blaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 25
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006
37
Afmæhsborn dagsms
MADONNA POPPSTJARNA, 1958
MENACHEM BEGIN ÍSRAELSKUR
FORSÆTISRÁÐHERRA, 1913
SHIMON PERES ISRAELSKUR
FORSÆTISRÁÐHERRA, 1923
kolbrun@bladid.net
M
Penguin fellur
fyrir bók
Hugleiks jpv útgáfa
hefur gengið frá samningi við
Penguin útgáfuna um enska út-
gáfu á Forðist okkur eftir Hugleik
Dagsson. Penguin er sennilega
virtasta útgáfufyrirtæki heims.
Penguin kaupir enskumælandi
rétt fyrir allan heiminn að Islandi
undanskildu þar sem JPV hefur
nýlega gefið bókina út á ensku
fyrir Islandsmarkað. Bókin kemur
út í vandaðri innbundinni útgáfu
hjá þeim strax í haust undir merki
Michael Joseph sem er eitt af
útgáfunöfnum Penguin.
Útgáfustjóri Penguin, Alex Clarke,
segir að bók Hugleiks sé algjör-
lega ómótstæðileg og skemmti-
legasta bók sem hann hafi lesið í
háa herrans tíð.
Penguin óskaði jafnframt eftir
að annast sölu þýðingarréttinda
bókarinnar um allan heim en þeir
hafa á að skipa einhverri sterk-
ustu söludeild erlendra réttinda (
veröldinni. Eftir viðræður á undan-
förnum vikum um kjör vegna slíks
samnings hefur JPV gengið til
samninga við þá um að þeir ann-
ist alla réttindasölu bókarinnar.
Agnar Jón og hluti af leikhópi hans.
,Maður gefur þeim taeknileg ráö en
venjulega er það þannig að þegar þau
gera eins og þau vilja, frá hjartanu, þá
er útkoman best, “ segir Agnar Jón.
Nýtt barxialeikrit frumsýnt
MyndÆyþór
Grimmt, glatt og hlýtt
Wladimir
Kaminer kemur
til íslands
Wladimir Kaminer, höfundur
bókarinnar Plötusnúður Rauða
hersins, kemur til íslands á
Menningarnótt í boði Goethe-lns-
titut og Eddu útgáfu. Hann les úr
skáldsögunni Plötusnúður Rauða
hersins og fleiri bókum sínum í
Bókabúð Máls og menningar að
Laugavegi 18 laugardaginn 19.
ágúst kl. 21.00, en íslenskur lestur
verður í höndum Þorsteins Guð-
mundssonar leikara, rithöfundar
og uppistandara. Edda útgáfa
gaf Plötusnúð Rauða hersins
nýverið út í þýðingu Magnúsar
Þórs Þorbergssonar. Uppákomur
Kaminers eru jafnan stórbrotnar
og hann spjallar frjálslega við
áheyrendur sína á mörgum
tungumálum um leið hann skýrir
út hvernig það var að vera ung-
lingur í Sovétríkjunum sálugu
eða hvernig best er að best er að
sletta í form (alræðiseldhúsinu,
en nýverið gaf hann út kokkabók
með safni gamalla kommúnista-
rétta í félagi við konu sína Olgu.
Kaminer kemur til landsins í fylgd
Olgu Kaminer en saman mynda
þau ásamt fleirum plötusnúða-
teymi og útgáfu sem gengur undir
nafninu Russendisko. Þau halda
Rússadiskó á NASA föstudags-
kvöldið 18. ágúst sem hefst kl.
23.00 og er aðgangseyrir kr. 500.
Þar verða íslendingar kynntir fyrir
einstökum tónlistarstefnum sem
jafnvel staurfætur fá ekki staðist.
Einnig munu þau kynna Rússa-
diskó-diska sína í versluninni 12
tónar föstudaginn 18. ágúst.
Á Menningarnótt, 19. ágúst klukk-
an 15:00, verður frumsýnt ( Austur-
bæ barnaleikritið Drekaskógur eftir
Agnar Jón Egilsson. Nýstofnað leik-
félag barna og unglinga setur upp
leikritið. Leikendur eru á aldrinum
9-17 ára.
Stökkpallur fyrir unga leikara
Höfundur og leikstjóri verksins,
Agnar Jón, átti hugmyndina að stofn-
un leikfélags barna og unglinga. „Ég
hef mjög víða kennt leikíist frá því
ég útskrifaðist sem leikari fyrir níu
árum. Mig hafði lengi langað til að
búa til gulrót fyrir börn, það er að
segja skapa stökkpall fyrir þau í leik-
listinni þannig að þau geti sífellt ver-
ið að vinna sig upp. Það má segja að
ég hugsi þetta eins og unglingalands-
liðið í fótbolta. Mig langar til að
skapa hæfileikaríkum börnum svig-
rúm til að þroska hæfileika sína.
