blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöið 38 I fói AF HERNAÐAR- AÐGERÐUM Smáborgarinn er ekkert sérlega vel að sér í hernaðaraðgerðum. Smáborgarinn er yfirlýstur friðarsinni og telur að leysa megi úr málum án þess að til handalög- mála komi. Vissulega geta menn æst sig eins og gerist og gengur þegar öndverðir pólar mætast en siðaðir menn leysa sinn ágreining með siðvöndum hætti. Smáborgarinn hefur komist að þeirri nið- urstöðu að stríð snúist um græðgi. Burt séð frá því hvernig menn kjósa að skilgreina styrjaldirþærsem þeirreka.Stríð- ið sem fslendingar studdu svo dyggilega, á lista hinna staðföstu þjóða, hefur verið skil- greint af Bandaríkjamönnum með margvís- legum hætti. Ein er sú, og margfræg orðin, að stund- um verði menn að fara í stríð til að varð- veita friðinn. Stríð og friður hafa enda alltaf verið andstæður í huga Smáborgarans en það er liklega hægt að fá sprenglærða hern- aðarsérfræðinga, já eða áróðursmeistara til að útskýra lögmálið að baki henni með óútskýranlegum en næstum sennilegum hætti. Önnur skýring á innrás Bandaríkja- mann í Irak er sú að nauðsynlegt hafi verið að breiða út lýðræðishugsjónina í þessum heimshluta. Hann hefur í gegnum árin hall- ast á þá skýringu að lýðræði sé bara ein leið til að skipta um valdhafa án þess að þurfa að drepa þá. Stríðið í Irak gæti reyndar enn fallið undir þá skýringu. Það sem Smáborgarinn á þó óskaplega erfitt með að kokgleypa er að þrjú sjálfsvíg, sjálfsvíg fanga (hámarks öryggisfanglesi, sem setið hafa á bakvið lás og slá án nokk- urra ákæra í fjögur ár, geti talist hernaðar- aðgerð. Þegar Smáborgarinn heyrði þá skýringu á sjálfsvígunum fór um hann ógeðshrollur. Vissulega er ekki hjá því litið að menn sem lýsa yfir stríði gagnvart öðrum þjóðum hljóta, eðli málsins samkvæmt, að bera tak- markaða virðingu fyrir mannslífum. Smá- borgarinn getur jafnvel gengið svo langt að segja að þjóðarleiðtogi sem lýsir yfir stríði hefur algerlega brugðist hlutverki sínu, enda er stríð óregla og meginhlutverk þjóð- arleiðtoga erað halda uppi reglu. Smáborgarinn er töluvert meira en hugsi yfir útskýringum ráðamanna á sjálfs- vígunum í Guantanamo-búðunum. Hann er orðinn verulega reiður og fullur fyrirlitn- ingar á skeytingaleysinu sem heimurinn hefur sýnt gagnvart þeirri gagnrýni sem Bandaríkjamenn hafa sætt vegna þessara ógeðfelldu búða þarsem mannréttindi eru ár eftir ár virt að vettugi. En kannski veit Smáborgarinn bara ekki neitt. Sjálfsvíg hafa jú verið hluti af hernaðaraðgerðum um árabil. Það bara rímar ekki þegar þeir semfalla erufangar. HVAÐ FINNST ÞÉR? Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar Er lítið að gera á skrifstofunni? „Það hagar þannig til að við erum þessa stundina að innleiða breytt lög um atvinnuleysistryggingar sem taka gildi í. júlí nk. en frá þeim tíma munu atvinnulausir fá tekjutengdar bætur. Það má segja að við séum á haus við að gera þær breytingar sem gera þarf. Það er auðvitað gott að atvinnuleysi er lítið, og í ofanálag vinnur það með okkur í þessum breytingum.” Atvinnuleysi mældist aðeins 1,3% hér á landi annan mánuðinn í röð, og hefur ekki verið jafn lítið árum saman. Zappa allra kynslóða Um síðustu helgifórufram tónleikar hljómsveitarinnar Zappa plays Zappa. Það eru synir Frank Zappa, þeir Dweezil ogAhmet, sem standa aðframtakinu en Dweezil erjafnframt gítarleikari sveitarinnar. Þeir hafafengið til liðs við sig öfluga tónlistarmenn á horð við trommuleikarann Terry Bozzio, gítarleikarann Steve Vai og saxófónleikarann ogsöngvar- ann Napoleon Murphy Brock. Það