blaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 6
6IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 blaðið
Borgarstjóri New York:
Ræðst gegn
reykingum
Michael Bloomberg, borgar-
stjóri New York-borgar, hefur
ákveðið að baráttuna reyk-
ingum í Bandaríkjunum með
rúmlega eins milljarðs króna
framlagi. Féð kemur úr eigin
sjóðum Bloombergs, sem er
mikill baráttumaður gegn
reykingum.
Að sögn Bloombergs mun féð
renna til ýmissa hópa sem vinna
að tóbaksforvörnum og berjast
fyrir hertri tóbakslögjöf.
Vestfirðir:
Kennarar
læra aga
Kennarar og skólastjórar í
vestfirskum grunnskólum sátu
í gær aganámskeið. Ekki var
ætlunin að aga kennarana og
skólastjórana heldur að kenna
þeim hvernig best væri að halda
uppi aga í kennslustofunni.
Námskeiðið er á vegum
Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.
Frá þessu er sagt á vef Bæjar-
ins besta. Þar segir jafnframt
að námskeiðið sé samið af
heimamönnum.
Miðausturlönd:
Iranar og Sýrlendingar fagna
■ Forseti Sýrlands segir ekki hægt að semja um frið við Bush ■ Gagnrýnir Arabaríki
Bashar Assad, forseti Sýrlands,
lýsti því yfir í gær að árangur skæru-
liða Hizballah í baráttunni gegn ísra-
elsmönnum markaði hrun áætlana
George Bush, forseta Bandaríkjanna,
um „nýMið-Austurlönd.” Assad sagði
ennfremur við fjölmiðla í gær að af-
rek Hizballah hefðu breytt ástandinu
á svæðinu og sýn Bandaríkjamanna
á svæðið væri nú ímyndun ein.
Forsetinn sagði einnig að ísraelar
þyrftu að semja frið ellegar verða yf-
irbugaðir í framtíðinni. Hann sagði
nauðsynlegt að Bandaríkjamenn
kæmu að friðarsamkomulagi en
sagði ekki væri hægt að semja frið
meðan George Bush færi með völd í
Washington og þar af leiðandi væri
ekki útlit fyrir frið í fyrirsjáanlegri
framtið.
Segir sökina
liggja hjá
Bandaríkja-
mönnum
< Bashar Assad,
'L forseti Sýrlands
Bashar Assad fordæmdi þau Araba-
ríki sem gagnrýndu Hizballah fyrir
að hafa komið af stað átökunum með
því að ræna tveim hermönnum við
landamæri fsraels og Líbanons þann
tólfta júlí. Hann sagðist ekki biðja
nein ríki um að berjast með eða fyrir
málstað Sýrlendinga en fordæmdi að
sumar ríkisstjórnir á svæðinu skuli
hafa haft samúð með sjónarmiðum
óvinarins. Þrátt fyrir að forsetinn
nefndi ekki ríkin á nafn er Ijóst að
A leið heim Libanar snúa
heim eftir að vopnahléid
gekk i gildi. Á bílnum er
mynd af Sheik Hassan Nasr
allah, leiðtoga Hizballah.
hann á við stjórnvöld í Sádí-Arabíu,
Egyptalandi og Jórdaníu.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti f r-
ans, fagnaði einnig „sigri” Hizbollah
í Líbanon og sagði hann vera upp-
fyllingu á loforði æðri máttarvalda.
Ahmad Khatami, einn af helstu
klerkum frans, sagði einnig í gær að
franar myndu svara eldflaugaárás á
Tel Aviv í fsrael, yrði gripið til hern-
aðaraðgerða gegn fran að undirlagi
Vesturlanda.
Tzipi Livni, utanríkisráðherra ísra-
els, sagði í gær að niðurstaða átakanna
og vopnahléið sem samið hefur verið
um þýði að Sýrlendingar muni ekki
geta lengur haft áhrif á gang mála
gegnum vígamenn Hizballah í Líb-
anon ogstjórnvöld í Damaskus þyrftu
að gerasér grein fyrir því að þeir gætu
ekki lengur beitt sér 1 Líbanon.
fsraelar hófu að draga hluta af her-
liði sínu úr suðurhluta Líbanons í
gær eins og vopnahléssamkomulagið
gerir ráð fyrir. Á sama tíma er koma
alþjóðlegs herliðs og líbanskra her-
manna á svæðið yfirvofandi.
