blaðið - 18.05.2006, Síða 38
38 I ÍPRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 blaöiö
■ Utan vallar með Eyjólfi Héðinssyni, knattspyrnumanni úr Fylki
Vona að Ásgeir Kolbeins sé að grínast
BlaOiÖ/SteinarHugi
Fæðingardagur og ár?
í. janúar 1985.
Besta bíómynd?
„Agnes“ eftir Balta.
Besta bók?
101 pikköp lína með Didda Hverfis.
Besta hljómsveit/tónlistarmaður?
Gréta Mjöll Samúelsdóttir.
Besti matur?
Matstofa Daníels og karamellu-
snúður úr Nóatúni
Hvað gleður þig mest?
Að vakna klukkan sjö á morgnana
og vita það að ég er að fara í vinnuna
mína að tína rusl.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Að þurfa að vakna klukkan 7:00 á
morgnana og vita það að ég er að fara
í vinnuna mína að tína rusl.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú varst barn?
Verkamaður á bækistöð 4 í
Breiðholti.
Opið hús í Réttinni í
Úthlíð á laugardkvöld
Euvorovision partý byrjar
kl. 19.00. Léttar veitingar á
góöu verði.
(Pizza-Hamborgarar-Franskar)
Tilboð á stórum!
Laus hús til leigu
www.uthlid.is / s.6995500
Mestu vonbrigðin á
íþróttaferlinum?
Að hafa misst af malarleiknum
með U-21 landsliðinu gegn Andorra.
Mesta afrek innan vallar og utan?
Utan vallar er það að hafa haldið í
vinnuna mína þrátt fyrir dræma mæt-
ingu. Einnig að ég hafi náð að halda
því leyndu fyrir mömmu og pabba að
ég væri ekki að mæta í lögfræðina í
HÍ. Ég þóttist fara í skólann, beið eftir
því að pabbi og mamma færu í vinn-
una og fór þá aftur heim í rúmið. Fór
svo aftur út í hádeginu þegar pabbi
kom í hádegismat. Mæli ekki með
þessu fyrir stressaða einstaklinga.
Uppáhalds lið í enska boltanum?
Liverpool.
Uppáhalds íþróttamaður
fyrr og síðar?
Kristinn „Kosby“ Friðrik Hrafns-
son, Gunnar „Gussi Jalli“ Jarl Jóns-
son og Halldór „Dóri putti“ Hilmar
Sigurðsson.
Ef þú þyrftir að skipta um
iþrótt, hvað yrði fyrir valinu?
Krulla, af því að ég er með svo
margar krullur í hárinu.
fslandsmeistaratitill eða
1. vinningur ílottói?
Gömul, klassísk íþróttalýsing með
Samúel Erni Erlingssyni.
Hvaða persónu vildirðu helst
lokast inni í lyftu með?
Héðni Schindler.
Hvaða dýri finnst þér
þú helst líkjast?
Menn hafa viljað líkja mér við gír-
affa vegna gríðarlegs háls. Einnig við
Samúel Örn Erlingsson.
Hvert myndirðu fara ef
þúættirtímavél?
Svo ég vitni nú í 7-grein stjórnar-
skrárinnar, þar sem segir að „þing
skuli koma saman að hausti og slitið
að vori.“
Hvað myndi bíómyndin um þig
heita og hver ætti að leika þig?
,Blaksketball" með Samúel Erni
Erlingssyni í aðalhlutverki.
Hvernig myndi einkamála-
auglýsingin þín hljóma?
Sælar dömur. Eg er 21 árs karl-
maður, þykist stunda nám í lögfræði
við Hl og blekki foreldra mína á
hverjum degi, en á sumrin er ég rus-
latínari að atvinnu á Bækistöð 4 í
Breiðholti. Stunda líka knattspyrnu
með Fylki í hlutastarfi. Ef einhverjar
ungar meyjar kynnu að hafa áhuga á
að hlusta á gamlar, klassískar íþrótta-
lýsingar með Samúel Erni Erlings-
syni, hafið þá endilega samband. P.S.
Ég keypti allt Sammasafnið á E-Bay.
Hver er tilgangur lífsins?
