef flest börn geta stundað tómstundir við hæfi innan hverfisins eða í skólanum í beinu framhaldi af skóladeginum verður ekki aðeins meiri tími aflögu fyrir samverustundir fjölskyldunnar heldur má einnig draga úr enda- lausum ferðalögum við að koma börnum á milli staða. Kannanir hafa sýnt að fólk sem gefur sér tíma og hefur aukið frelsi til að sinna fjölskyldu sinni er betri starfskraftur á vinnustað en þeir sem láta vinnuna ævinlega ganga fyrir. Reykjavíkurborg er með stærstu vinnustöðum í borginni og mótun fjölskyldustefnu á vinnustað byggist á sveigjanleika. Rannsóknir benda til að hjá fólki sem hefur meiri sveigjanleika á vinnustað aukist starfsánægja, framleiðni og tryggð starfsmanna við fyrirtækið og gerir þeim jafnframt auðveld- ara að samræma vinnu og einkalif. F-listinn leggur áherslu á að unnið verði samkvæmt þessum gildum hjá Reykjavíkurborg.“ Hyggst Frjálslyndi flokkurinn gera öllum börnum kleift að stunda tóm- stundir, óháð efnahag og hvaða út- færslu hafiðþið í huga? „F-listinn krefst þess að öll börn og unglingar fái notið sambæri- legra niðurgreiðslna til íþróttastarfs, tónlistarnáms og tómstunda sem Reykjavíkurborg leggur fjármuni til. Þær fjölskyldur sem ekki kljúfa að greiða annan þátttökukostnað fái notið aðstoðar félagsþjónustu borgarinnar. íþróttahreyfingin og tónlistarskólar komi til aukins sam- starfs við grunnskólann.“ Hvernig ætlar Frjálslyndi flokkur- inn að leysa dagvistunarúrræðaleysi foreldra 9-18 mánaða barna vegna skorts á dagmœðrum ogannarri dag- vistun fyrirþennan aldurshóp? „F-listinn vill efla dagforeldra- kerfið vegna þess að við teljum gott fyrir börnin að vera í smærri hópum á meðan þau eru innan við eins árs aldur. Það þarf að vera eft- irlit með starfseminni og jafnframt þarf að styðja betur við bakið á dag- föreldrum til að gera starfið meira aðlaðandi." Skólabúningar fela ekki ójöfnuðinn í stefnuskrá Frjálslynda flokksins kemurfram að flýta þurfi uppbygg- ingu leikskóla í borginni með það að markmiði að hægt sé að veita börnumfrá eins árs aldri dagvistun. Hvernig ætlið þið að tryggja fólk í þessi nýju stöðugildi? „F-listinn í borgarstjórn studdi heilshugar hækkun lægstu launa hjá Reykjavíkurborg, þar sem um- önnunarstéttir eru fjölmennar. F- listinn vill áfram stuðla að leiðrétt- ingu launa þannig að þær stéttir sem enn bera skarðan hlut frá borði fái laun í samræmi við störf, reynslu og menntun. Það er hins vegar fleira en launin sem getur haft áhrif á ánægju í starfi og gæti verið mik- ilvægur þáttur í að tryggja starfs- fólk, s.s. að finna leiðir til að draga úr álagi, bæta vinnuumhverfi og starfsöryggi og auka sveigjanleika í starfi.“ Frambjóðendur Frjálslynda flokks- ins tala um að efla dagmæðrakerfið. Ætlið þið að hækka laun dagmæðra og ef svo er, hve mikil hœkkun yrði það? „Þar sem við leggjum áherslu á að efla dagforeldrakerfið verður að tryggja mönnun þar með mann- sæmandi launum, á sama hátt og í leikskólanum “ Frambjóðendur í 6 efstu sæt- unum á F-lista Frjálslyndra og óháðra svöruðu spurningalist- anum f sameiningu. Offita barna hefur aukist verulega undanfarin ár. Er réttlætanlegt að skólar og leikskólaeldhús borgar- innar bjóði upp á mikið magn unn- innar matvöru í skólamötuneytum sínum, líkt oggert er í dag? „Ég er þeirrar skoðunar að taka verði mataræði í skólum og opin- berum mötuneytum til skoðunar með það í huga að bjóða upp á betri og hollari mat en nú er. Ég hef viða heyrt gagnrýni í þá veru að boðið sé upp á upphitaðan mat sem oft- ast sé unnin matvara og bendi á að viða um lönd, t.d. í Bretlandi, hafa stjórnvöld skorið upp herör gegn óhollustu í skólamötuneytum. Nú er að störfum nefnd á vegum forsæt- isráðuneytisins undir formennsku Þorgríms Þráinssonar sem m.a. er ætlað að stuðla að bættu mataræði og meiri hollustu landsmanna og hvetja til aukinnar hreyfingar.