blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 2
2IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöiö fblaöið^HÍ ■ Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Einar K. oftast í fjölmiðlum Einar K. Guðfinnsson, sjávarút- vegsráðherra er sá ráðherra sem var virkastur í þátttöku frétta sem snúa að honum eða ráðu- neyti hans. Þetta er niðurstaða Ráðherrapúls Fjölmiðlavaktar- innar yfir tímabilið frá árám- ótum til ío. júní síðastliðinn. Einar mældist viðmælandi í 53% frétta sem tengdust sjávarútvegs- ráðuneytinu. Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra mæld- ist næstvirkastur, með 47,3% tilfella. Þeir ráðherrar sem mældust með minnstu þátttöku sem við- mælendur í fréttum tengdum þeirra ráðuneyti eru Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumála- ráðherra með 21,6% hlutdeild. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, menntamálaráðherra var með næstminnsta þátttöku, eða 22,5% tilfella. Þátttaka ráðherra sem viðmæl- endur í fréttum um þá eða ráðu- neyti þeirra er mæld með því að skoða hlutdeild þeirra sem við- mælendur í ljósvakafréttum. I fréttatilkynningu frá Fjölmiðla- vaktinni kemur fram að ljós- vakafréttir endurspegli betur en dagblaðaefni meginviðfangsefni umfjöllunarinnar. Telur samkeppnisaöila standa að baki húsleit Samkeppniseftirlitsins Samkeppniseftirlitið gerði húsleit í aðalstöðvum VISA ísland í gærmorgun. Forstjóri fyrirtækisins segir að sér hafi liðið eins og einhver væri kominn upp í rúm hjá sér. Blaóió/FMi Halldór Guðbjarnason, forstjórí VISA sagði á blaðamannafundi í gær aö honum hafi liðið eins og einhver væri komlnn upp í rúmið hjá sér þegar Samkeppnisstofnun birtist skyldilega á skrifstofu hans í gærmorgun. Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins mættu í húsnæði VISA Island upp úr klukkan níu í gærmorgun og hófu húsleit í fyrirtækinu. Voru tölvur allra yfirmanna fyrirtækisins skoð- aðar og tekin afrit af þeim gögnum sem þær geymdu. Sömu sögu má segja um „server“ fyrirtækisins sem geymir helstu tölvugögn þess. „Það bankaði hjá mér lögreglu- maður klukkan fimmtán minútur yfir níu í gærmorgun og sýndi mér skjöld og húsleitarheimild, eins og maður sér í amerískum bíómyndum. I framhaldi var gramsað ofan i öllu hér,“ sagði Halldór Guðbjarnason, forstjóri VISA, á blaðamannafundi sem fyrirtækið hélt seinnipartinn í gær vegna málsins. „Okkur er gert að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu okkar. Við höfum vissulega verið í harðri sám- keppni á okkar markaði, sem er markaður um kortafærslur frá fyr- irtækjum. Þar höfum við keppt við greiðslumiðlunarfyrirtækið PBS. Af þeim málskjölum sem við fengum að sjá er svo að sjá að málið eigi upptök úr þeirri átt,“ sagði Halldór ennfremur. Hafði ekki langan fyrirvara Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam- keppniseftirlitsins, staðfesti í sam- tali við Blaðið í gær að húsleitin hafi verið gerð vegna gruns um að VISA ísland hafi misnotað sér markaðs- ráðandi stöðu sína. „Við töldum óhjákvæmlilegt að óska eftir húsleitarheimild til að upplýsa málið. Héraðsdómur Reykja- víkur veitti okkur þá heimild og hús-' leitin var framkvæmd í samræmi við hana. Með þessu erum við ein- faldlega að sinna okkar lögbundna hlutverki. Það verður svo að koma í ljós hver niðurstaða málsins verður,“ segir Páll. Hann bætir við að málið hafi ekki haft langan aðdragana og nú taki við að skoða gögn og komast að niðurstöðu. Eins og áður sagði telur forstjóri VISA einsýnt að kæra sem liggur að baki húsleitinni komi frá fyrir- tækinu PBS. Það er greiðslukorta- fyrirtæki sem er í eigu danska seðlabankans og danskra banka og sparisjóða, en