Mæta kl. 7:30 á bækistöðina að
tína rusl.
Hver viltu að lokaspurningin sé og
hvernig myndirðu svara henni?
Er Ásgeir Kolbeins að grínast? Ég
vona það hans vegna.
Berbatov til
Tottenham
Tottenham hefur gengið frá
kaupum á búlgarska sóknar-
manninum Dimitar Berbatov frá
Bayer Leverkusen. Kaupverðið er
10,9 milljónir punda - andvirði
1.450 milljóna íslenskra króna.
Tottenham hafði reynt að kaupa
Berbatov í janúarglugganum en
var hafnað. Damien Comolli, yf-
irmaður íþróttamála hjá Totten-
ham, kvaðst hæstánægður með
að Berbatov hefði valið að ganga
til liðs við Spurs. „Hann er stór,
hefur góða tækni og er mjög hæfi-
leikaríkur sóknarmaður. Hann
er ekki einungis mikill marka-
skorari heldur er hann líka dug-
legur að leggja upp færi fyrir
samherja sína,“ sagði Comolli.
Berbatov lýsti einnig yfir
ánægju sinni: „Ég hef fylgst náið
með Spurs undanfarna tvo mán-
uði, hvernig þeir spila og hvernig
félagið hefur vaxið, og ég vonast
til að geta upplifað góða tíma
með þeim,“ sagði Berbatov.
Hann var næst markahæsti leik-
maður þýsku úrvalsdeildarinnar
í ár með 21 mark í 34 leikjum
og hefur skorað 31 mark í 50
leikjum fyrir búlgarska lands-
liðið. Tottenham ætti því ekki
að vera á flæðiskeri statt í fram-
línunni næsta vetur en fyrir eru
sóknarmennirnir Jermain Defoe,
Robbie Keane og Mido.
„Námskeiðið kom mér virkilega á óvart.
... hverrar krónu virði.“
Tómas Pálsson, 18 ára nemi.
Gerrard sóknarmaður á HM?
Sumarnámskeið - Reykjavík og Akureyri
NÝTT NÁMSKEIÐ - 3. vikna hraðnámskeið 13. júní
AKUREYRI - 3. vikna hraðnámskeið 17. maí
Skráning hafín á www.h.is og i síma 586-9400
HRAJEM-ÆSnriVSJPtSNÖl-INN
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu
Sven-Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englands, segist ekki hafa
útilokað þann möguleika að láta Ste-
ven Gerrard, miðjumann Liverpool,
spila sem sóknarmann á HM í
Þýskalandi. Talið er næsta víst að
Wayne Rooney nái ekki að jafna sig
af meiðslum fyrir riðlakeppnina og
þá er Michael Owen nýskriðinn upp
úr meiðslum sjálfur.
„Steven Gerrard getur leikið í
mörgum stöðum og ein þeirra er
staða annars sóknarmanns,“ sagði
Eriksson. „Ég vona að við getum
haft Rooney og Owen í framlínunni
en ef það reynist ekki mögulegt er
Gerrard góður kostur." Gerrard
hefur skorað 23 mörk fyrir Liverpool
á þessari leiktíð og hafa fjölmargir
haldið því fram að í ljósi aðstæðna
sé hann besti maðurinn í það hlut-
verk að skora mörk fyrir England.
Eriksson sagði enn fremur að
hann væri mjög sáttur við að hafa
valið táninginn Theo Walcott, leik-
mann Arsenal, sem einn af fjórum
sóknarmönnum liðsins. „Hann lítur
mjög vel út. Það er ekki auðvelt fyrir
hann að aðlagast enda eru frábærir
knattspyrnumenn í enska landslið-
inu, en hann hefur leikið vel. Ég veit
að ég tók áhættu en ég er ánægður
með það.“
Skútuvogi 6 • Sími 568 6755
Eikarparket 14 mm
3 stafa meö læsingu kr. 2.490.- m2
Eikarparket 14 mm
heil borö með læsingu kr. 4.490.- m2
Berry Floor plastparket í miklu úrvali
verö frá kr. 890.- m2
Yfir 40 gerðir af parketi á lager