blaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 2
2IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 blaöiö
. Heiðskirt'i Léttskýjað «Skýjað Alskýjað^f^4 Rigning JíUlsháttai^Í^ Rigning--^ Súld -■ Snjókoma-^^1* Slydda-^^ SnjóélÉíj-^Skúr
I" neilsu-
Hei
nor
ornið
Glerártorg Akureyri
‘Fyrir kpnur
á breytingaskeiði
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet/heilsuhorn.is
Útsölustaðir m.a: Yggdrasil, Fjarðarkaup, Maður lifandi, Ufsins lind -Hagkaup, Lyfjaval
og Árnes apotek Selfossi. Póstsendum um tand allt
liiLKjjlj'
Algarve 24
Amsterdam 22
Barcelona 27
Berlín 27
Chicago 17
Dublin 13
Frankfurt 23
Glasgow 16
Hamborg 24
Helsinki 21
Kaupmannahöfn 23
London 15
Madrid 31
Mallorka 30
Montreal 18
NewYork 24
Orlando 23
Osló 19
Paris 21
Stokkhólmur 22
Vín 31
Þórshöfn 10
blaði&=
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Hafði aldrei
fengið ökuréttindi
Mikið bar á hávaða- og ölvunarút-
köllum hjá lögreglunni í Keflavík
um helgina. Einnig var einn öku-
maður gómaður þar sem hann ók
bifreið þrátt fyrir að hafa aldrei
öðlast ökuréttindi.
Hinsvegar var rólegt hjá lögregl-
unni í Hafnarfirði um helgina. Á
sunnudagsmorgni var maður tek-
inn grunaður um ölvunarakstur
en hann hafði áður verið sviptur
ökuréttindum eftir að hafa ekið
undir áhrifum áfengis. Einnig
bar nokkuð á útköllum vegna há-
vaða í samkvæmum. Samkvæmt
lögreglunni mun helgin hafa
verið nokkuð góð en mikið er af
fólki í bænum vegna víkingahá-
tíðar sem fram fer á Fjörukránni.
Fór allt skemmtanahald slysa-
laust fram.
Ölvunarakstur í Reykjavík
Nokkuð bar á ölvunarakstri
í Reykjavík um helgina en tíu
manns voru grunaðir um slíkt
athæfi. Samkvæmt upplýsingum
frá varðstjóra á vakt er það
nokkuð meira en gengur og ger-
ist. Einnig kviknaði í veitinga-
staðnum Purple Onion í Hafnar-
stræti. Nokkur reykur myndaðist
en tjón var óverulegt. Talið er að
kviknað hafi í út frá eldofni sem
staðurinn notast við.
A166 km hraða á Hellisheiði
Lögreglan á Selfossi segir að
skemmtanahald hafi verið með ró-
legasta móti um helgina. Lítið sem
ekkert var tilkynnt umpústraeða
ryskingar. Ungur maður var þó
sviptur ökuréttindum á staðnum
þegar lögreglan stöðvaði hann á
Hellisheiðinni en hann ók á 166
kílómetra hraða. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu ók maður-
inn á Skoda og gera má ráð fyrir
að hann hafi svo sannarlega spýtt
grjóti í þetta sinn.
&KEYPIS TIL
80000
heimila og fyirtækja alla virka daga
blaöió
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 9020600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Reiöi starfsmanna langvinn og frek-
ari aögeröir gætu fylgt í kjölfarið
Starfsmenn IGS á Keflavíkurflugvelli lögðu niður störf í gærmorgun til að mótmæla lágum launum og
lélegri vinnuaðstöðu. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir brýnt að ná lausn í málinu.
Eftir Aðalbjörn Sigurðsson
InnanEússvandamál innan fýrirtæk-
isins IGS, sem leiddu til setuverkfalls
starfsmanna í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar í gær eiga sér langa sögu og því
komu aðgerðir starfsmanna Kristjáni
Gunnarssyni, formanni Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur ekki
á óvart. Eins og kunnugt er lögðu
starfsmenn fyrirtækisins niður störf
í gærmorgun til að leggja áherslur
á kröfur sínar um bætt kjör sem og
til að krefjast þess að vinnuaðstaða
þeirra verði bætt. Tala starfsmenn
um mikið vinnuálag sem og ófull-
nægjandi aðstöðu hjá fyrirtækinu.
