blaðið - 14.06.2006, Blaðsíða 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
VILJINN TIL KYRRSTÖÐU
Fréttir af brjálsemislegu matvælaverði á íslandi eru hættar að vekja
athygli. Þjóðin sýnist hafa sætt sig við hlutskipti sitt rétt eins og
íbúar Sovétríkjanna gerðu þar til örmagna og rökþrota valdastétt
komst að eftirfarandi niðurstöðu: „við getum ekki haldið áfram að lifa
á þennan veg”. Sennilega þarf hið sama gerast á fslandi áður en fram
kemur skýr pólitískur vilji um að lækka verð á nauðsynjum og færa það
nær því sem tíðkast í siðmenntuðum ríkjum.
Á dögunum var greint frá verðkönnun sem ASf lét framkvæma í öllum
höfuðborgum Norðurlanda. Búin var til svonefnd „karfa” þ.e.a.s. sami
varningur var keyptur í verslunum í borgunum fimm. Niðurstaðan var
kunnugleg; karfan reyndist dýrust á íslandi. í Stokkhólmi kostaði téð
karfa helming þess sem fyrir hana þurfti að reiða fram í höfuðstað fs-
lands. Og hafa ber í huga að borið saman við Evrópu eru matvæli dýr á
Norðurlöndum.
Þessi frétt vakti litla athygli. Og vísast er það skiljanlegt. Því verður
seint haldið fram að fréttin geti talist ný eða inntak hennar byltingar-
kennt. Svona er þetta bara á íslandi, segja sumir. Hinir upplýstu minna
á að það sé nú búið að skipa nefnd til að fara yfir málið.
Mikið rétt. Nefnd hefur verið skipuð. Það gerði Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra í janúarmánuði. Nefndinni er ætlað að kanna orsakir
þess að matvælaverð er hvergi hærra á byggðu bóli en á íslandi. Telur
einhver að nefndin muni leiða í ljós ný og áður óþekkt sannindi í þessu
efni? Vitaskuld ekki; nefndir eru enda iðulega skipaðar til að leiða fram
hið augljósa. Það er gert til að vinna tíma og fresta óhjákvæmilegum
ráðstöfunum.
Samþjöppun og fákeppni einkennir matvörumarkaðinn. Um það þarf
ekki að deila. Stjórnvöld stuðla hins vegar beinlínis að tryllingslegu mat-
vælaverði með innflutningshöftum, verndarstefnu og miklum álögum.
Engin þörf er á að skipa nefnd til að leiða þetta í ljós. Og nefndar
er ekki þörf til að benda á leiðir til úrbóta. Þær blasa við. I þessu efni
skortir pólitískan vilja. Þetta á sérstaklega við um íslenskan landbúnað
sem hefur staðið hjá og fylgst með markaðsvæðingu undanliðinna ára
úr öruggri fjarlægð. Stjórnmálamenn skortir vilja til að taka á kerfinu.
Það er birtingarmynd dapurlegs geðleysis; almennt og yfirleitt er enda
best að breyta sem minnstu. Þetta vissu þeir, strákarnir í Sovétríkjunum
fyrr á tíð.
Og þannig verður þetta þar til nauðsynlegt verður í pólitísku tilliti
að rjúfa kyrrstöðuna. Líklega verður sú ákvörðun birtingarmynd pólit-
ískrar örvæntingar, trúlega sökum hrakandi stuðnings og vinsælda.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar Hádegismóum 2,110 Reykjavík.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
MARKISUR
www.markisur,com
Dalbraut 3,105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
14 I ÁLIT
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaðÍA
Vlí^lTiÍNW G/lrÍGfl SaMHfrfrllL
TiL rlfiSnJ ffoMf/Gfí
Aö flýja sökkvandi skip
Mannabreytingar hjá hægri stjórninni,
sem nú situr sitt þriðja og vonandi síð-
asta kjörtímabil, hafa verið afar tíðar
að undanförnu. Má segja að flótti sé
brostinn á liðið. Þeir flýja sökkvandi
skip eins og rottunar forðum, enda
ekki að undra. Fátt annað blasir við
fleyinu en botninn. Steininn tók úr
þegar formaður Framsóknar elti Árna
krónprins. Nú vinna þeir bráðum
báðir í banka. Halldór í seðla og Árni
í alvöru.
Á meðan þessar breytingar allar
hafa átt sér stað hefur ríkisstjórnin
gerst sek um mikla vanrækslu við
stjórn landsins sem birtist nú í hækk-
andi verðbólgu og óskýrri framtíð
fjölmargra lykilstofnana. Þessi ríkis-
stjórn hefur sýnt það aftur og aftur
að hún situr ekki til að gera þjóðfélag-
inu gagn heldur snýst hún eingöngu í
kringum sjálfa sig og völdin. Og við
borgum siðan brúsann eftir þetta
tilgangslausa brölt. Almannahags-
munir eru fyrir borð bornir enda
stólar handa fimm prósent Framókn
málið. Helmingaskipti um bitlinga og
völd. Ot á það gengur hægri stjórnin.
Frekari ráðherrabreytingar í ágúst?
Á síðustu þremur árum hafa verið hér
fjórir utanríkisráðherrar, þrír forsætis-
, umhverfis-, og félagsmálaráðherrar,
tveir fjármála-, iðnaðar- og viðskipta-,
heilbrigðis- og trygginga-, mennta-
mála-, og sjávarútvegsráðherrar. I
slíkum hringlanda er ekki hægt að
gera ráð fyrir því að mikið verk vinn-
ist og sjáum við þess nú merki víða í
samfélaginu að hér hefur ekki verið
stöðug stjórn á mikilvægum málum.
