blaðið - 14.06.2006, Side 29

blaðið - 14.06.2006, Side 29
blaðið MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 DAGSKRÁ I 37 Ekki faðir barna sinna? Madonna hrœdd við tengdamömmu Söngvarinn Michael Jackson gæti átt það á hættu að missa forsjána með tveimur af þremur börnum sínum ef sögusagnir reynast sannar um að hann sé ekki raunverulegur faðir þeirra. Debbie Rowe, fyrrverandi eig- inkona Jacksons, gaf eftir löglegt for- ræði yfir þeim Paris, sem er átta ára, og Prince Michael, sem er níu ára, fyr- ir dágóða summu fjár frá Jackson. Ro- we sem vill nú hafa meiri samskipti við börnin heldur því fram að Jack- son hafi numið börnin á brott þegar hann fór með þau til Bahamaeyja en hún segir að börnin hafi verið með fölsuð vegabréf. Söngvarinn, sem hef- ur staðið í löngum og erfiðum mála- ferlum að undanförnu, segir að hon- um hrylli við tilhugsunni um frekari dómsmál og að missa börnin sín. Matt Damon orðinn pabbi Stjarnan úr Bourne Supremacy, Matt Damon, eignaðist dóttur í Miami á sunnudagskvöldið. Þetta er fyrsta barn leikarans en eigin- kona hans, Luciana Bozan, á átta ára gamla dóttur, Alexiu, úr fyrra hjónabandi. Móður og dóttur heils- ast vel og eru þau hjónina ákaflega lukkuleg með nýja fjöl- MR skyldumeðliminn. Ný- • ~ lega tilkynnti Damon Oað hann væri mjög glaður yfir því að k vera að eignast k dóttur og Al- I exia, stjúpdótt- V ir leikarans ' kynþokkafulla, óskaði þess heit- | ast að eignast litla systur. Söngkonan, Madonna, sem getur komið fram klædd upp eins og þræll, dansað djarfa dansa við leð- urklædda karlmenn og kysst Britn- ey Spears fyrir framan milljónir manna er hrædd við tengdamóður sína. Madonna er gift breska kvik- myndagerðmanninum Guy Ritchie og sagði hún nú fyrir stuttu í viðtali við blaðið Sunday Times að hún væri „algjörlega lafhrædd” við móð- ur mannsins síns. Poppdrottningin tilkynnti einnig nýlega að hún vildi binda enda á vinskap sinn við Britney Spears. Madonna kynnt smástirnið fyr- ir hinni dularfullu Kabbalah trú sem þær hafa iðkað saman und- anfarin misseri. Eftir að Britn- ey eignaðist sitt fyrsta barn ákvað hún að snúa baki við dulspeki gyðinga og tilkynnti nýlega á heima- síðu sinni að hennar nýja trú væri barnið hennar. Eftir þessa tilkynningu Britney getur Mad onna ekki hugsað sér að vera vinkona hennar lengur. BERMEO SVEFNSÓFI 1 1 \ A 1 \ 1 H Ú S G Ö G N 1-. SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 7100 • www.linan.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.