blaðið - 29.05.2006, Side 4
20 I BÍLAR
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 bla6ið
Sumardekk
Öryggi bílsins byggist
á góðum hjólbörðum
Ef við eigum það ekki til þá bara búum við það til!
S2rí7TTfCT(IJ't^ryvrrm
:¥1564 0950
PUSTÞJONUSTA
Smiójuvegur 50, Kóp., sími: 564 0950
Setjum pMfeaeíI]
i allar geróir bila
Hér gefur að líta bílinn Koeningsegg, sem mun án efa vekja áhuga viðstaddra á sýningunni.
Bílar og sport 2006
Alhliða bíla- og
mótorsport sýning
Sýningin Bílar og sport 2006
verður haldin dagana 9.-n.júní í
nýja húsnæði Laugardalshallar-
innar, en þetta er alhliða bíla- og
mótorsport sýning. Þarna mun
gefa að líta sportbíla, jeppa, mótor-
hjól, flugvélar, þyrlur, báta og fleira,
en lagt er upp með að hafa sýning-
una sem fjölbreyttasta. Aukþess að
sýna gestum glæsileg farartæki og
nýjungar á þessu sviði verður boðið
upp á go-kart, fjarstýrða bíla og
fleiri tómstundir svo að allir fái eitt-
hvað fyrir sinn snúð. „Þetta er alls
ekki einungis bundið við bílaáhuga-
menn. Þarna getur öll fjölskyldan
mætt og allir geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Við reynum að gera
þetta meira svona „interactiv“ sýn-
ingu þar sem að fólk tekur þátt í
hlutunum, í stað þess að labba bara
í hring og sanka að sér bæklingum,“
segir Þórður Freyr Sigurðsson,
framkvæmdastjóri tímaritsins
Bílar og sport. Hann hvetur fólk til
þess að koma og lofar góðri og fjöl-
breyttri sýningu í bland við önnur
skemmtilegheit.
Hraðskreiðasti verksmiðju-
framleiddi bíll í heimi
Að sögn Þórðar munu áhugaverðir
menn í bílaiðnaðinum koma til
landsins í tilefni sýningarinnar og
má þar nefna heimsmeistarann Per
Soeder. „Soeder er heimsmeistari í
því sem við köllum hljóði og mynd.
Það þýðir í rauninni bara allt sem
tengist græjum í bílnum. Hann
ætlar að koma með nýjan bíl sem
hann er að ljúka við að smíða. Við
verðum einnig með þriggja metra
hátt lukkuhjól, en fólk getur unnið
frábæra vinninga með þvi að nýta
sér áskriftartilboðið á tímaritinu
okkar. Fólk getur unnið veglega
vinninga, m.a. flugferð, og í raun
vinna allir eitthvað sem kaupa
áskrift. Svo erum við að vinna í
því að bjóða fólki upp á þyrlu-út-
sýnisflug og fleira sem lofar mjög
góðu. Síðast en ekki síst ber að
nefna helsta aðdráttarafl sýningar-
innar - tryllitækið Koenigsegg, en
hann kemur hingað til landsins og
verður til sýnis. Samkvæmt heims-
metabók Guinnes er þetta hrað-
skreiðasti verksmiðjuframleiddi
bíll í heimi, með hámarkshraða
upp á 395 kílómetra hraða. Þetta er
heljarinnar bíll og það verður ekki
leiðinlegt að skoða hann,“ segir
Þórður að lokum. Hann hvetur fólk
til þess að koma og lofar góðri og
fjölbreyttri sýningu í bland við
önnur skemmtilegheit.
Bílalán // Bílasamningur // Einkaleiga
; $
LYSING
auglysingar@vbl.is
blaðiö=
mT
l ’ - - §§# ' w - V
Rafstillingtei i.
fti H
startarar-alternatorar- perur viögeröir- sala hrööog góö þjónusta Dugguvogi 23 - s: 5814991 rafstilling@rafstilling.is
ókeypis til
Landsíns mesta úrval fjarstýrðra bíla
Tómstundahúsið Nethyl 2 sími 5870600 www.tomstundahusid.is
MiH
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST
ÚHAÐ
blaðið=