blaðið - 16.08.2006, Síða 15

blaðið - 16.08.2006, Síða 15
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 27 matur matur@bladid.net ís í sólinni Fátt jafnast á við að gæða sér á is á hlýjum sumardegi þegar sólin leikur við mann og vart bærist hár á höfði. Jógúrtis er málið. t Skyndibiti þarf ekki endilega að vera óhollur Skyndibitastaðir voru ekki margir í Reykjavík fyrir 20 til 30 árum. Nú á dögum eru þeir nánast á hverju götuhorni. Börn og unglingar neyta í auknum mæli skyndibitafæðis og sú þróun vekur upp margar spurn- ingar um matarvenjur landsmanna og hvort þær séu hugsanlega að breytast til hins verra. Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verk- efnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, leggur áherslu á að skyndibiti og skyndibiti sé ekki það sama heldur skipti máli hvað verður fyrir valinu. „f grunn- inn er þetta oft hollur matur úr brauði, grænmeti og kjöti. Þú getur til dæmis fengið þér hamborgara með fullt af grænmeti og smá sósu og er hann þá hinn hollasti matur. Með því að fá þér þrjár matskeiðar af kokteilsósu tvöfaldarðu orkuinni- hald máltíðarinnar. Þegar við bæt- ist svo stór skammtur af frönskum kartöflum og hálfur lítri af gosi er hollustan farin fyrir lítið,“ segir Hólmfríður. Pítsan þjóðarrétturinn f landskönnun sem Manneldisráð gerði á mataræði íslendinga árið 2002 kom í ljós að neysla unglinga á pítsumhafðiaukist ogmásemdæmi nefna að strákar borðuðu að með- altali 120 grömm, sem samsvarar einni stórri sneið, af flatbökum á degi hverjum. „Pítsan er orðin þjóð- arréttur ungra fslendinga í staðinn fyrir fiskinn. Þróunin hefur gerst hægt og sígandi og er ekki góð, enda er fiskurinn svo mikil hollustuvara," segir Hólmfríður. Hún segir að full ástæða sé til að hafa áhyggjur af því hvernig matar- venjur ungu kynslóðarinnar þróast. Ágeng markaðssetning Skyndibitastaðir reyna að höfða til barna og unglinga með auglýsingum og markaðsstarfi og sums staðar fá þau leikföng eða annað slíkt með máltíðum. „Það þarf að reyna að temja ung- viðinu hollar neysluvenjur, en það getur verið erfitt að standast ágenga markaðssetningu,” segir Hólmfríður og bætir við: „Auka þarf framboð á hollum skyndibitum, bjóða til dæmis upp á fituminni sósur, ískalt Höfða til barna og unglinga Skyndibitastaðir reyna að höfða til bama og unglinga með ágengum auglýsingum og markaösstarfi. vatn, nóg af grænmeti og ávöxtum og gróf brauð, því eins og komið hefur fram þurfa skyndibitar ekki að vera óhollir. Einnig þarf að hefja heimilismáltíðirnar til vegs og virð- ingar og vekja fólk til umhugsunar um að ekki þurfi að taka langan tíma að elda góða fiskmáltíð.“ Aðgengi að hollum mat þurfi að vera gott þannig að holla valið verði auðvelda valið. ' Verðlaun MNl Fjöreggið er veitt þeim sem hafa sýnt fmmkvæði eða stuðlað að *—" öflugum matvælaiðnaði. Fjöreggiö 2006 Verðlaunanefnd óskar eftir tilnefn- ingum til Fjöreggs Matvæla- og næringarfræðafélags ísland (MNl) 2006. Tilnefningar þurfa að berast fyrir 15. september. Matvæladagur Matvæla- og nær- ingarfræðafélags ísland verður haldinn í 14. skipti 20. október næstkomandi. A Matvæladeg- inum verða veitt árleg verðlaun, „FJÖREGG MNl“, fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringar- sviði. „Fjöreggið", sem er íslenskt glerlistaverk, er veitt með stuðn- ingi frá Samtökum iðnaðarins. Félagsmenn sem og aðrir eru eindregið