“ 40 þúsund króna frístundakort Mun Framsóknarflokkurinn beita sér fyrir samstarfi við aðila vinnu- markaðarins um fjölskylduvænni vinnutíma, vinnuaðstöðu ogfrídaga og tryggja að börn alist, að minnsta kosti að einhverju leyti, upp ífaðmi foreldra sinnafremur er kerfisins? „Sú vinna er þegar í gangi, t.d. á vettvangi fjölskyldunefndarinnar með þátttöku atvinnulífsins, verka- lýðshreyfingarinnar og ýmissa aðila, t.d. innan íþróttahreyfingarinnar. Fæðingarorlofslögin voru stórt skref í þessum efnum og juku stórlega möguleika foreldra á samvistum við ung börn sín. Með hugmyndum okkar framsóknarmanna um samþættan skóladag þar sem tóm- stundir, íþróttir og listnám er fléttað inn í skólann er hluti af þessari hug- myndafræði sem gengur út á að for- eldrar hætti að vera strætóbílstjórar fjölskyldunnar og geti þess í stað varið meiri gæðatíma með börnum sínum að loknum vinnudeginum.“ Hyggst Framsóknarflokkurinn gera öllum börnum kleift að stunda tóm- stundir, óháð efnahag og hvaða út- færslu hafiðþið í huga? „Við höfum kynnt til sögunnar beinar tillögur í þeim efnum, eða svonefnd frístundakort að upphæð 40.000 kr á ári til viðurkenndrar starfsemi, t.d. í listnámi, íþróttum eða annars konar félagsstarfi. Við teljum að í þessu felist mikilvæg fjár- festing til framtíðar, því rannsóknar sýna að einhver mesta hættan sem steðjar að börnum og unglingum felst í brottfalli þeirra úr viður- kenndu æskulýðsstarfi á aldursbil- inu 11-16 ára. Þeim mun lengur sem börn og unglingar taka þátt í heil- brigðu félagsstarfi minnka líkurnar á því að þau flækist út í óæskilega iðju og verði jafnvel ólöglegum vímu- efnum að bráð.“ Hvernig ætlar Framsóknarflokkur- inn aðleysa dagvistunarúrrœðaleysi foreldra 9-18 mánaða barna vegna skorts á dagmæðrum ogannarri dag- vistun fyrirþennan aldurshóp? „Framsóknarflokkurinn hefur gengist fyrir umræðu um það bil sem er á milli fæðingarorlofsins og leikskólans og ég hef að undanförnu rættþessimáláopinberumvettvangi sem formaður fjölskyldunefndar rík- isstjórnarinnar. Til lengri framtíðar hef ég lýst þeirri skoðun minni að lengja eigi fæðingarorlof upp í 12 mánuði og bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla frá þeim aldri, en ég tel að það taki nokkur ár, enda myndi það fela m.a. í sér umtalsverðar fjárfest- ingar hjá leikskólunum. Þess vegna hef ég talið að bæta þurfi úr brýnum vanda foreldra þessara barna í dag með s.k. fjölskyldugreiðslum upp á 50 þúsund krónur á mánuði sem yrðu valkvæðar og gætu nýst for- eldrum til að vera lengur heima, nýst sem greiðsla til afa og ömmu eða au-pair svo dæmi sem tekið, eða niðurgreiðslu þjónustu dag- eldra eða í smá- barnaleik- skóla. Það er ekki nóg að segjast ætla að s t o f n a vöggu- s t o f u r eða leik- skóla fyrir yngri börn, það dugar litt þeim foreldrum sem þurfa í dag að velta fyrir sér hvar barnið þeirra eigi að vera á morgun meðan það þarf að sinna sinni vinnu.