blaðið - 14.06.2006, Síða 24
32 I MEWNING
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaðið
Ashkenazy stjórnar Sinfóníunni
McEwan
verdlaun-
adur
Breski rithöfundurinn Ian McE-
wan hlaut á dögunum elstu
bókmenntaverðlaun Bretlands,
James Tait Black Memorial
Prize, fyrir skáldsögu sína Sat-
urday. Bókin segir frá lífi tauga-
skurðlæknis og fjölskyldu hans
á deginum þegar mótmælaað-
gerðir voru haldnar í London
vegna stríðsins í írak.
Verðlaunin voru stofnuð
árið 1919 og meðal höfunda
sem hafa hlotið þau eru DH
Lawrence, EM Forster, Evelyn
Waugh og Irish Murdoch. Saka-
málahöfundurinn Ian Rankin
mun veita McEwan verðlaunin
við athöfn í Edinborg í lok
mánaðarins.
Fimmtudaginn 15. júní í Háskólabíói
verður frumflutt á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands nýtt verk
eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Verkið
er samið að beiðni Vladimir Ashk-
enazy, sem jafnframt mun stjórna
flutningi þess. Það hefur fengið
nafnið Sumartónar. Innblásturinn
sækir Þorkell í æskuminningar
sínar af sumardögum og kvöldum á
róluvellinum við Freyjugötu.
Á tónleikunum verða einnig á
dagskrá Fjórða sinfónía Tsjakov-
skíjs en hún skipar sér í hóp verka
á borð við fimmtu sinfóniu Be-
ethovens og Draumórasinfóníu
Berlios og hefur löngum verið talin
sjálfsævisöguleg.
Auk þess mun Bryndís Halla
Gylfadóttir leika sellókonsert eftir
Edward Elgar. Um verkið segir Árni
Heimir Ingólfsson tónlistarfræð-
ingur í efnisskrá: „Sellókonsertinn
er magnþrungin tónsmíð, full af
ástríðu og trega, eins og Elgar líti
um öxl og minnist þess sem áður
var. Hann hefst á tignarlegu eintali
einleikarans, sem minnir helst á
dramatískt „resítatív“ án orða og
Vladimir Ashkenazy. Hann er hljómsveit-
arstjóri á sinfóníutónleikum á fimmtu-
dagskvöld.
Fíasól leggur
land undir fót
Hjá Máli og menningu er komin
út Ferðabók Fíusólar eftir Krist-
ínu Helgu Gunnarsdóttur með
myndskrey tingum Halldórs
Baldurssonar.
Fíasól á ferðalagasjúka fjölskyldu
sem vill helst alltaf vera upp um
fjöll og firnindi. Oftast finnst Fíusól
líka gaman að ferðast en stundum
finnst henni nóg um ferðagleð-
ina. Þá er gott að kunna mikið af
leikjum, þrautum og gátum til að
stytta sér stundir. Með þessari bók
vilja Fíasól og besti vinur hennar,
Ingólfur Gaukur, kenna krökkum
hvernig hægt er að skemmta sér
konunglega á löngum bílferðum, á
tjaldstæðum, í skógarlundum og
sumarbústöðum.
í bókinni er meðal annars að
finna leiki til að leika í bíl, leiki til
að leika úti, leiki til að leika hvar
sem er, myndir til að lita, þrautir til
að leysa, gátur til að ráða, teiknisam-
keppni til að sigra í og sögur til að
hlæja að.
Rödd Mónu Lísu
Japanskir vísindamenn segjast hafa endurskapað rödd Mónu Lísu. Þeir mældu andlit og
hendur konunnar á þessu fræga málverki Leonardo Da Vinci og töldu sig þannig geta
áætlað hæð hennar og gerðu síðan líkan af höfuðkúpunni. Þeir Ijáðu henni siðan rödd
sem þeir segja að líkist rödd fyrirmyndarinnar á málverkinu. Þeir sem vilja heyra rödd
Mónu Lísu geta farið á slóðina http://promotion.msn.co.jp/davinci/voice.htm. Mona Lisa
talar þar ítölsku og sömuleiðis má heyra rödd listamannsins, Leonardos.
snýr aftur á lykilstöðum í verkinu.“
Vladimir Ashkenazy er hljóm-
sveitarstjóri á tónleikunum. Hann
hefur verið í hópi fremstu hljóðfæra-
leikara veraldar í nánast hálfa öld
og undanfarna áratugi hefur orðstír
hans sem hljómsveitarstjóra stöð-
ugt aukist. Hann kemur enn reglu-
lega fram sem píanóleikari víða um
heim, þó að hljóðfæraleikarinn hafi
stundum orðið að víkja fyrir hljóm-
sveitarstjóranum á seinni árum.
Efnisskrá tónleikanna
er eftirfarandi:
Hljómsveitarstjóri:
Vladimir Ashkenazy
Einleikari:
Bryndís Halla Gylfadóttir
Þorkell Sigurbjörnsson:
Sumartónar
Edvard Elgar:
Sellókonsert
PjotrTsjajkovskíj:
Sinfónía nr. 4 í f-moll op.36
Pianistic
Portraits
í kvöld kl. 20 heldur úkraínski pí-
anóleikarinn Roman Rudnytsky
tónleika í Salnum í Kópavogi sem
bera yfirskriftina Pianistic Portr-
aits. Á efnisskránni, sem er afar
fjölskrúðug, eru meðal annars verk
eftir Manuel Herrarte, Beethoven,
Chopin, Liszt, Ravel og Modest
Mussorgsky. Rudnytsky hefur áður
leikið í Salnum í september árið
2001 og þá ritaði Jón Ásgeirsson
meðal annars eftirfarandi um tón-
leikana í Morgunblaðið:
„...lokaverk tónleikanna var um-
ritun Liszt á forleiknum að Vil-
hjálmi Tell eftir Rossini. Forleikur-
inn var glæsilega fluttur og mörg
píanótæknileg atriði frábærlega
útfærð. Roman Rudnytsky er tek-
nískur píanóleikari sem lætur vel
að leika svonefnd „píanistaverk“
þar sem skáldað er aðeins í tækn-
ina tækninnar vegna, en á samt
til að leika fallega rómantískar
tónhendingar...“
Roman Rudnytsky er þekktur pí-
anóleikari frá Ukraínu og reyndur
konsertpíanisti, sem hefur ferðast
vítt og breytt um heiminn til að
halda tónleika. Á ferli sínum hefur
hann spilað við fjölmörg þekkt tón-
Roman Rudnytsky. Leikur á tónleikum í
Salnum næstkomandi miðvikudagskvöld.
listarhús, en hann hefur ekki síður
áhuga á að spila við óhefðbundnar
aðstæður, og fyrir áheyrendur sem
sjaldan upplifa klassíska tónlist.
SU DOKU talnaþrautir
Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
9 3 6 4
5 1 6 7
2 6 9
5 7 9
8 9 1
6 8 3
3 9 8
5 9 6 2
8 4 7 6
Lausn síðustu gátu
9 4 3 5 6 7 1 2 8
5 6 7 8 1 2 9 3 4
8 1 2 9 3 4 5 7 6
1 5 9 6 4 3 2 8 7
2 3 8 1 7 5 6 4 9
4 7 6 2 8 9 3 1 5
6 8 4 3 5 1 7 9 2
7 9 1 4 2 6 8 5 3
3 2 5 7 9 8 4 6 1