blaðið - 14.06.2006, Síða 1
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
131. tölublað 2. árgangur
miðvikudagur
14. júní 2006
ISÍÐA
Ashkenazy
stjórnar
Sinfóníunn
| SÍÐUR 17-25
í sól og sumaryl
- sérblað um
sumarið fylgir
Blaðinu í dag
Verðbólguráð
Blaðsins
Greiningardeild KB banka
segir meginskýringuna á mikilli
hækkun neysluvísitölunnar í
júnímánuði sé hækkun matvæla-
verðs, sem hækkaði um 3,7% í
mánuðinum.
Verð á grænmeti hefur hækkað
um 6,6%, 10,6% á ávöxtum og
mjólkurvörur hafa hækkað um
6,6% í júní. Síðastliðna 12 mán-
uði hefur matvælaverð hækkað
um 12% og bent hefur verið á að
þessi hækkun matvæla viðhaldi
verðbólgunni. Blaðið tók saman
nokkursparnaðar-
ráð afþessutilefni
sem hjálpa til við
að halda niðri
verðbólgunni.
| SÍÐA 16
Breyttir tímar fjöl-
skylduljósmynda
Fjölskylduljósmyndireru hluti
af menningarsögu síðustu aldar
og eiga margir minningar um að
hafa farið spariklæddir í heim-
sókn til Ijósmyndara, jafnvel
með reglulegu
millibili. Með
stafrænu mynda-
vélunum hafa
hefðirnar í kring-
umfjölskyldu-
og barnaljós-
myndatökur
breyst mikið.
| SlÐA 29
Villhjálmur Þ. Villhjálmsson tekur við lyklavöldum í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Mynd/BrynjarCauti
Kisur keppa
á skjánum
Nýr sjónvarpsþáttur hóf göngu
sína í Bandaríkjunum í gær. Tíu
flækingskettir hafa verið valdir
af forráðamönnum Meow Mix,
sem framleiðir kattamat, tilþess
að dvelja í húsi í tíu daga þar sem
kvikmyndavélar fylgjast með
hverrihreyfinguþeirra. Kettirnir
munu keppa í því hver þeirra
sefur mest, malar hæst og hver
nær að veiða flestar leikfanga-
mýs. Þátturinn er sýndur á sjón-
varpsstöðinni Animal Planet auk
þess sem hægt er að fylgjast með
gangi mála á vefsíðunni Meow-
mixhouse.com. Áhorfendur
kjósa svo kött út á hverjum degi.
Kisinn sem sigrar fær vegleg verð-
laun: honum verður boðið starf
sem varaforseti rannsóknar- og
þróunarsviðs Meow Mix.
Mislæg gatnamót við
Kringlu á kjörtímabilinu
Málefnasamningur nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavík var kynntur í gær. Framtíðar-
staðsetning Reykjavíkurflugvallar ákveðin á kjörtímabilinu. Leikskólagjöld lækka í haust.
Stóð undir
væntingum
„Eftir um það bil 40 mínútna
kafla þar sem gamlir Pink Floyd
slagarar voru í hávegum hafðir
vatt Roger Waters kvæði sínu í
kross og við tók um 50 mínútna
kafli þar sem hann lék aðallega
eigið efni. Eftir að hafa áður náð
að fanga athygli og áhuga hvers
einasta manns í salnum verður
að viðurkennast að stemmning-
in dalaði talsvert
á þessum kafla,"
segir í gagnrýni
Aðalþjörns
Sigurðssonar
sem var á
Waters-tón-
leikunum í
Egilshöll
| SlÐA 35
„Hugsum stórt, horfum langt og
byrjum strax!“ Þetta eru einkunn-
arorð nýs meirihluta sjálfstæðis-
manna og framsóknarmanna i borg-
arstjórn Reykjavíkur sem tók til
starfa í gær. Málefnasamningur nýs
meirihluta var kynntur, þar sem er
gert ráð fyrir að framkvæmdum
mislægra gatnamóta Kringlumýr-
arbrautar og Miklubrautar verði
lokið á kjörtímabilinu. Einnig er
boðað að ákvörðun verði tekin um
legu Sundabrautar á þessu ári og
mun hönnun og framkvæmd hefj-
ast í kjölfarið. Þá á að skipuleggja
ný hverfi í Vatnsmýri, Geldinga-
nesi, Úlfarsfelli og Örfirisey og taka
ákvörðun um framtíðarstaðsetn-
ingu Reykjavíkurflugvallar.
