blaðið - 26.06.2006, Síða 22

blaðið - 26.06.2006, Síða 22
38 IFÓLK MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 blaöiö UTAN VIÐ SIG OG ÓMÖGULEGUR Smáborgarinn erfarinn að hafa áhyggjur af hegðun sinni enda er hún til háborinn- ar skammar. Það sem veldur Smáborgar- anum áhyggjum er ekki drykkjulæti, leti eða dónaskapur. Nei, þvert á móti. Hins vegar er Smáborgarinn svo utan við sig að það heyrir til vandræða. Margir samborgarar Smáborgarans eiga vafa- laust við sama vandamál að stríða og til dæmis er fjölskylda Smáborgarans alveg jafn slæm og hann sjálfur. Ætli þetta sé genatengt? Kannski er þetta einhver sjúk- dómur eða heilahrörnun? Smáborgarinn er þvi með áhyggjuraf heilsufari sínu. Símaskrá í frysti Allir kannast við að henda óvart skeiðinni en setja tóma jógúrtdós í ísskápinn. Smá- borgarinn gengur aðeins lengra þegar hann er utan við sig og til dæmis hefur hann fundið óhreinan disk með áhöldum inni í ísskáp svo ekki sé minnst á símaskrá í frystinum. Enn þann dag í dag hefur Smáborgarinn enga hugmynd um hvern- ig blessuð símaskráin endaði i frystinum. Steininn tók þó úr um daginn þegar Smá- borgarinn var að koma heim, yfirgaf bíl sinn og ætlaði að ganga inn á heimili sitt. Engir voru þá lyklarnir og eftir nokkurra minútna leit i veskinu fór Smáborgarinn aftur út í bíl sem var þá vitanlega ennþá í gangi og lyklarnir sátu rólegir í kveikju- lásnum. Smáborgarinn getur þó huggað sig við það að systir hans er verri, ef það er þá hægt. Gleraugu og sígaretta Systir Smáborgarans tók bilprófið tölu- vert seinna en flestir og var því ansi vön að láta keyra sig út um allt. Kvöld eitt eftir að hún fékk bilprófið skrapp hún út í búð. Eftir verslunarferðina settist hún í farþegasætið eins og vanalega og beið róleg. Eftir nokkrar minútur, þegar hún var einmitt byrjuð að pirra sig vegna þess hvað ökumaðurinn var lengi inni í búðinni, fattaði hún að hún væri sjálf öku- maðurinn. Skömmustuleg læddist hún í ökumannssætið og keyrði af stað. Þetta eru reyndar saklaus og jafnvel fyndin mistök. Annað dæmi um hve utan við sig fjölskylda Smáborgarans er hefði getað orðið dýrt ævintýri. Móðir Smáborgarans notar gleraugu og hefur auk þess þann leiðinlega ávana að reykja. I eitt skiptið þegar móðir Smáborgarans var að keyra ætlaði hún að henda sígarettunni út um gluggann. Það vildi ekki betur til en svo að hún tók gleraugun í stað sígarettunn- ar og henti þeim út um gluggann. Geri aðrir betur! BlaÖiÖ/Frikki HVAÐ FINNST ÞER? Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi og veiðimaður. Verður þetta gott veiðisumar? Já, ég held að þetta verði mjög gott veiðisumar og að það sé mikið af fiski sem gangi. Það eina sem maður hefur áhyggjur af, enn einu sinni, er að það virðist vera mjög lítið af stórlaxi í ánum. Laxveiðitímabilið er nú hafið af fullum krafti og þær veiðiár sem ekki hafa þegar verið opnaðar fyrir veiði munu verða það á allra næstu dögum. Myndir/ÞÖK Langþráðum áfanga náð Brautskráning kandídatafrá Háskóla íslands fór fram í Laugardalshöll á laugardaginn að viðstöddumfjöldagesta. Að þessu sinni luku 957 nemendur námi. Sir David Attenborough var sœmdur heiðurdoktorsnafnbót við Háskóla íslands og ávarpaði hann samkomunafrá Galapagos eyjum. SERBLAÐ Sumarið & garðurinn Miðvikudaginn 28. júní blaóió Auglýsendur, upplýsingar veita: eftir Jim Únger C Jlm Unger/dlst. by Unlted Medla, 2001 HEYRST HEFUR... Pað er ekki ofsögum sagt að hin íslenska tónlistar- útrás standi nú sem hæst og fjölmargarís- lenskar sveit- ir ferðast nú um heiminn þveran og endilangan í von um heimsfrægð. Þetta er tals- verð breyting frá því sem áður var þegar Björk Guðmunds- dótti r var eini íslenski tónlistar- maðurinn sem náði einhverri athygli erlendis. Sagt var frá af- rekum hennar á ítarlegan hátt í íslenskum fjölmiðlum og ef einhver annar tónlistarmaður hlaut minnstu athygli erlendu tónlistarpressunnar var það blásið upp og íslensku fréttirn- ar af því urðu langtum lengri og itarlegri en oft stuttaraleg umfjöllun hins erlenda miðils. Mú eru tímarnir hinsvegar breyttir og hljómsveitir á borð við Ampop, Diktu, Mín- us og Sigur Rós spjara sig vel ytra um þessar mundir. Is- lendingar eru orðnir svo vanir þessari vel- gengni að íslenskir fjölmiðlar láta sér t.d. ekki detta til hugar að segja frá umfjöllun um þá síðastnefndu í júlíhefti hins virta tónlistar- tímaritis Q. Sigur Rós spilaði á dögunum á tónlistarhátíðinni Coachella í Kaliforníu. Á hátíðinni kom fram fjöldinn all- ur af heims- frægumsveit- um á borð við Depeche Mode, Yeah Yeah Yeahs og Scissor Sisters. Q hefur hins- vegar greinilega mikinn áhuga á íslensku drengjunum í Sigur Rós. Á einni rsíðu þar sem fjallað er um hátíðina má finna risa- stóra mynd af söngvara sveitarinnar, Jónsa, þar sem hann spilar með fiðluboga á gítar sinn. Þar til hliðar er mun minni mynd af nokkuð þekktri söngkonu sem margir kannast við - sjálfri Madonnu. En Sigur Rós er ekki eina sveitin sem Q fjallar um í nýjasta hefti sínu. Þar fellur einnig dóm- ur um nýj- ustu afurð sveitarinn- ar Trabant, Emotional. Þar segir að á Islandi sé sveitin „stærri“ en Coldplay og er henni síðan líkt við „hina skrýtnu evrópsku frænku sína, Scissor Sisters,“ eins og það er orðað. Rýnir Q virðist nokkuð hrifinn af „Emotional" og gef- ur plötunni þrjár stjörnur af fimm mögulegum. Ekki slæmt það! adalbjorn@bladid.net Hann horfði á hjartaflutning í sjónvarpinu fyrir þremur dögum og er enn að ná sér.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.