ðldungadsild MH
Viltu læra eitthvað nýtt og spennandi?
Viltu gæða kennslu?
Viltu styrkja undirstöðuna?
Skelltu þér þá í skemmtilegt og fjölbreytt nám hjá okkur.
Innritað verður dagana 16.-18. ágúst í skólanum frá kl. 16-19,
í síma frá kl. 9-15 og yfir netið allan sólarhringinn.
Áfangar í boði á haustönn 2006
\NN V//j
Danska íslenska Norska Sænska
DAN1036 ÍSL 1036 NOR 1036 SÆN 1036
ÍSL 2036 NOR 3036 SÆN 2036
Eðlisfraeöi ÍSL 3036 SÆN 3036
NÁT 1336 ÍSL 3224 Saga
EÐL 1036 ÍSL 3736 SAG 1036 Tölvufræði
ÍSL 4036 SAG 3036 TÖL 1036
Efnafræði ÍSL 4224 SAG 3836 (Dreifnám)
EFN 2036 ÍSL 5036 TÖL 1136
NÁT 1236 Sálfræði (Dreifnám)
ítalska sál 1036
Enska ÍTA 1036 sál 2036 Þýska
ENS 1036 ÍTA 3036 ÞÝS 1036
ENS 3036 ÍTA 4036 Spænska ÞÝS 3036
ENS 4036 spæ 1036 ÞÝS5136
Jarðfræði spæ 3036
Félagsfræði NÁT1136
FÉL 1036 NÁT 1036 Stærðfræði
(dreifnám) STÆ 1036
FÉL 2036 Líffræði STÆ 2636
(dreifnám) NÁT1036 STÆ 3036
FÉL 2636 LÍF 1036 STÆ 5036
STÆSTO
Franska Náttúrufræði (Stoðtími)
FRA 1036 NÁT1036
FRA 3036 NÁT 1136
Hagfræði NÁT1236
ÞJÖ1036 NÁT 1336
Nánari upplýsingar á heimasíðu MH
www.mh.is.
Borgarfjarðarbrúin
Fær einungis tvær
stjörnur í gæðamati
EuroRap
Könnun á gæðum vega:
Borgarfjarðarbrúin
fær tvær stjörnur
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Heildareinkunn Reykjanesbrautar er
þrjár stjörnur af fjórum mögulegum
samkvæmt gæðamati EuroRap. Á
stuttum hluta i gegnum Hafnarfjörð
fær Reykjanesbrautin hins vegar
fjórar stjörnur, en á nokkrum stöðum
tvær stjörnur svo sem í nágrenni við
álverið í Straumsvík.
Til að meta gæði íslenskra vega var
gerð athugun á um 175 kílómetrum
á Reykjanesbraut, hluta Vesturlands-
vegar og Suðurlandsvegar. Unnið var
að staðlaðri gæða- og öryggiskönnun
undir merkjum EuroRap, en niður-
stöður voru kynntar í gær. FÍB sá
um framkvæmdina með stuðningi
samgönguráðuneytisins, en Um-
ferðarstofa annaðist fjármögnun
verkefnisins.
Heildareinkunn Suðurlandsvegar
var þrjár stjörnur, en á kaflanum
milli Hveragerðis og Selfoss fær vegur-
inn aðeins tvær stjörnur, meðal ann-
ars vegna mikils fjölda hættulegra
vegamóta.
Vesturlandsvegur fær í heildina
þrjár stjörnur. Sumstaðar nær hann
aðeins tveimur stjörnum og dæmi
um það eru vegbrúnir uppfylling-
arinnar sem liggja að Borgarfjarð-
arbrúnni en þar hafa verið settir
stórir grjóthnullungar til þess að
varna því að ökutæki hafni úti í sjó í
stað þess að sett séu upp vegrið. „Af-
leiðingar þess að ökutæki hafnar á
grjótgarðinum eru mun alvarlegri
en ef það hafnar á vegriði. Nýi tvö-
faldi veghluti Vesturlandsvegar sem
liggur milli Suðurlandsvegar og Mos-
fellsbæjar er mjög nálægt því að fá
fjórar stjörnur," segir í frétt frá Um-
ferðarstofu. Þar segir jafnframt að
umhverfi vegarins sé til fyrirmyndar
og gatnamót eru sett i hringtorg, en
þar vantar hins vegar vegrið milli ak-
brauta til að vegurinn fái allra hæstu
einkunn.