blaðið - 26.06.2006, Síða 16
24 I MENNING
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 blaöi6
Sýning á verkum Kandin-
skys opnuð í Tate Modern
Fátt er ljúfara en að gera sér ferð
til Lundúna og njóta alls þess sem
borgin hefur upp á að bjóða. Að
venju ættu listunnendur að geta
fundið margt við sitt hæfi þessa
dagana.
Um helgina var opnuð ný sýning á
Tate Modern á verkum rússneska
málarans Wassily Kandinskys
sem enginn áhugamaður um
abstraktlist ætti að láta framhjá
sér fara
Wassily Kandinsky fæddist í
Moskvu árið 1866. Hugur hans
hneigðist snemma til tónlistar og
hann náði fljótt mikilli leikni á hin
ýmsu hljóðfæri. Hann gekk mennta-
veginn og las lög og hagfræði við Há-
skólann í Moskvu. Að námi loknu
hóf hann að kenna við lagadeild
Háskólans. Hann hafði einnig mik-
inn áhuga á andlegum málefnum og
skrifaði margar greinar um þau mál.
Kandinsky byrjaði seint að mála.
Árið 1895 sá hann sýningu á verkum
frönsku impressjónistana og urðu
verkin honum mjög hugleikin. í kjöl-
farið ákvað hann að nema myndlist,
þá þrítugur að aldri. Hann hélt til
Múnchen til þess að læra grunnat-
riðin í teikningu. Fljótlega fór hann
að mála myndir sem voru ansi rót-
tækar og voru að mörgu leyti miklu
nýstárlegri en það sem impressjón-
istarnir höfu verið að gera.
Umdeildur listamaður
Verk Kandinskys voru til sýnis
um alla Evrópu frá 1903 og ollu oft
miklum deilum, bæði meðal almenn-
ings og listgagnrýnenda. Árið 1901
gekk Kandinsky í félag ungra mynd-
listamanna sem var kallað Phalanx.
Félagið rak listaskóla og skipulagði
sýningar sem gáfu ungum lista-
mönnum tækifæri til að koma sér á
framfæri. Kandinsky sýndi á vegum
hópsins, kenndi í skólanum og var
forseti félagsskaparins á árunum
1901 - 1903. Á árunum 1903-1908
ferðaðist Kandinsky víða til þess
að kynna sér listalíf Vesturlanda. Á
ferðalögum sínum vann Kandinsky
að hugmyndafræði listar sinnar og
gerði ýmsar áhugaverðar tilraunir
þar að lútandi.
Der Blaue Reiter
Kandinsky var einn stofnanda lista-
mannasamtakanna Der Blaue Reiter
í Munchen sem starfrækt voru á
árunum 1911-1914. Auk Kandinskys
voru þar ýmsir frægir listamenn inn-
anborðs, m.a. Klee, Marc, Macke og
Alexei von Jewskei. List þeirra gekk
mikið út á samþættingu allra þátta
í myndverki uns úr yrði heilstætt og
kröftugt myndsvið. Félagið leit ekki
bara til málverksins sem slíks heldur
tók það heilsteypta afstöðu til allra
listgreina og samfélagsins alls. For-
svarsmenn Der Blaue Reiter vildu að
listirnar kæmu fram sem ein heild
og töldu þeir að þannig væri hægt
að betrumbæta heiminn. Lögð var
áhersla á að miðla hinu innra sjálfi
í stað þess að móta verkin eftir ein-
hverjum ákveðnum stefnum og
stílum. Árið 1914 hraktist Kandin-
sky til Rússlands vegna heimsstyrj-
aldarinnar fyrri og 1917 réð hin nýja
ríkistjórn landsins hann til að taka
þátt í uppbyggingu lista í landinu.
Það starf náði hápunkti þegar Kand-
insky var ráðinn sem prófessor við
Háskólann í Moskvu og 1921 vann
hann einnig að uppbyggingu Lista-
háskólans í Moskvu.
Einn mesti áhrifamaður
sinnar kynslóðar
Árið 1922 hélt hann aftur til Þýska-
lands þar sem hann fór að kenna
við Bauhausskólann. Hann var
einn helsti áhrifamaðurinn þar á
árunum 1923-1928 og kenndi hann
við skólann uns honum var lokað af
nasistum árið 1933. Árið 1933 flutti
Kandinsky til Frakklands og settist
að í nágrenni Parísar. Þar bjó hann
allt til æviloka og sinnti list sinni af
miklum móð.
Harmsaga móður
„Tvö líf tóku enda eina kalda nótt
í apríl fyrir þrettán árum. Annað
var líf elsta sonar míns. Þú þarft
ekki að vera móðir til þess að
skilja hvað það þýðir, en kannski
geta aðeins foreldrar ímyndað sér
þann missi. Sonur minn lét ekki
lífið í árekstri eða flugslysi. Hann
var myrtur af glæpamönnum,
kynþáttahöturum, og þeir kom-
ust upp með glæp sinn. Þeir hafa
enn í dag ekki hlotið refsingu.
Hitt lífið sem rann sitt skeið
þennan dag taldi ég vera mitt
eigið. Síðan Stephen sonur minn
var myrtur af slíkum hroka og
fyrirlitningu hef ég lifað allt öðru
lífi, lífi sem ég ber varla kennsl á
sem mitt eigið.“
Á þessum orðum hefst bókin And
Still I Rise eftir Doreen Lawrence
sem nýlega kom út hjá Faber and
Er þór heitt?