“ Skólafatnaður dregur úr einelti Það hefur verið mikil umræða um gjaldfrjálsa leikskóla undanfarið. Mun ekki sá kostnaður sem gjald- frjáls leikskóli hefur í för með sér koma niður á launakjörum mennt- aðra og ómenntaðra fóstra og við- haldi leikvalla og bygginga? „Nei, hann mun ekki gera það frekar en í tilfelli grunnskólans sem öllum finnst sjálfsagt að sé ókeypis. Það þarf að huga að launum umönn- unarstétta og nokkuð hefur áunnist í þeim efnum að undanförnu, þótt enn sé talsvert ógert." Er rökrétt að gera leikskóla gjald- frjálsa þegar ekki er mannafl til að fullmanna skólana vegna lélegra launa? „Laun hafa hækkað nokkuð að und- anförnu og mér skilst að nú gangi betur að manna skólana en áður, þótt auðvitað sé skortur á vinnuafli þar eins og annars staðar á vinnu- markaðnum. Ég tel því ekki að þessi þáttur eigi að koma í veg fyrir að hugmyndir okkar um gjaldfrjálsan leikskóla geti orðið að veruleika.“ Björn Ingi Hrafnsson svaraði spurningalistanum fyrir hönd Framsóknarlistans en hann er í 1. sæti á framboðslista Framsóknar- Iistans til borgarstjórnarkosninga. Sjálfstæðisflokkurinn Tómstundastarf þungur baggi Offita barna hefur aukist verulega undanfarin ár. Er réttlœtanlegt að skólar og leikskólaeldhús borgar- innar bjóði upp á mikið magn unn- innar matvöru í skólamötuneytum sínum, líkt oggert er í dag? „Ég er þeirrar skoðunar að við eigum einungis að bjóða holla og góða fæðu fyrir börn, bæði í leik- skólum og grunnskólum. Víða er þetta mjög vel gert, en við viljum auðvitað að þannig sé það alls staðar. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á þessi málefni í okkar fjöl- skyldustefnu, þar sem við kynnum sérstakt heilsuátak í öllum leik- og grunnskólum. Slíkt heilsuátak myndi fela í sér áherslu á næring- arríkar máltíðir, aukna hreyfingu og útivist t.d. með því að stórbæta skólalóðir og aðstöðu barna til leikja og íþrótta.“ Tími til að lifa Mun Sjálfstæðisflokkurinn beita sér fyrir samstarfi við aðila vinnu- markaðarins um fjölskylduvœnni vinnutíma, vinnuaðstöðu ogfrídaga og tryggja að börn alist, að minnsta kosti að einhverju leyti, upp ífaðmi foreldra sinna fremur er kerfisins? „Sú fjölskyldustefna sem Sjálfstæð- isflokkurinn hefur kynnt undir yf- irskriftinni Tími til að lifa, gengur öll út á það að fjölga tækifærum fjöl- skyldna til samverustunda. Þannig vill Sjálfstæðisflokkurinn auka þjón- ustu, lækka byrðar, minnka skutl og fjölga gæðastundum. Allt skiptir þetta máli fyrir fólk og fjölskyldur í borginni. Að ætla sér að semja við einstaka aðila vinnumarkaðarins er flókið mál, en engu að síður gæti borgin sem vinnuveitandi gengið fram með góðu fordæmi og tryggt eigin starfsfólki tækifæri til sveigj- anlegri vinnutíma og aðstæður sem mæta betur þörfum fjölskyldna.“ Hyggst Sjálfstœðisflokkurinn gera öllum börnum kleift að stunda tóm- stundir, óháð efnahag og hvaða út- fœrslu hafið þið í huga? „Sjálfstæðiflokkurinn vill koma til móts við þau sjónarmið að það geti verið þungur baggi fyrir fjöl- skyldur að standa straum af tóm- stundastarfi barna. Þess vegna er það stefna Sjálfstæðisflokksins að ganga til samninga við íþrótta- og æskulýðsfélögin í borginni um að þátttökugjöld barna og unglinga verði lækkuð, með stuðningi borg- arinnar, eigi síðar en um áramótin 2006-2007.“ Hvernig ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að leysa dagvistunarúrræðaleysi foreldra 9-18 mánaða barna vegna skorts á dagmæðrum og annarri dag- vistun fyrirþennan aldurshóp? „Sjálfstæðisflokkurinn telur það eitt brýnasta verkefni í dagsvist- armálum í Reykjavík, að tryggja foreldrum val um vistun fyrir ung börn sín strax eftir að fæðingaror- lofi lýkur. Þetta verður í fyrsta lagi gert með auknum stuðningi við starfsemi dagforeldra; í öðru lagi

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.