Málefnasamningur
„Þetta er meirihluti sem ætlar að
leggja sérstaka áherslu á málefni
eldri borgara og fjölskyldumálin.
Við munum fara í ákveðið hreins-
unar- og fegrunarátak strax í sumar
í samstarfi við íbúa, félagasamtök
og fyrirtæki,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, nýkjörinn borgarstjóri í
samtali við Blaðið. í málefnasamn-
ingnum kemur fram að þegar verði
farið í að undirbúa byggingu um 300
nýrra leigu- og þjónustuíbúða fyrir
eldri borgara á kjörtímabilinu. Þá
á áætlun um bætta heimaþjónustu
og fjölgun dagvistarrýma að liggja
fyrir í haust og hefja skal undir-
búning að umtalsverðri fjölgun
hjúkrunarrýma á kjörtímabilinu.
Viðræður við ríkisvaldið
í fjölskyldumálum á meðal annars
að lækka leikskólagjöld um 25%
í haust og ganga til viðræðna við
ríkisvaldið um mögulega þátttöku
í fjármögnun á frekari lækkun leik-
skólagjalda. Þá á að senda frístunda-
kort til allra barna í framhaldi af
viðræðum við íþróttafélög og félaga-
samtök um tilhögun og stefnt er að
opnun gæsluvalla á ný í áföngum.
Sérstakar tilraunir verða gerðar til
að efla almenningssamgöngur með
ókeypis strætó fyrir tiltekna hópa.
Vilhjálmur þakkaði Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur, fráfarandi
borgarstjóra, fyrir hönd borgarbúa
fyrir vel unnin störf þegar hann
tók við lyklum að skrifstofu borgar-
stjóra í gær. Vilhjálmur sagði að þau
Steinunn Valdís hefði unnið lengi
saman og þó að þau hefðu ekki
alltaf verið sammála hefði sam-
starfið verið byggt á heiðarlegum
grunni.
Vilhjálmur segir að í viðræðum
sínum við embættismenn borgar-
innar hafi ýmislegt í fjármálum
borgarinnar komið upp sem sé öllu
verra en gefið hafi verið upp af hálfu
fráfarandi meirihluta. „Við munum
óska eftir því á næsta borgarráðs-
fundi að það verði gerð úttekt á
fjármálum borgarinnar til og með 1.
júní. Það eru ýmsar forsendur sem
standast ekki,“ segir Vilhjálmur.
Hlakkartil
Vilhjálmur segist hlakka til að hefj-
ast handa. „Þetta hefur verið mín
vinna og áhugamál að sinna sveit-
arstjórnarmálum, bæði hér í borg-
inni og annars staðar. Ég ætla að
reyna að gera mitt besta og eiga gott
samstarf við alla borgarfulltrúa og
starfsmenn borgarinnar. Ég ætla að
vera góður borgarstjóri sem tekur
vel á móti fólki og umgengst fólk af
virðingu, kurteisi og tillitssemi. Ég
ætla bara að vera ég áfram.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
var kjörin forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur og Björn Ingi Hrafns-
son formaður borgarráðs, stjórnar
Faxaflóahafna sf. og iTR. Þá var
Guðlaugur Þór Þórðarsson kjörinn
formaður stjórnar Orkuveitu Reykja-
víkur, en kosningin er til eins árs.
BILALAN
Finndu bara bílinn sem þig dreymir um og viö sjáum um
LÆGRI fjármögnunina. Reiknaðu lánið þitt á www.frjalsi.is,
VEXTIR hringdu í sfma 540 5000 eða sendu okkur línu á
frjalsi@frjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst!
V
FRJÁLSI
IJÁKI'LST INGARBANKINN