blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 26

blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaðið •FRUMSÝM ÁLFABAKKA SAMl-úmt 1 SHE'STHEMAN 10.350-5^58.1050 SHE'STHEMANVIP KL3J0-5?«5-8-10-.20 P0SEID0N KL 3.-405508-10:10 X-MEN3 KL 350-5:45-8-10:20 AMERJCAN DREAMS 10.550-10:10 SHAGGYDOG KL 3:40550 Ml:3 KL 8-1050 SCAHY MOVIE 4 KL4-8 KRINGLUNNI-— SáMLhllÆl SHE'STHEMAN KL 5:45-8-10:15 POSEIDON KL 6-8-10:10 AMERICAN DREAMZ KL8 Ml:3 KLlEklO SHAGGYDOG KLi KEFLAVÍK POSEIDON KL8 X-MEN3 KL8 THE DA VINCICODE KL 10:10 THEINSIDE MAN KLIO AKUREYRI lUKtTKI 'nmb sáminm SHE'STHEMAN POSEIDON KL8-10 KL 8-10 POSEIDON KL 7-9-11 THE DAVINCI CODE KL 6-8-10 Ml:3 KL 5:30-8-10 THE SHAGGY DOG KLi-8 J smúRn{ kl. 3.40,5.50,8 og 10.10 THEOMEN B.L16ARA kl. 5.30,8 og 10.30 X-MEN 3B.L12ÁRA W. 5.40,8 og 10.20 DAVINCICODE ld. 5,8og 11 B.L 14ÁRA DAVINCICODE ÍLÍIXUS kl. 5, 8 og 11 B.L14ÁRA RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL kl.3.40 ÍSÖLD 2 ÍSLENSKT TAL kl.3.40 kl. 5.50,8 og 10.10 THEOMENB116ÁRA W. 5.30,8 og 10.30 16-BLOCKS kl. 8 og 10.10 B.L 14 Ara DAVINCICODE W. 6og9 B.L14ÁRA RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL W.6 THE 0MENB116ARA W. 5.45,8 og 10.10 16-BLOCKS W. 6,8og10.10Bl 14ARA W. 6,8,10 16-BLOCKS W.8B.L14ARA X-MEN3B112ARA W. 6 THE OMEN B.L16ARA W.10 'Huri/.irlmA □3 Dolby /DD/ 34 I AFPREYING Hvað er að gerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði líðandi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladid.net. 09.00 - Fyrirlestur Orkuseminar: Abundant En- ergy and Decarbonization: Visions and Available Options. Fulltrúar frá orkufyrirtækjum og stofnunum á íslandi flytja erindi um sjálfbæra nýtingu orkuauðlindanna. Háskóli íslands - Hátíðarsalur 10.00 - Arsfundur og málþing Ársfundur og málþing Stofnunar fræðasetra Háskóla Islands í samstarfi við Þróunarfélag og Fræðslunet Austurlands : Sjálf- bærni og þekkingarsamfélög á íslandi. Daginn áður munu vinnuhópar ræða markmið, þörf fyrir og mikilvægi þess að byggja upp þekkingarstarfsemi utan höfuðborgarsvæðisins. Eiðar á Fljótsdalshéraði 13.00 - Opnun Stofnun Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun og þverfaglegar rannsóknir verður opnuð af menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Megin- hlutverk stofnunarinnar er að vera vettvangur fyrir þverfræði- legar rannsóknir, samstarf og fræðslu um sjálfbæra þróun, um- hverfi, samfélag og efnahag. Háskóli fslands - Askja stofa 132 13.00-Sýning ASf-FRAKTAL-GRILL Huginn Þór Arason og Unnar Örn J. Auð- arson unnu sýninguna í samein- ingu með safnið í huga. Lista- mennirnir reyna að fletta ofan af illsýnilegum, óskráðum en kannski augljósum hliðum þess samfélags/umhverfis sem þeir starfa innan. Listasafn ASÍ, Freyjugata 41 16.00 - Fyrirlestur Maria Cauhépé meistarverkefni sitt Integrated Coastal Manage- ment in Reykjavík. Háskóli íslands - Oddi stofa 101 16.00 -Fyrirlestur Silja Dögg Andradóttir gengst undir meistarapróf við Lækna- deild Háskóla Islands og halda fyrirlestur um verkefni sitt: Áhrif Sprouty-genafjölskyld- unnar á virkni PDGFþR-tengdra æxlisgena. Háskóli íslands - Læknagarður 17.30-Jóga Hláturkætiklúbburinn verður með opinn hláturjógatíma. Um- sjón hefur Ásta Valdimarsdóttir hláturjógaleiðbeinandi. Allir vel- komnir. Aðgangseyrir 1000 kr. Borgartúni 24,105 Reykjavík 20.00 -Tónlist Píanótónleikar Pianistic Portaits Salurinn Miðasala á midi.is 20.00 -Tónlist Steini (úr Hjálmum) og Sig- ríður Eyþórsdóttir spila á kaffi Hljómalind í kvöld. Ekkert aldurstakmark. Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffihús 20.30 -Tónlist Félag harmonikuunnenda í Reykjavík halda tónleika í kvöld. Hljómsveitir undir stjórn Guð- mundar Samúelssonar og Reynis Jónassonar, ásamt einleikurum leika fjölbreytta harmonikutón- list við allra hæfi. Miðasala við innganginn. Tónlistarskóli Garðabæjar Ham spilar á Nasa Ham kemur núfram íþriðja skiptið síðan 1994 og verða stórtónleikar þann 29. júní. Þetta er ein afmerkilegri hljómsveitum íslenskrar tón- listarsögu og ásamt Ham munu drengirnir í 9/11’s troða upp. Ham þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en sveitin hóf feril sinn árið 1988. Sveitin málaði bæ- inn rauðan með tónleikahaldi og krafti næstu ár. Það eru ugglaust margir sem ósjálfrátt fara að hreyfa höfuðið í taktfastri sveiflu þegar þeir rifja um tónleika í Norðurkjallara MH eða á Duus húsi. Nasa er svipað Tunglinu Ham