Nú hefur Framsóknarflokkurinn
ákveðið að kosin verði ný forysta í ág-
úst. Valgerður Sverrisdóttir, sem tekur
senn við ráðuneyti utanríkismála,
hefur líst því yfir að hún sækist ekki
eftir formennsku í flokknum. Því má
gera ráð fyrir að nýr formaður muni
falast eftir utanríkisráðherrasætinu
eða trúir einhver að Guðni muni sitja
áfram f landbúnaðarráðuneytinu og
Katrín Júlíussdóttir
láta Valgerði utanríkismálin eftir ef
hann verður kjörinn formaður í ágúst?
Nei, hver sá sem kjörinn verður mun
vilja setjast í stól utanríkisráðherra
og því tel ég nokkuð ljóst að enn verði
hrókerað í ágúst og að fimmti utanrfk-
isráðherrann á kjörtímabilinu taki við.
Sem hlýtur að slá allnokkur met!
Stórir hópar súpa seyðið
afvanrækslunni
Á meðan ríkisstjórnin snýst f kringum
sjálfa sig þá er verðbólgan hér á bull-
andi siglingu uppávið. Stórir hópar
súpa nú seyðið af hringlandanum f rík-
isstjórninni. Fjölskyldur þessa lands
sem eru með miklar skuldir vegna
húsnæðislána súpa seyðið af þessari
vanrækslu í gegnum verðtrygging-
una. Lánin bólgna út og verðbólgan
étur upp eignir þessa fólks. Þessi
ríkisstjórn hefur ekki sinnt efnahags-
málunum og því er nú svona komið.
Eldri borgarar súpa seyðið af aðgerða-
leysi þessarar ríkistjórnar og er stór
hópur þeirra fastur í fátæktargildru
tryggingakerfisins. Hækkuð skatt-
byrði og frosin skattleysismörk hafa
komið harkalega niður á eldri borg-
urum. Þessi ríkisstjórn vinnur ekki
fyrir fólkið f landinu en hikar ekki við
að halda því fram að hér ríki stöðug-
leiki og að skattbyrði allra hópa hafi
lækkað! Þetta eru hrein og klár ósann-
indi sem þessir hópar finna glöggt á
eigin skinni.
Ærin verkefni jafnaðarmanna
Verkefnin sem bíða okkar jafnaðar-
manna eftir næstu kosningar eru ærin
eins og formaður Samfylkingarinnar
fór yfir í ræðu á flokkstjórnarfundi
okkar um helgina. Skora ég á alla þá
sem finna fyrir þessari vanrækslu rík-
isstjórnarinnar á eigin skinni að koma
með okkur í það mikilvæga verkefni
að byrja að byggja upp raunverulegan
stöðugleika og jöfnuð. Það er kominn
tfmi til að gefa þessari ríkisstjórn
frí því hún er gjörsamlega þrotin af
kröftum og hugmyndum. Eini valkost-
urinn er öflug Samfylking. Annars
situr valdabandalag hægri flokkanna
áfram. Og áfram.
Klippt & skoríð
klipptogskond@vbUs
Ohjákvæmilegur fylgifiskur hins
annars dásamlega sumars er sum-
arafleysingarfólk hjá hinum ýmsu
fyrirtækjum og stofnunum. Á meðan auðvelt
er að koma nýjum starfsmönnum inn í ákveðin
störf getur það verið flóknara annarsstaðar.
Fréttaskrif á mbl.is eru meðan þeirra starfa þar
sem hugsanleg mistök sumarstarfsmanna eru
yfirfarin og skoðuð af þúsundum landsmanna
á degi hverjum. Hvort sumarstafsmaður skrif-
aði eftirfarandi klausu er reyndar ekki vitað, en
klippari gerir hinsvegar fastlega ráð fyrir að
svo sé.„ Slagsmálbrutust út aðfaranótt laugar-
dags á veitingastaðnum Drifanda í Vestmanna-
eyjum, en þar höftu dyraverðir staðarins lent
í átökum við tvo gesti sem voru með læti þar
inni. Var lögreglan kölluð til og þurfti að beita
úðavopni og kylfum til að róa mennina niður“.
Klippari veit ekki hvaða aöferðir eru notaðar
við að róa æsta starfsmenn Morgunblaðsins,
en vonar að til þessu séu ekki notaðar kylfur
og úðavopn.
VAIGERDUR SvERRISDÓITIR
mun taka við emb-
ætti utanríksiráð-
herra á morgun. Það vakt
mikla athygli um helgina að
frúin tilkynnti að hún hyggð-
ist ekki leiða varnarviðræður
milli Islands og Bandaríkjanna,
heldur mun Geir H. Haarde fá þann „ánægjulega"
heiður. Þær skýringar sem gefnar voru þykja
ekkert sérlega trúverðuglegar, þ.e. að „með
því fái menn samfellu í þessar viðræður" eins
og verðandi utanríkisráðherra orðaði það um
helgina. Telja menn miklu
fremur að ástæðunnar sé að
leita í þeirri staðreynd að
Valgerður hafi ekki treyst sér
til að leiða viðræðurnar, ekki
síst í Ijósi þeirrar staðreyndar
að hún ku ekkert sérstklega
fær í enskunni, sem hlýtur að
vera talsverður akkilesarhæll þegar hafa á sam-
skipti við ráðamenn í Washington. Klippari veit
hinsvegar ekki betur en að Valgerður sé gift
Norðmanni og tali það tungumál reiprennandi.
Klippari vill því gera það að tillögu sinni að
Valgerðurverði eftirallt saman látin stýra varn-
arviðræðunum en að rætt verði við aðra aðila
en Bandarikjamenn. Norskur her í Keflavik og
klippari væri viss um að landinn myndi upplifa
sig miklu öruggari en hann gerir í dag.