blaðið - 26.06.2006, Síða 1
b
■ TÓNLIST:
The Guardian
boðar Jakobínu
rínu í viðtal
Ný plata og
tónleikaferð til
London fram-
undan
| SlÐA 28
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
Hraðahemlar
til skoðunar?
Um helgina kastaði samgöngu-
ráðherra fram hugmynd um
að setja hraðahemla í alla bíla,
til að tryggja að ökumenn
keyrðu ekki of hratt. Upplýs-
ingafulltrúi Umferðarstofu seg-
ir slíkt vel koma til greina og
vill kanna hvaða útfærslur eru
mögulegar. Ritstjóri FÍB-blaðs-
ins er hinsvegar iangt í frá
ánægður með hugmyndina.
Hann segir að hver ökumaður
eigi að bera ábyrgð á sjálfum
sér.
„Það þarf enga hraðahemla ef
allt helst í hendur; góðir bílar,
góðir vegir, góð ökukennsla,
gott uppeldi og ábyrgir og
góðirökumenn."
| SÍÐA4
Fullur pelíkani í
umferðaróhappi
Pelíkanar hafa valdið töluverðum
usla á Laguna-strönd í Kaliforníu
í Bandaríkjunum að undanförnu.
Á dögunum flaug fullur pelíkani
á framrúðu bíls. Slíkt er afar fátítt
enda eru pelíkanar með ákaflega
góða sjón. Pelíkaninn er nú í haldi
yfirvalda sem láta gera að sárum
hans. Hann er grunaður um ölvun.
Dýraverndunaryfirvöldum á
svæðinu hefur borist fjöldi tilkynn-
inga um pelíkana sem hegða sér
einkennilega og ráfa um ofurölvi.
Ástæðan fyrir ástandi fuglanna er
talin sú að þeir hafi komist í eitraða
þörunga í fjörunni sem hafa ölvun-
aráhrif séu þeir étnir. Óttast er að
eitruðu þörungarnir geti leitt til
fjöldaárása sjófugla á menn og fer-
fætlinga. Slíkt gerðist árið 1961 þegar
þúsundir ölvaðra fugla réðust á bæ-
inn Capitola. Sú árás varð leikstjór-
anum Alfred Hitchcock innblástur
fyrir kvikmyndina The Birds sem
byggir lauslega á atburðunum.
Fullir pelíkanar geta verið hættulegir í
umferðinni.
Sérblað um
bíla fylgir
Blaðinu í dag
| SlÐUR 13TIL20
Blaöiö/Frikki
Sniglarnir voru með bifhjól sín til sýnis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum I gær. Fjöldi barna á öllum aldri fékk þar tækifæri til að fara á bak fákunum og sniglast um stiga garðsins.
Sjúkraflutningamenn verða fyrir
alvarlegu ónæði við störf sín
Sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn verða fyrir síauknu ónæði þegar þeir sinna störfum sínum í mið-
borg Reykjavíkur. Dæmi er um handalögmál milli ölvaðra einstaklinga og sjúkraflutningamanna.
EftirVal Grettisson
Sjúkraflutningamenn hafa orðið
fyrir alvarlegu ónæði og jafnvel lent
í ryskingum þegar þeir hafa hugað
að sjúklingum i miðbæ Reykjavíkur
um helgar að sögn Árna Oddssonar
varðstjóra Slökkviliðs Reykjavíkur.
Einnig ber á meira ónæði þegar
slökkviliðið athafnar sig í miðborg-
inni. Slíkt gerðist einmitt aðfara-
nótt sunnudags þegar kviknaði í
matsölustaðnum Purple Onion. Þá
þurfti lögreglan að hafa afskipti
af nokkrum einstaklingum sem
virtu ekki afmarkað svæði slökkvi-
liðsmanna. Árni telur vandamálið
ekki alvarlegt en segir að tilfinning
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna sé sú að næði þeirra hafi
minnkað undanfarin ár.
Sjúkraflutningamenn truflaðir
,Það hefur komið fyrir að sjúkra-
flutningamenn hafa verið truflaðir
alvarlega og jafnvel lent í handalög-
málumsegir Árni. Hann bendir
á að minni viðbúnaður sé hjá lög-
reglu þegar slökkviðilið athafni sig í
miðborginni um kvöld og nætur, en
þegar sjúkraflutningamenn séu þar
að störfum. Árni tekur þó sérstak-
lega fram að verulega gott samstarf
sé milli allra þessara aðila.
Hann segir ennfremur að ennþá
hafi ekki komið upp tilfelli þar sem
heilsu manna hafi verið stofnað í
hættu.
„Við erum ekki að skoða þetta til-
tekna vandamál sérstaklega en við
erum meðvitaðir um það,“ segir
Árni, enda komi slík tilfelli blessun-
arlega ekki oft upp. Hann telur ekki
að fólk sé orðið fjandsamlegra gagn
vart sjúkraflutninga- og slökkviliðs-
mönnumenbendiráað hugsanlega
megi rekja þessa þróun til þess að
skemmtistaðir séu opnir lengur og
að kannski sé virðingaleysi orðið al-
mennara en áður var í samfélaginu.
Ekki þörf á breyttu verklagi
Árni tekur fram að slökkviliðið og
lögreglan séu sífellt með það til end-
urskoðunar hvernig þessir aðilar
vinni saman sem og hvernig best sé
að haga málum á vettvangi. Þó sé
ekki á döfinni að breyta núverandi
verklagi enn sem komið er. Hann
biður fólk hinsvegar um að virða
vinnuaðstæður þessara hópa hvar
og hvenær sem er.
Samkvæmt upplýsingum frá Lög-
reglunni í Reykjavík verða lögreglu-
þjónar reglulega fyrir áreiti þegar
þeir koma a vettvang og reyna að
tryggja svæði fyrir sjúkraflutninga-
menn og slökkviliðið. Á síðasta
ári gerðist það meðal annars að
rænt var úr sjúkrabíl í Breiðholt-
inu meðan sjúkraflutningamenn
sinntu skyldustörfum. Var þá úlpa
sjúkraflutningamanns tekin ásamt
sjúkratösku.
Segir lögreglan að það sé sorgleg
staða þegar sjúkraflutningamenn
og lögregla þurfi að hafa sérstakt eft-
irlit með bílnum á meðan þeir sinni
útkalli.
valur@bladid.net
UTI
LÆGRI
VEXTIR
BILALAN
Finndu bara bílinn sem þig dreymir um og við sjáum um
fjármögnunina. Reiknaðu lániö þitt á www.frjalsi.is.
hringdu í síma 540 5000 eða sendu okkur línu á
frjalsi@frjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst!
FRJÁLSI
r|ÁRFESTINGARBA\KINN