hvattir til að tilnefna til verðlaunanna vörur eða gott framtak einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja sem sýnt hafa frum- kvæði og stuðlað að öflugum mat- vælaiðnaði. Efni Matvæladagsins (ár er einmitt „öflugur matvæla- iðnaður í stöðugri framþróun." Til- nefningar verða metnar af þriggja manna dómnefnd fagaðila. Tilnefningum, ásamt rökstuðningi, skal annað hvort koma á fram- færi við undirbúningsnefndina í gegnum tölvupóst eða í gegnum heimasíðu MNÍ eigi síðar en 15. september 2006. Saltfiskvöfflur slá í gegn Girnilegar saltfiskvöfflur Úlfar Eysteinsson, matreiöslumeistari á Þremur Frökkum, á heiðurinn að uppskrift að saltfiskvöfflum sem slógu í gegn á Fiski- deginum mikla á Datvík um siðustu helgi. Blaðiö/steinarHugi Sá réttur sem gerði einna mesta lukku á Fiskideginum mikla á Dalvík um síðustu helgi voru salt- fiskvöfflur að hætti Olfars Eysteins- sonar matreiðslumeistara á Þremur Frökkum. Vöfflurnar eru byggðar á upp- skrift að spænskum saltfiskbollum og segir Ulfar að upphaflega hafi þeir ætlað að bjóða upp á þær. Það reyndist hins vegar hægara sagt en gert vegna tæknilegra vandamála enda eru slíkar bollur djúpsteiktar og erfitt hefði verið að steikja þær í nógu miklum mæli. Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla, kom þá upp með þá snilld- arhugmynd að steikja bollurnar í vöfflujárni sem Úlfar sá strax að myndi ganga upp. Úlfar segir að gestir á Fiskideg- mum hafi tekið vöfflunum mjög vel og 99 prósent þeirra sem próf- uðu þær hafi hoppað hæð sína af ánægju. „Ólafur Ragnar forseti tók heila vöfflu og setti á hana súrsæta sósu og hafði einmitt orð á því að þetta væri snjallræði og bragðgott. Það má líka setja með þessu spænskt hvít- lauksmajones (alioli). Rússar borða vöfflur með kavíar og sjálfur hef ég prófað þetta með sultu og rjóma. Þá er ábyggilega gott að setja ost ofan á þetta og láta hann bráðna. Ekkert er bannað," segir Úlfar og tekur undir að fólk sé oft of fast í hefðum þegar matargerð sé annars vegar. Saltfiskvöfflur . Saltfiskur • Hvítur pipar . Paprikuduft •Laukur . Hvítlaukur smátt saxaður • Vatn • Vatnsdeig Þetta er grunnuppskrift að salt- fiskvöfflunum en Ulfar hvetur fólk til að þróa hana áfram og móta að eigin smekk. „Sumir myndu vilja setja svolítið oreganó eða karrí, aðrir myndu vilja sleppa hvítlauknum og svo framvegis. Aður en við vitum eigum við til saltfiskvöffludeig á hverju einasta heimili og hvert með sínu sniði. Eins og með plokkfisk- inn verða uppskriftirnar jafnmargar fjölskyldunum í landinu." OFNBÖKUÐ ÝSA með indverskum blæ • 2 ýsuflök, 700-800 g • 3msk. mangó-cbutney frá Pataka's • 3 msk. Roð- og beinhreinsið ýsuflökin og skerið í hæfilega bita. Setjið mangó-chutney í skál og penslið ýsubitana vel með því á báðum hliðum. Stráið Indversku vel yfir beggja megin. Setjið í eldfast form. Bakið 1 ofni við 180°C í 15 mín. Berið fiam med uppáhaldshiísgijónunum ykkai og salati. \ hH JÁORMSSQN SAMSUNG LE32M51BX 32" háskerpu LCD sjónvarp SAMSUNG DVD-125 DVD upptökutœki og spilari Verö éður: 264.900 kr. TILBOÐSVERÐ: 219.900 kr. Þú sparar: 45.000 kr Pottar og pönnur 25-40% afsláttur ORMSSON 1. LÁGMÚLA 8 ■ Simi 530 2800 2. SÍÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800 3. SMÁRALIND ■ Simi 530 2900 4. AKUREYRI • Simi 461 5000 5. KEFLAVÍK ■ Sími 421 1535 WWW.ORMSSON.IS

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.