það gefur meðal ann- ars út Dankort. „Við erum mjög stolt af því hvað VISA getur veitt góða þjónustu á lágu verði. Væntanlega er samkeppnisað- ili okkar því ósammála. Það mun síðan koma í ljós hver niðurstaðan í málinu verður," sagði Halldór. Segja fátt koma á óvart í nýjum málefnasamningi Það kemur vart á óvart að fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn geri at- hugasemdir við þann málefnasamn- ing sem nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur kynnti í gær. Oddvitar flokkanna þriggja í minnihlutanum virðast þó sáttir við margt af því sem þar kemur fram. Þannig virðast hug- myndir um fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða borgarbúa allsstaðar eiga upp á pallborðið, enda bent á að núverandi meirihluti hafi hugsan- lega betri aðgang að ráðamönnum í landsmálunum til að fá aukna fjár- muni í þá uppbyggingu. Það er þó fjölmargt sem minnihlutinn bendir á að betur mætti fara. Kynjahlutföllin kolröng „Það sem stingur í augu er að 69% fulltrúa meirihlutans í nefndum borgarinnar skuli vera karlmenn og að átta ef nefndum borgarinnar skuli vera stýrt af karlmönnum. Þetta er sögulegt skref aftur á bak, Mynd/BrynjarGouli Oddvitar minnihlutaflokkanna í borgar- stjórn gagnrýna nýja stefnuskrá meiri- hlutans. sem kemur reyndar ekki á óvart því þessir flokkar hafa aldrei staðið fyrir framsýni og nútímapólitík,“ segir Svandís Svavarsdóttir hjá Vinstri Grænum. f sama streng tekur Dagur B. Eggertsson, Samfylkingu. „Ég er nú svo ungur að ég man ekki þá tíma sem svona þótti ílagi. Menn hafa í orði kveðnu í þessum tveimur flokkum daðrað við jafnréttishug- sjónina, en þarna eru verkin látin tala,“ segir Dagur. Annað sem minnihlutinn gagn- rýnir eru áherslur meirihlutans varðandi almenningssamgöngur. „Sjálfstæðismenn lögðu til að al- menningsamgöngur yrðu skertar á síðasta kjörtímabili. Nú vilja þeir gera tilraunir til að hafa ókeypis í strætó fyrir ákveðna hópa,“ segir Ól- afur F. Magnússon og bætir við að slíkt geti vart hljómað trúverðugt. „Það er ekki nóg að hafa ókeypis í strætó því það þarf að setja fjármuni í málaflokkinn,“ segir Svandís. Gjaldfrjáls leikskóli út af borðinu Áherslur í leikskólamálum koma fulltrúum minnihlutans einnig á óvart. „Það vekur athygli að þeir ætla að festa leikskólastigið í festi sem gjald- tökustig. Mér sýnist að fyrirheit framsóknarmanna um gjaldfrjálsan leikskóla séu ekki lengur inni í mynd- inni,“ segir Svandís. Hvað skipulags- málin varðar eru menn ennfremur ósáttir. „Ég hef áhyggjur af því að hér verði stigið skref tillHouston Norðurland- anna, þar seni áherslan verði lögð á mislæg gatiiamót og dreifingu byggðar," segifiSvandís. Olafur hefur hinsvegar áhyggjur af því að flugvöllurinn sé á leið úr Vatnsmýrinni. „Þar tel ég hættu á að tekin verði ákvörðun sem ekki er í þágu hags- muna borgarbúa né landsmanna, og tekin verði ákvörðun um að völlur- inn verði fluttur úr Vatnsmýrinni,“ segir Ólafur. „Þetta er ekki mjög afdráttarlaust plagg. Það er talað um samráðshópa, ganga eigi til samninga og leita til leiða. Mér líður eins og meirihlutinn sé með þreytueinkenni frá fyrsta degi,“ segir Dagur. ^qrænmeti sérmerkt þér! 0 HeiðsklrtíSr■téttskýjað£d»*‘Skýjað Alskýjaö* Rigning,IIUIsháttar^*l>Rlgnlng.í^‘Súld '•* Snjókoma-íl- • Slydda2£s Snjóél Skúr iEij'jjl/ Algarve 22 Amsterdam 17 Barcelona 24 Berlín 29 Chicago 17 Dublin 18 Frankfurt 27 Glasgow 17 Hamborg 24 Helsinki 23 Kaupmannahöfn 22 London 21 Madrid 30 Mallorka 27 Montreal 15 New York 19 Orlando 25 Osló 17 París 23 Stokkhólmur 27 Vín 21 Þórshöfn 09 Veðurhorfur í dag ki: 15.00 Veðursíminn 9020600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.