„Þarna eru mikil og langvarandi
innanhússvandamál sem eru alger-
lega heimatilbúin af stjórnendum fyr-
irtækisins. Við vorum búnir að vara
þá lengi við, enda er mikil ólga og leið-
indi í öllum deildum þess. Þessi uppá-
koma í gær og þetta ástand sem hefur
myndast kemur því ekki á óvart,"
segir Kristján.
Komu ekki nálægt aðgerðunum
Hann fullyrðir að verkalýðsfélagið
hafi á engan hátt komið nálægt að-
gerðum starfsmanna um helgina, en
segist þó ekki hafa komist hjá því að
vita hvað stæði til.
„Við fengum hinsvegar huggulegar
kveðjur frá fyrirtækinu á dögunum í
formi hótana um málaferli og skaða-
bótaskyldu. Það hleypti í okkur illu
blóði. Trúnaðarmönnum okkar var
einnig hótað og þeir telja sig eiga
inni afsökunarbeiðni frá forráða-
mönnum fyrirtækisins. Starfsmenn
tóku þessum hótunum mjög illa og
hafa hótað að leggja niður vinnu fyr-
irvaralaust ef ekkert verður að gert,"
segir Kristján ennfremur.
Um sex hundruð hundar tóku þátt í sumarsýningu Hundaræktarfélags (slands sem fram fór í Relðhöllinni Víðidal um helgina. Meðal
þátttakenda var hundurinn Rambó sem sat stilltur og prúður eins og alvöru góðhundi sæmir meðan Svava, eigandi hans, gerði hann
sýningarhæfan.
Starfsmenn fá launahækkun
Nú liggur fyrir að starfsmenn IGS
munu fá allt að 21 þúsund króna
launahækkun á mánuði í tengslum
við nýgert samkomulag aðila vinnu-
markaðarins frá síðustu viku.
„Fólki finnst það hinsvegar alls ekki
nóg enda eru starfsmenn að kvarta
yfir mun fleiri atriðum en bara laun-
unum. Á þessum vinnustað er mikið
vinnuálag sem og aðstöðuleysi fyrir
starfsmenn. Þetta hefur verið svona
í langan tíma, þannig að reiðin sem
fékk útrás núna um helgina er bæði
djúpstæð og langvinn. Ég held að
þetta sé bara byrjunin, og við höfum
aðeins séð toppinn á ísjakanum,"
segir Kristján.
Ekki miklartafir
Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri
IGS segir að aðgerðir helgarinnar
hafi ekki kostað miklar tafir í
Leifsstöð.
„Þetta var í raun nokkuð lítilfjör-
legt og slapp vel. Hvað niðurstöðu að-
gerðanna varðar þá kom í sjálfu sér
ekki annað út úr þeim en að menn
ætla að tala saman á næstu dögum.
Það þarf augljóslega að höggva á
Aðgerðir starfsmanna IGS í Flugstöð Leifs Eiríkssonar ollu ekki miklum seinkunum á
flugi, eins og óttast hafði verið.
þann hnút sem upp er kominn. Það
þarf að finna einhvern flöt á mál-
inu svo sátt náist á vinnustaðnum,"
segir Gunnar.
Hann segir hinsvegar fráleitt að
trúnaðarmönnum á vinnustaðnum
hafi verið hótað.
„Það kemur mér spánskt fyrir
sjónir að menn segi að trúnaðar-
mönnum hafi verið hótað. Það er
verið að leita að sátt en ekki að hóta
mönnum. Við munum ræða við
starfsmenn næstu daga og fara betur
yfir málið og í framhaldi af því sjá
hvort ekki sé hægt að koma málinu í
þann farveg að allir geti unað sáttir
við sitt," segir Gunnar.
adalbjorn@bladid.net
Snyrtur fyrir sýningu
Saddam Hussein er ekki lengur í
hungurverkfalli.
Stutt hungur-
verkfall
Meint hungurverkfall Saddams
Husseins, fyrrum forseta Iraks,
stóð stutt yfir í síðustu viku.
Hussein neitaði að þiggja hádeg-
isverð á fimmtudag í fangelsinu
sem hann situr í til að mótmæla
því að einn af lögfræðingum
hans hafi verið skotinn til bana
en var orðinn svangur um
kvöldið og borðaði kvöldmat.
Réttað er yfir Saddam Hus-
sein vegna ásakana um glæpi
gegn mannkyni. Ennfremur er
réttað yfir nokkrum samstarfs-
mönnum Saddams, og fóru
þeir einnig í hungurverkfall
í síðustu viku. Þeir héldu það
heldur lengur út, slepptu þremur
máltíðum.