Þegar ég var ellefu ára tróð ég
mér inn í Leikfélag Mosfellsbæjar
og stuttu seinna var ég kominn með
hlutverk og orðinn sviðsstjóri í Dag-
bókinni hans Dadda. Ef ég hefði
ekki verið svona frekur þá hefði ég
aldrei komist þangað inn.
I sumar voru haldin leiklistar-
námskeið fyrir krakka hér í Aust-
urbæ. Þangað komu krakkar sem
hafa virkilegan áhuga á leiklist og
vilja starfa við hana. í lok sumars
var valið úr þeim hópi i hlutverk í
Drekaskógi. Auðvitað var sárt að
þurfa að velja úr hópnum en það var
samt nauðsynlegt. Eg segi stundum
að það sé ekki sænskasta hugmynda-
fræði í heimi að þeir bestu fái meira
en hinir en lífið er bara þannig. Val
eins og þetta býður upp á það að ein-
staklingar leggi meira á sig af því
það er eitthvað í húfi. Uppeldislega
held ég að það sé mjög gott að börn
kynnist því.“
Barátta góðs og ills
Þegar Agnar Jón er spurður um
leikritið Drekaskóg segir hann:
„Fyrir allnokkrum árum skrifaði ég
leikrit sem ég var ánægður með. Þeg-
ar ég fór að vinna með krökkunum
á leiklistarnámskeiðinu veltum við
því fyrir okkur hvað við ættum að
gera og ákváðum að við yrðum að
setja á svið klassískt leikrit. Ég tók
þetta leikrit, Drekaskóg, og vann
upp úr því nýja rúmlega klukku-
tíma leikgerð. Leikritið fjallar um
klassíska baráttu góðs og ills. Þar
eru börn dregin inn í hættulegan
og myrkan álagaskóg. Þau flækjast
i átök skógardísa, eldflugna og svart-
álfa og leita lausna hjá dreka sem býr
íhelli.
Hópurinn hefur talað mikið um
ævintýri og við erum sammála um
að það sé búið að útvatna hluti fyrir
börn. Það er ekki gert í þessu leikriti
og þess vegna er það bæði grimmt,
glatt og hlýtt sem eru þær öfgar sem
ævintýrin eiga að hafa.
Eitt af því sem er dásamlegt að
upplifa í sambandi við svona hóp
er að þegar nfu og tíu ára börn fara
að leika trúa þau því að þrettán til
fimmtán ára krakkarnir séu foreldr-
ar þeirra. Á æfingatímabilinu verða
til frábær tengsl. Svo eru þetta þræl-
góðir leikarar. Maður gefur þeim
tæknileg ráð en venjulega er það
þannig að þegar þau gera eins og
þau vilja, frá hjartanu, þá er útkom-
an best.“
Hús fyrir hæfileikabörn
Frumsýning verður á Menningar-
nótt. Sama dag verður forsýning á
frumsömdu leikriti eftir Agnar Jón
á annarri hæð í Austurbæ. Leikritið
heitir Afgangar og fjallar að sögn
Agnars um ástina og hversu erfitt
er að veðja á hamingjuna. Leikritið
verður frumsýnt 3. september.
Barnaleikritið Drekaskógur verð-
ur sýnt eitthvað fram í september-
mánuð. f byrjun september hefjast
svo leiklistarnámskeiðin að nýju.
„Hæfileikakrakkarnir úti í bæ verða
að láta vita af því að þeir séu til,“
segir Agnar Jón. „Við erum húsið
þeirra.“
menningarmolinn
Elvis
Presley deyr
Á þessum degi árið 1977 lést Elvis
Presley í Memphis, Tennessee. Hann
var 42 ára gamall. Læknar sögðu að
hann hefði látist af völdum hjarta-
áfalls vegna langtfmanotkunar ró-
andi lyfja.
Presley er einn vinsælasti skemmti-
kraftur sögunnar. Hann átti fjölda
laga á metsölulistum og lék í vinsæl-
um kvikmyndum. Eftir glæstan fer-
il tók andlegri og líkamlegri heilsu
Presleys að hnigna um miðjan átt-
unda áratuginn. Hann var háður ró-
andi lyfjum, nærðist svo til eingöngu
á ruslfæði og varð afmyndaður af
spiki. Síðustu tvö árin sem hann
lifði bjó hann svo að segja í algjörri
einangrun. Síðdegis hinn 16. ágúst
1977 var komið að honum meðvitund-
arlausum á heimili sínu. Hann var
fluttur á sjúkrahús þar sem hann var
úrskurðaður látinn. Heimili hans
Graceland er gríðarlega vinsæll ferða-
mannastaður.