heldur tónleika á Nasa í lok mánaðarins, þann 29. júní. „Þetta eru ekkilokatónleikar eða eitt- hvað svoleiðis, ég held að þeim hafi einfaldlega fundist svona skemmti- legt að spila saman í Höllinni í janúar og séu þess vegna að koma saman núna. Þeir hafa verið að æfa eitthvað nýtt efni en vilja lítið gefa út um hvað það sé,“ segir Grímur Atlason tón- leikahaldari. „Nasa er einmitt rétti staðurinn fyrir hljómsveit eins og Ham, honum svipar til Tunglsins þar sem þeir spiluðu mest hér áður fyrr,“ segir Grímur ennfremur. Langur ferill en lítið spilað undanfarið Stuttskífan Hold kom út árið 1988 og er hún fyrir margar sakir merkileg. Þar má finna lög eins og: Hold, Svín, Auður Sif, Transylvanía og Trúboðss- leikjari. Buffalo Virgin kom út ári síðar og var stefnt á heimsfrægð. Þrátt fyrir hæfileika, frábært efni og síðast en ekki síst frábæra sviðsframkomu varð ekkert úr heimsfrægð Ham. Aðrar plötur Ham eru Saga Rokksins 1988 til 1993, Dauður Hestur og fleiri tónleikaplötur. Ný lög í bland við gömul Ham lagðist í dvala eftir magnaða tónleika í Tunglinu þann 4. júní 1994. Hún hefur komið fram í kringum tvo viðburði síðan. Fyrst þegar Rammstein komu til landsins árið 2001 og síðan á Hætta tónleikum í Laugardalshöllinni þann 7. janúar sl. En í þetta sinn leikur sveitin ný lög í bland við gömul og má búast við sveittu stuði á Nasa. Húsið opnar kl. 21 og stíga 9/11’s á svið kl. 22. Miða- verð er aðeins 2.000 kr. og mjög tak- markaður fjöldi miða er i boði. Miða- sala hefst á morgun 15. júní kl. 10 á midi.is og í verslunum Skífunnar auk valdra BT verslana. kristin@bladid.net Footloose á Stóra sviði Borgarleikhússins Þann 29. júlí verður söngleikurinn Footloose sýndur ífyrsta skipti á Norðurlöndum. Footloose er mjög þekkt verk og þó að það hafi ekki verið sett upp á fjölum leikhúsannahérálandihefurþaðnotið vinsælda í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. Æfingar eru nú hafnar á verkinu sem frumsýnt verður á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu 29. næsta mánaðar. Verkið fjallar um íbúa lítils bæjar úti á landi þar sem dans hefur verið bannaður með lögum um ára bil. Unga fólkið í bænum þarf því að leita út fyrir bæjarmörkin til að fá útrás fyrir dansþörfina. „Þetta breytist þó allt þegar ungur maðuraðnafniAronflyturtilbæjarins frá stórborginni þar sem dansæðið er allsráðandi. Uppreisnarseggurinn Aron er auk þess ástfanginn af Evu en hún er dóttir prestsins sem var í fararbroddi þeirra er vildu banna dansinn í upphafi. Fjölmargar aðrar skemmtilegar persónur koma einnig við sögu og ber þá helst að nefna þau Mikka og Söru, en samband þeirra og hnyttin tilsvör vekja oftar en ekki hlátur vinanna. Áður en langt um líður er allur bærinn farinn að dansa, meira að segja presturinn sjálfur,“ segir Rut Reykjalín upplýsingafulltrúi um söguþráðinn. „Æfingarnar ganga vel og krakkarnir koma fram á Grímunni og verða víða með atriði úr söngleiknum á þjóðhátíðardaginn,“ segir Rut. Grifflur, ennisband og túberað hár Flestir sem hafa nokkurn tímann sett upp grifflur, ennisband eða túberað á sér hárið muna eftir dansmyndinni Footloose eftir Dean Pithcford sem kom út árið 1984. Einum 10 árum síðar var söngleikurinn síðan settur á svið á Broadway og hefur hann verið sýndur víða um heim. Söngleikurinn er nú í fyrsta sinn settur upp hér á landi en einnig er um að ræða fyrstu uppsetningu á Footloose á Norðurlöndum. Þorvaldur Davíð og Halla Sýningin státar af ungum og upprennandi leikurum, ásamt þeim eldri og reyndari, en þessi magnaða sýning er ekki aðeins stútfull af frábærum dansatriðum, en danshöfundur er Roine Soderlundh frá Svíþjóð, heldur innheldur sýningin fjölmörg lög sem slógu í gegn á níunda áratugnum. Ber þá helst að nefna titillagið Footloose, Holding out for a Hero, Almost Paradise og Let’s hear it for the Boy. Tónlistina þekkja flestir enda komust Halla Vilhjálmsdóttir Mynd/Björg Vigfúsdittlr leikur eitt aðalhlutverkanna í Footloose mörg laganna á topp 40 listann í Bandaríkjunum á sínum tíma og því er upplagt, nú tuttugu árum síðar, að dusta rykið af dansskónum, setja Footloose á fóninn og kveikja í gömlum dansglæðum. Leikstjórn er í höndum Unnar Aspar Stefánsdóttur en með hlutverk fara meðal annars Þorvaldur Davíð KristjánssonogHallaVilhjálmsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Jörundur Ragnarsson og Aðalbjörg Árnadóttir.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.