Skrifstofu-
og tölvukœlar
líshúsió ehf Si 566 60001
Faber í Bretlandi. 1 apríl árið 1993
var hinn 18 ára Stephen Lawrence
myrtur á götu í Lundúnum. Eng-
inn var ákærður fyrir morðið. í
bókinni And I still Rise segir móðir
drengsins, Doreen Lawrence, sögu
sína. Hún rekur sögu fjölskyld-
unnar, segir frá erfiðri æsku sinni
á Jamaíka, lýsir deginum örlagaríka
þegar sonur hennar var myrtur og
þeirri miklu baráttu sem fylgdi í
kjölfarið. Doreen Lawrence lýsir af
næmni sársaukanum og reiðinni
sem heltók hana þegar ljóst varð að
ekkert yrði gert og enginn fengi að
gjalda fyrir glæpinn.
Doreen Lawrence og eiginmaður
hennar Neville hófu mikla baráttu
og urðu eins konar holdgervingar
mannréttindabaráttublökkumanna
á Bretlandi þó það hafi aldrei verið
ætlun þeirra í upphafi. Hjónin voru
ekki í vafa um það að eina ástæðan
fyrir því að lögreglan rannsakaði
ekki málið til hlítar var sú að sonur
þeirra var blökkumaður. Barátta
þeirra fyrir réttlæti varð til þess að
breyta ásýnd bresks réttarkerfis til
langframa en í kjölfarið lagði ríkis-
stjórnin fram áætlun um að breyta
aldagömlum breskum lögum sem
dore:
LAWRÉNCE
WLI /&*
Setking JmtÍK jor Stepboi
kveða á um að ekki megi ákæra
mann aftur fyrir glæp sem hann
hefur verið sýknaður af i öðrum rétt-
arhöldum. Baráttan reyndi þó svo á
hjónabandið að Doreen og Neville
slitu samvistum árið 2001. And still
I Rise kom út hjá Faber and Faber í
Lundúnum um miðjan júní og hefur
notið mikilla vinsælda.
Þó að erfitt sé að tala um einhvern
einn upphafsmann abstraktlistar þá
er ljóst að Kandinsky hafði mikil
áhrif á stefnuna og átti sinn þátt í
því hvernig hún hefur verið skilin
og upplifuð. Á sýningunni í Tate
eru yfir fimmtiu málverk og þrjátíu
teikningar - flestar frá yngri árum
Kandinskys. Nokkur verkanna hafa
aldrei verið sýnd áður og því er þetta
einstakt tækifæri til þess að fá að líta
þau augum.
Ny ævisaga
R.S. Thomas
Um helgina kemur út á Bret-
landi ný ævisaga ljóðskáldsins
R.S. Thomas eftir Byron Rogers.
Hann hefur löngum verið talinn
eitt besta trúarlega ljóðskáld
samtímans þó hann hafi ort um
allt milli himins og jarðar. Á
löngum ferli hlaut hann ýmsar
viðurkenningar fyrir störf sín og
má þar m.a. nefna tilnefningu til
Nóbelsverðlaunanna.
Hans er .þó síðast en ekki síst
minnst fyrir það starf sem hann
vann í þágu velskrar menningar
en hann unni tungumáli Wales-
verja ákaflega heitt og má segja að
hann sé eins konar þjóðskáld Wa-
les. Ronald Stuart Thomas fædd-
ist í Cardiff á Englandi árið 1913.
Hann gekk menntaveginn, fór í
gegnum guðfræðinám og vígð-
ist til prests í norð-austur Wales.
Hann hóf fljótlega að reyna fyrir
sér í ljóðlistinni og orti aðallega
á ensku þó velskan kæmi líka við
sögu. Thomas varð snemma tölu-
vert pólitískur og fremur íhalds-
samur í skoðunum. Honum var
mjög uppsigað við alla þá sem
hánn taldi reyna að vega að velskri
menningu og það komst í hámæli
MAN í|;HO WEN.T
INTO THt WEST
.
á níunda áratugnum þegar hann
hvatti til þess að gerður yrði að-
súgur að góðborgunum frá Lund-
únum sem áttu sumarhús í Wales.
Að öllu jöfnu var Thomas þó ró-
lyndismaður sem undi sér best við
fuglaskoðun á landsbyggðinni.
Ævisagan ber titilinn The Man
Who Went into the West: The
Life ofR. S. Thomas og kemur út
hjá Aurum Press á morgun.
SUDOKUta I na þra utir
Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig aö hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
5 8 7 9 1
1 3
2 1 8 4
4 2 6
6 5 3 1
9 1 5
6 8 4 1
3 9 4 2 8 5
4 3 9
Lausn síðustu gátu
5 2 6 3 1 7 8 4 9
7 3 4 9 2 8 1 5 6
9 1 8 4 5 6 2 3 7
6 8 2 5 9 3 7 1 4
4 5 1 7 6 2 9 8 3
3 7 9 1 8 4 5 6 2
8 9 3 2 4 1 6 7 5
2 6 7 8 3 5 4 9 1
1 4 5 6 7 9 3 2 8