var þéttsetið í Hafnarhúsinu og virtust tónleikagestir aföllum aldri skemmta sér vel. Það kom reyndar á óvart hversu margir á staðnum voru augljóslega ekkifœddir þegar Frank Zappa var upp á sitt besta. Eyðslusöm konungsfjölskylda Sœnska konungsfjölskyldan eyddi meira en hundr að milljónum islenskra ferðalög á síðasta ári. Gustaf Adolf Svíakonungur og drottning hans, Silvia, lögðu á mánudag fram ársskýrslu sænsku konungsfjölskyldunnar. Þar kemur fram að konungsfjölskyldan eyddi litlum 1,2 miljónum evra sem eru meira en 113.000.000 íslenskra króna í skemmtanir og ferðalög á árinu 2005. Meirihluti þess kostnaðar sem sænskir skattgreiðendur bera vegna konungsfjölskyldunnar fer í viðhald á sænsku konungshöllinni og hús- eignum tengdum fjölskyldunni. Sá kostnaður er alls 10.3 miljónir evra. Þessi gríðarlegu útgjöld hinna konungbornu Svía fara fyrir brjóst- ið mörgum. Margir benda á að fjöl- margir viðburðir, svo sem skemmt- anir á vegum banka og annarra fyrirtækja, séu haldnir í konungs- höllinni og kostaðir af konungsfjöl- skyldunni og þar með skattgreiðend- króna í skemmtanir og um. Þetta þykir mörgum Svíum afar óviðeigandi og vilja þeir að bankarn- ir haldi sínar skemmtanir sjálfir eða að minsta kost greiði fyrir þær. © Jlm Ungar/dlsl. by United Media, 2001 eftir Jim Unger Geturðu skipt 50-kalli? Ég þarf að skilja eftir eitthvert þjórfé. 8-21 HEYRST HEFUR... Tónleikar Roger Waters í Eg- ilshöll á mánudagskvöldið voru vel sóttir, og slá talsvert á þær sögu- sagnir sem g e n g i ð hafa, að tónleika- framboð hér á landi sé of mikið og almenn- ingur því hættur að mæta á þessar uppákomur. Augljós- lega mættu fjölmargir af þekkt- ari íslendingum á tónleikana, þar á meðal var Skúli Helgason framkvæmda- stjóri Samfylk- ingarinnar, en í fylgd með honum var Snorri Már Skúlason, fót- boltaáhuga- og sjónvarpsmaður. Aðrir sem létu sjá sig voru til að mynda Hannes Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, en þeir sem til þekkja segja að hann láti fáa tónleika hér á landi framhjá sér fara. Ennfremur sást til Jóhannsar Sigurðssonar, leik- ara í áhorfendaþvögunni, sem og Begga úr Söldögg. Eins og listinn hér að ofan ber með sér voru karl- menn á besta aldri fjölmenn- ir á tónleikum meistara Wat- ers, en það þýddi ekki að kvenþjóðin léti sig algerlega vanta. Meðal þeirra kvenna sem mættu til að hlýða á kapp- ann var borgarfulltrúinn Björk Vilhelmsdóttir. Waters var ákaflega pólit- ískur í flutningi sínum og flutti meðal annars nýtt lag þar sem stríðið í Irak er gagn- rýnt harðléga. Virtust tónleika- gestir taka boðskap lagsins vel og mikil fagnaðarlæti brutust út á nokkrum stöðum í laginu, sér í lagi þegar Bush Banda- ríkjaforseti og hlutdeild hans í stríðinu var sérstaklega nefnd þar á nafn. Gera má ráð fyrir að Davíð Oddsyni og Halldóri Ásgrímssyni hefði ekki liðið neitt sérlega vel á þeim hluta tónleikanna, hefðu þeir kosið að láta sjá sig í Egils- höllinni í fyrradag. Og áfram um tónlist. Þegar tilkynnt var hverjir skipa munu nýja ríkisstjórn kom í Ijós að hinn geðþekki fram- sóknarmaður, Magnús Stefáns- son, mun taka við embætti félagsmála- ráðherra. Það vita kannski ekki allir en sá kappi barði húðir og söng í þeirri marg- frægu sveit Uppliftingu, við góðan orðstír. Þeirra stærsti smellur í gegn- um árin hlýtur að teljast lag- ið „Traustur vinur“. Nú velta menn því fyrir sér hvort Magn- ús hafi lært eitthvað af flutn- ingi þessa frábæra dægurlags og muni reynast hópum á borð við öryrkja og aldraða traustur vinur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.