blaðið - 16.08.2006, Síða 2
2IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 blaðiö
A förnum vegi
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Fangelsi landsins eru yfirfull eins
og Blaðið hefur áður greint frá. Nú
er ástandið orðið svo alvarlegt að
Fangelsismálastofnun varð að synja
beiðni lögreglunnar í Keflavík í gær-
morgun um að vista þrjá einstak-
linga í gæsluvarðhaldi.
Erlendur Baldursson, Fangelsis-
málastofnun, segir að eins og staðan
sé í dag sé ekki pláss fyrir gæslu-
varðhaldsfanga á Litla-Hrauni eða
í Hegningarhúsi, en þar skal vista
gæsluvarðhaldsfanga. „Það kom
beiðni frá lögreglunni í Keflavík um
að vista þrjá fanga og við urðum að
synja henni,“ segir Erlendur. Hjá
lögreglunni í Keflavík fengust þær
upplýsingar að þrír menn gistu
fangageymslur bæjarins en lögreglu-
menn sem Blaðið ræddi við könnuð-
ust ekki við að leitað hefði verið eftir
vistun hjá Fangelsismálastofnun.
Tveir þessara manna hafi verið
úrskurðaðir í tveggja daga gæslu-
varðhald og það myndu þeir sitja af
sér í fangageymslu bæjarins.
Erlendur segir að hjá fangelsum
stofnunarinnar sé ekkert pláss og
að lögreglustöðvar séu engan veginn
í stakk búnar til að vista gæsluvarð-
haldsfanga. „Við getum ekki tekið
við mönnum ef ekki er pláss fyrir
þá. Það getur verið alvarlegur
hlutur ef um er að
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS
§ L
■tm
SSSK3S
Spillum ekki
rannsóknum
þrátt fyrir
þrengslin.
Aðbúnaður langa er slœmur og þfongsH *ru mikH. Fangels<smAlast(6rt ar uppgefinn:
Fangelsin sprungin
jaarriasaaae.—
■ Forsíða Blaðsins
fimmtudaginn 27. júlí.
menn sem þurfa að komast í ein-
angrun eftir að hafa framið alvarleg
brot. Lögreglustöðvarnar eru ekki
útbúnar til að sinna þessu hlutverki."
Erlendur segist vona að
ástandið eins og það
er í dag sé tíma-
bundið. „En
þetta lítur alls
ekki vel
út núna.
Þ e t t a
h e f u r
verið ansi
Geir Jón Pórisson,
\ yfirlögregluþjónn
f \ i Reykjavik.
undanfarið og síðan sprakk þetta
einfaldlega í gærmorgun. Auðvitað
vona ég að þetta sé tímabundið og
að menn losni úr gæslu og afplánun.
En eins og þetta hefur verið upp á
síðkastið þegar mörg mál koma upp
á stuttum tíma, þá ráðum við ekki
viðþetta."
Erlendur segir að staðan sé ein-
faldlega þannig að þrátt fyrir að úr-
skurður dómara um gæsluvarðhald
liggi fyrir þá geti fangelsin einfald-
lega ekki tekið við fleirum. „Við
getum bara ekki tekið við fleirum,
ekki frekar en að þú troðir aukaf-
arþega í fólksbílinn þinn. Það eru
bara tveir frammi í og þrír aftur í og
það breytist ekkert. Ekki nema þú
kaupir þér stærri bíl.“
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, segir að svona at-
vik hafi aldrei komið upp hjá lögregl-
unni í borginni. „Þetta gæti bara ekki
átt sér stað vegna þess að það eru til
önnur úrræði en á Litla-Hrauni
eða í Hegningarhúsinu. Rann-
sókn er ekki spillt ef það er
ekki til pláss í gæsluvarðhaldi.“
Aðspurður hvað myndi gerast
kæmi svona staða upp í Reykjavík
segir hann: „Við höfum fanga-
geymslur víða um land og menn
yrðu þá bara settir þar inn. Það
yrði einfaldlega að gera nauð-
synlegar ráðstafanir, það er
alveg klárt,“ segir
Geir Jón.
Hefurðu komið á
Kárahnjúka?
Halldóra Lisbeth Jónsdóttir,
viðskiptafræðingur.
Nei, ég hef ekki komið þangað.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
fyrrverandi prestsfrú.
Nei, en mig langar mikið til að fara.
Ég er svo mikill náttúruunnandi.
Áki Jónsson, nemi.
Nei. Mér finnst ólíklegt að ég leggi
leið mína þangað.
Ásgeir Sölvason
Nei það stendur ekki til.
Steven Lorenz, dansari
Ég hef ekki komið þangað
HeiSskirt - Léttskýjað-iJk. Skýjaðyí Alskýjað*--— Rigning,litllsháttar'~“‘RigningiSs?»Súfd - SnjékoinaSlydda Snjóél--.Skúr
blaóió=
Hádegismóum 2, UO Reykjavík
Sími: 510 3700 - www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
51Q 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fangelsismál:
Þremur föngum var
vísað frá Litla-Hrauni
ifiLf'#'
Algarve 22
Amsterdam 18
Barcelona 24
Berlín 24
Chicago 18
Dublin 15
Frankfurt 19
Glasgow 17
Hamborg 19
Helsinki 22
Kaupmannahöfn 20
London 15
Madrid 24
Mallorka 29
Montreal 17
New York 23
Orlando 24
Osló 20
París 20
Stokkhólmur 18
Vín 23
Þórshöfn 11
Hrefnuveiðar:
Tíu veiddar
til viðbótar
Sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið að leyfa veiðar á tíu
hrefnum til viðbótar þeim 50
sem þegar hafa verið veiddar í ár.
Veiðarnar eru hluti af rann-
sóknaáætlun Hafrannsóknastofn-
unarinnar. Þegar veiðarnar í ár
eru afstaðnar má búast við að
161 hrefna hafi verið veidd síðan
veiðar í vísindaskyni hófust árið
2003. Veiðist allar þær hrefnur
sem heimilt er að veiða verða 60
hrefnur skotnar í ár. Áður höfðu
mest veiðst 39 hrefnur á einu
sumri síðan vísindaveiðar hófust,
það var í fyrra.
Innbrotsþjófur:
Handtekinn
í tvígang
Nítján ára piltur
var í fyrrinótt hand-
tekinn af lögreglu í
annað sinn á sólar-
hring fyrir annað innbrot
sitt á einum og sama
staðnum. Pilturinn reyndi inn-
brot í Lyf og heilsu í Álfabakka
aðfaranótt sunnudags. Honum
var sleppt eftir yfirheyrslur
næsta dag og handtekinn aftur á
sama stað um kvöldið.
■ Ekki pláss í gæsluvarðhaldi ■ Fangelsismálastofnun ráðþrota
■ Lögreglustöðvar óhæfar en eru eina úrræðið
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Isiands
Kreditkortanotkun landsmanna:
Einkaneysla vex enn
Einkaneysla hefur vaxið um tíu saman seglin þrátt fyrir mikla verð-
prósent milli ára eftir því sem lesa bólgu. Kreditkortanotkun í júlí nam
má úr kreditkortanotkun lands- 21,3 milljörðum króna og er það
manna. Greiningardeild Glitnis tæpum fjórtán prósentum meira en
rýndi í tölur um kortanotkun og í sama mánuði í fýrra. Þar segir að
greinir af henni að íslenskir neyt- láti nærri að tveir þriðju af aukning-
endur séu ekki enn farnir að draga unni sé einkaneysla.
...NÝK VALKOSTUB A ^
FLUTNINGAHARKADNUH
transport \|
toll- og flutningsmiðlun ehf . |j ’■
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is