blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöiö
10 ISKODUN
Daðrið á
dansiballinu
Jakob seiðskratti og
tógóskur boltagaldur
Eftir Einar K. Guðfinnsson
Nú stendur Samfylkingin frammi
fyrir einföldu vali. Að falla frá
hugmyndum sínum um Evrópu-
sambandsaðild eða hverfa frá fyrir-
ætlunum um hreinræktaða vinstri
stjórn. Flóknara er málið ekki.
Á nýafstöðnum uppgjörsfundi
Samfylkingar, sem haldinn var
vegna laklegrar útkomu flokksins
í nýliðnum sveitarstjórnarkosn-
ingum, var áhersla lögð á að mynda
ætti ríkisstjórn sem bersýnilega átti
að samanstanda af Vinstri Grænum
auk Samfylkingar. Þetta er út af
fyrir sig athyglisvert. Tilefnið var
ennfremur notað til þess að varpa
hnútum að Framsóknarflokknum
og það fordæmt að standa fyrir
samstarfi með þeim flokki á sveit-
arstjórnarstiginu. Var þó Framsókn-
arflokkurinn í pólitísku bandalagi
með Samfylkingunni í höfuðborg-
inni í tólf ár. Fyrir nú utan það að
þessi ummæli hljóta að hafa verið
sem löðrungur á kjamma þeirra
sveitarstjórnarmanna Samfylk-
ingar sem öpuðu upp R listamódelið
í framboðum sínum víða um land.
Þá rifjast líka upp að endalok þess
gamla bandalags R listans voru á
yfirborðinu hörmuð af fyrirsvars-
mönnum Samfylkingarinnar og sjá
menn nú heilindin í því sorgarferli.
En svo var það annað sem lögð var
áhersla á og átti að skapa Samfylk-
ingu sérstöðu. Flokknum var stillt
upp sem einarðasta talsmanni Evr-
ópusambandsaðildar. Verði þeim að
góðu.
En hvar
ætlar Samfylk-
ingin að leita
bandamanna
í þá miklu
ólitísku för?
hinni nýju
meintu vinstri
stjórn með
Ögmundi Jón-
assyni og Stein-
grími J. Sigfús-
syni? Það vitum við auðvitað að
getur aldrei staðið til. Þess vegna er
þetta allt saman merkingarlaust tal.
Þetta er fánýtt og innantómt gaspur
og ekki meir. Því er bara til skila
haldið að daðrað verði við Evrópu-
sambandsaðild og stigið í vænginn
við Vinstri Græna - og það á einu og
sama dansiballinu!
Sjá þó allir mótsagnirnar í þess-
ari herstjórnarlist. Hún á enda bara
að gegna einu hlutverki. Verða að
einhvers konar ofur - leiktjöldum í
stórri sýningu, sem nota á til þess
að dylja raunveruleikann. Hin nýja
pólitík Samfylkingarinnar er þess
vegna fyrst og fremst leikrit; pólitísk
sviðsetning en ekki raunveruleg efn-
isleg og pólitísk stefnumótun.
Ætli sá prinsíppfati stjórnmála-
flokkur VG láti fallerast af svona
daðri?
Höfundur er sjávarútvegsráðherra
Af www.ekg.is
Oriental BBQ-marinerin? meiUara flr?entínu komin í venlanir
Oriental BBQ-marinering meistara Argentínu steikhúss
hefur notið gríðarlegrar hylli gesta staðarins í 16 ár.
Ná er þessi óviðjafnanlegi kryddlögur fáanlegur í verslunum
svo að eldklárir grillmeistarar heimilanna geta nýtt sér hann
til aukinna vinsælda í sumar.
Fullkomnaðu grillsteikina að hœtti Argentínu steikhúss!
Eftir Össur Skarphéðinsson
I dag vaknaði ég í sérstöku viðhafn-
arskapi. Það er fyrsti leikur Tógó í
HM í knattspyrnu. Upp úr hádegi
mun ég hitta frænda minn og vin,
Þráinn Bertelsson, í miðbænum.
Það er fyrsti leikur Tógó í HM í
dag. Hann getur ekki farið fram
nema við Þráinn séum mættir fyrir
framan risaskjáinn á Glaumbar til
að styðja okkar menn. Við erum full-
trúar hinna hrjáðu og smáðu - og
kanski er það þessvegna sem Þráinn
er alltaf í Framsóknarflokknum.
Tógó á líklega álitlegan hóp stuðn-
ingsmanna á Islandi. Prófessor eme-
ritus Njörður P. Njarðvík er opinber
forystumaðurstuðningsmannahóps-
ins - enda ræðismaður Tógó hér á
landi. Hins vegar á Tógó óopinbera
ræðismenn út um allt Island. Allir
sem eru í Spes - sem byggir barna-
þorp í Tógó - hljóta að styðja þá í
dag.
Það er raunar dálaglegur hópur.
Hann teygir sig ekki bara inn í
stjórnarandstöðuna heldur hefur
með ísmeygilegum hætti lagt undir
sig ríkisstjórnina líka. Nýi iðnaðar-
og viðskiptaráðherrann er nefnilega
einn af verndarenglum Spes - og
þarmeð Tógó. Það er ekki á Njörð
logið. I öllu falli geri ég fastlega ráð
fyrir að nýi ráðherrann geri hlé á
störfum sínum fyrir þjóð, flokk - og
foringja - meðan Tógó leikur í dag.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Tógó
leikur á HM. Það er mikil gleði
meðal landsmanna vegna þess. For-
setinn í Tógó lýsti yfir opinberum
frídegi þegar liðið ávann sér réttinn.
Öll fótboltabuffin sem skrifa í heims-
pressuna segja að það sé slakasta
liðið. Tógóar sjálfir eru undir niðri
nokkuð vissir um afdrif sín því þeir
pöntuðu flugferðina heim strax fyrir
ári síðan - að loknum fyrstu þremur
leikjunum. Fram-
sýnir menn...
I dag keppa þeir
við þaulreynt lið
Suður Kóreu sem
baðar sig upp úr
peningum meðan
liðsmenn Tógó
hafa varla pening
til að éta fyrir. Það
eru heldur engar
stjörnur í liði
Tógóa. Hugsanlega er sláninn Em-
manuel Adebayor sá eini Sem býr
yfir örlitlu leiftri af skini stjarnanna.
Hann er einn af drengjum Arsene
Wenger, kom til Arsenal í vetur að
mig minnir, og er mikið efni. Hann
er enn ekki nema 22 ára.
Adebayor er þeim lesti brenndur
að líta á sjálfan sig sem heimsfræga
stjörnu. Liðið er algerlega háð getu
hans og formi. Svo hann ræður því
víst sem hann vill. Adebayor lét til
dæmis reka Stefán Kesju, prýðilegan
þjálfara Tógóa, sem var að reyna
að sverfa af honum ungæðislega
stjörnustæla og kippti strák einu
sinni úr liðinu. Þá lá við uppreisn
í Tógó og Kesja var látinn taka pok-
ann sinn.
Það hafa líka verið vandræði með
núverandi þjálfara, Otto Pfister,
sem hefur þvælst út um alla Afríku
og þjálfað mörg lið. Ottó er greini-
lega jafnaðarmaður einsog ég. Hann
sætti sig ekki við lélegar og illa
greiddar þóknanir til leikmanna
sinna - og hætti í vikunni. I morgun
bárust þær góðu fregnir að Otto
væri kominn aftur fyrir þrábeiðni
leikmannanna.
Við Þráinn erum þó giska sig-
urvissir fyrir hönd okkar manna.
Tógó býr yfir leynivopni sem ekkert
annað lið hefur yfir að ráða. Það er
Jakob seiðskratti. Hann er fremsti
galdramaður Tógó á sviði vúdú - og
frægur um alla Vestur Afríku fyrir
kynngi sína og töframátt. Nú hefur
Jakob seiðkall snúist í lið með lands-
liði Tógó.
Vúdú er mesti galdur í heimi. Upp-
runi þess er í Tógó og löndunum
í kring. Allt annað vúdú er slöpp
eftirlíking af hinum vesturafríska
galdri. Ég sá sjálfur óttalega galdra
vúdúhöfðingjans í Benín sem kom
siglandi yfir ána sem skilur Benín
og Tógó, þegar ég tók á slöngunni
sællar minningar á vúdústefnunni á
landamærum ríkjanna fyrr á árinu.
Örlítil angist sem bærðist í brjósti
mínu fyrir leik Suður-Kóreu og Tógó
hvarf því einsog dögg fyrir rísandi
morgunsól þegar ég sá einhverja
mestu gleðifregn um langa hríð í
sjónvarpinu í gær. Hún var um Jakoi
seiðskratta. Frá því var greint að
töframaðurinn hefði nú sameinað
alla sína krafta til fremdar landsliði
Tógó. Kallinn sást í fréttinni innan
um hauskúpur sínar og slönguhami
muldrandi framandi seið fýrir
munni sér. Þegar því lauk kvaðst
hann hafa tryggt landsliði Tógó
fullan sigur í komandi viðureign.
Þetta ættu Suður-Kórear að taka
nokkuð alvarlega. Jakob er maður
með glæsta fortíð á sviði knatt-
spyrnugaldra. Hann framdi mik-
inn seið fyrir mikilvægan leik Tógó
gegn Ghana. Það virkaði heldur
betur. Allir bestu leikmenn Ghana
hrundu niður í pestum og kvillum
fyrir leikinn - og Tógó vann.
Fremra-Hálsættin heldur því
nokkuð viss um þokkalega niður-
stöðu til fótboltafundar klukkan 13
í dag. Jakob seiðskratti mun ekki
bregðast sínum mönnum fremur en
endranær.
Höfundur er alþingismaður
Samfylkingarinnar
Af http://web.hexia.net/roller/page/
ossur//
Afglöp Geirs
Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur.
Sjálfstæðisflokkurinn var í lykil-
stöðu við myndun ríkisstjórnar
Geirs H. Haarde. Það var því óskiljan-
legt hvernig þeir klúðruð málum og
fórnuðu Sigríði Önnu Þórðardóttur
umhverfisráðherra. í reynd má segja
að hún hafi misst ráðherrastólinn
vegna afhroðs Framsóknarflokks-
ins í sveitastjórnarkosningum svo
einkennilega sem það nú hljómar.
Framsóknarmenn voru í engri stöðu
til að gera tilkall til sex ráðherrastóla,
enda lætur Halldór Ásgrimsson sjálf-
viljugur af embættinu eftir afhroð í
sveitastjórnarkosningunum. Samt
lét formaður Sjálfstæðisflokksins sér
ekki nægja, eftir hjaðningavígin og
leðjuslaginn í valdabröltinu innan
Framsóknarflokksins, að draga fram-
sóknarmenn upp úr drullupollinum
í stað þess efna til kosninga eins og
eðlilegast hefði verið. Afglöp Geirs að
fórna einum manni úr sínum röðum
við ríkisstjórnarborðið eru hreint
ótrúleg. En Sjálfstæðismenn gerðu
gott betur.
Tilgangurinn
helgar meðalið
Þeir afhentu
flokknum sem kjós-
endur hafa hafnað
aftur og aftur í kosn-
ingum og skoðana-
könnum - flokknum
sem beið afhroð í
síðustu kosningum
- nær helminginn af stjórnkerfi borg-
arinnar og drösluðu þeim með sér í
sveitastjórnir víðsvegar um landið.
Tilgangurinn helgar meðalið. Þeir
eru að teppaleggja fyrir áframhald-
andi stjórn valdabandalags Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks eftir
næstu kosningar. Þetta heitir að gefa
lýðræðinu og kjósendum langt nef.
Hentug hækja
Formaður Sjálfstæðisflokksins
hlýtur að skulda flokksmönnum
sínum skýringu á þessum afleik.
Beinast liggur við að ætla að þetta
sé liður í áætlun sjálfstæðismanna
að endurreisa Framsóknarflokkinn,
þannig að mögulegt sé að framlengja
núverandi stjórnarsamstarf enn einu
sinni að loknum næstu kosningum.
Það er skiljanlegt útfrá hagsmunum
Sjálfstæðisflokksins. Þeim þykir
Framsóknarflokkurinn hentug
hækja, sem er tilbúin að fórna stefn-
unni og baráttumálum fyrir valda-
stóla. Sjálfstæðismenn hafa ráðið
ferðinni í stjórnarsamstarfinu og
beygt framsóknarmenn í hverju mál-
inu á fætur öðru. Næst verður það
Ibúðalánasjóður. Framsóknarmenn
hafa í samstarfi við íhaldið framfylgt
harðri markaðshyggju, sem bitnað
hefur harðast á þeim sem síst skyldi í
þjóðfélaginu. Fólkið hefur ekki verið
í fyrirrúmi heldur sérhagsmunir
fárra. Límið sem heldur flokkunum
saman eru valdastólarnir ekki mál-
efnin. Verkefni Samfýlkingarinnar
á næstu mánuðum er að sundra blá
græna valdabandalaginu og koma á
sterkri stjórn jafnaðarmanna sem
hefur hagsmuni allrar þjóðarinnar
að leiðarljósi.
Höfundur er alþingismaður
Samfylkingarinar
Af www.althingi.is/johanna
Jóhanna
Sigurðardóttur
rif*ÖJ2ílíi
ÚLFLJÓTSVATNI
Upplýsingar og skróning á netinu:
www.ulfljotsvafn.is
- Sparkleikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Ú+ilíf - Kassabílaaks+ur - Su»/d -
Fyrir stráka og stelpur 8-1 2 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandi!
%%
ii
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvafn.is