blaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 8
blaði Útgáfuféiag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Ár og dagurehf. Sigurður G. Guðjónsson Sigurjón M. Egilsson Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Janus Sigurjónsson Hátíð og ofbeldi Hversu mörgum konum verður nauðgað í nótt? Eyrún Jónsdóttir deild- arstjóri á Neyðarmóttöku nauðgana á Landspítalanum hefur sagt að skemmtanahald í miðborginni um helgar jafnist oft á við útihátíðirnar um Verslunarmannahelgi. Um síðustu var tilkynnt um fjórar nauðganir. Sérfræðingarnir, þar með talin Eyrún, segja að aldrei sé tilkynnt um þær allar. Fyrr í vikunni sagði hún frá þvi að starfsmenn Neyðarmóttökunnar hafi á árinu tekið á móti níu sem nauðgað var á skemmtistöðum miðborg- arinnar. Þar sé nauðgun jafnvel misskilin af nærstöddum sem eðlileg kyn- mök karls og konu. Maður spyr sig hvað sé eðlilegt við samfarir á klósetti á skemmtistöðum? Og nú á að slökkva ljósin í borginni vegna kvikmyndahátíðar í septem- ber. Samþykki fyrir því hefur ekki fengist áður. Geir Jón Þórisson, yfir- lögregluþjónn í Reykjavík, hefur sagt að lýsa þurfi upp ákveðin svæði í miðborginni. Á myrkruðum svæðum sé mun meiri hætta á ofbeldi. Rifjum upp dag Menningarnætur í fyrra. Hann hófst skelfilega. Tvi- tugur maður var myrtur í húsi fíkniefnaneytenda á Hverfisgötu í morgun- sárið. Hann var stunginn með eldhúshníf í hjartastað. Hringt var í Neyðar- línuna 112. Sjúkraflutningamenn reyndu í fjörutíu mínútur að lífga unga manninn við. Hann missti allt blóð, oftar en einu sinni. Við réttarhöldin í Héraðsdómi Reykjavíkur sagði ógæfumaðurinn að stungan banvæna hefði verið óviljaverk. Þeir hafi verið vinir. Það eru hans orð. Auðvitað skrifast manndráp ekki á hátíðarhöldin. Það vitum við öll. Þetta eru skemmtanahöld sem hefur farið úr böndunum. Fjöldi fólks fær ekki nóg og skemmtir sér ótæpilega þegar skipulagðri dagskrá lýkur. Vitna aftur í Geir Jón, sem segir að ekki sé hægt að tjónka við menn í miðbænum þegar líður á nóttina. Þeir sem gisti fangageymslurnar muni oftast ekkert ástæðu þess að þeir vakni í haldi lögreglunnar. Lögreglan hafi vegna svona manna ákveðið að hætta að hafa lögreglumenn á göngu um miðbæinn. Þeir nái engri yfirsýn yfir hann. Nokkrir misölvaðir átján ára piltar gengu um miðbæinn eftir að dagskrá lauk á Menningarnótt í fyrra. Þeir lentu í orðaskaki og svo ryskingum við annan hóp. Gengur þá jafnaldri þeirra, algerlega óskyldur öllum, inn í hóp- inn með gaddakylfu í hendi. Hann barði á einum og bar hann punktsár um allt bakið á eftir. í réttarhöldum yfir manninum við Héraðsdóm Reykjaness viðurkenndi hann ekki árásina. Hann sagðist bara hafa verið á rúntinum með vini sínum, en situr nú í fangelsi fyrir morðtilraun. Hann hjó annan í höfuðið með sveðju og í gegnum sinar, vöðva og í bein handar hans í einbýlishúsa- hverfi í Garðabæ. Við hljótum að leiða hugann að ofbeldisógninni þessa helgi sem aðrar, því við erum óvarin fyrir þessu fólki. Það er okkar allra að standa ekki aðgerðalaus hjá finnist okkur hegðun annarra undarleg. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeíld: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaösins Dreifing: íslandspóstur 8 I ÁLIT LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST2006 blaöiö Á ÍVNVi poSTTEMtviSTA ÁTTj A® RÆVfi m GKEiNihTGU Á EÐLÍ$L/£GVM oG xStóPu&UM KYjWíMTVEkKUM í MzWíRkU TjoLliYGGJV$MFÉLAGl I SAvmKL-VBBNuM WEiMA ftjfl §TlUJ ATTi að TALA UM MmZULBGAP itíÐSUYRTiVoTVUTZ OG ATSLÁTTARKoPT X Í)úlBAV5ToPUMl *—'VpAð LR '&Ktza 5Vo otruie&t w/AmmEjfij —> GTTA Vzzij? K K~r‘LFiW ...PAd BR Svo ÓTRÚlEQrT HVAÐWLMEtJiJ GETA VETU& . fcj -TiLFmiK&ALPiúð^. Erindislaus Sjálfstæðisflokkur Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn stýrt Reykjavíkurborg um skeið eftir tólf ára samfellt áhrifaleysi í borgarmálum. Við þær aðstæður er nýr meirihluti oftast aðsóps- mikill og kappsfullur að koma i framkvæmd þeim veigamiklu breytingum sem hann hefur svo lengi þráð. En það er ekki að sjá að hinn nýja meirihluta hafi langað til að gera neitt þvi hann hefur ein- faldlega haldið áfram þá leið sem Reykjavíkurlistinn markaði. Nýi meirihlutinn hefur að vísu týnt rusl í Breiðholtinu, skotið nokkra máva og horfið aftur til fortíðar með stofnun Leikskóla- ráðs, í algjörri andstöðu við hið góða starfsfólk leikskóla og að því er virðist til þess eins að fjölga bit- lingum borgarfulltrúa. En þá er af- rekaskráin líka upptalin. Þetta dugleysi er ekki tilviljun. Það endurspeglar einfaldlega að hið samgróna bandalag afturhald- saflanna í Framsókn og Sjálfstæðis- flokki hefur ekkert erindi lengur í íslenskum stjórnmálum, ekki einu sinni þar sem þeir um árabil hafa engu ráðið. Enn þá átakanlegra er þetta erindisleysi þó orðið eftir tólf ára valdasetu í landsstjórninni. Varnarlaus Sjálfstæðiflokkur Þetta dáðleysi sjáum við kannski best í varnarmálunum. Þar urðu stjórnarflokkarnir svo hræddir við breytingar að þeir ákváðu að leyna þjóðina því fyrir síðustu kosningar að herinn væri á förum. Samkvæmt yfirlýsingum þingflokksformanns Framsóknarflokksin var svo þetta ráðleysi helsta ástæða þess að rík- isstjórnin lýsti yfir stuðningi við innrásarstríð í írak, einhverja verstu ákvörðun sem tekin hefur verið í utanríkismálum í okkar nafni og þvert á sérstöðu okkar Helgi Hjörvar sem herlausrar friðsamrar þjóðar. Iraksmálið var dæmigert um mis- tök sem stefnulaus stjórnvöld gera þegar þau rekur undan veðri og vindum. Hlýtur að vera enn sárara þegar í ljós kemur að Bandaríkja- menn meta þann stuðning í engu og fara bara samt. Og nú er landið okkar loftvarn- arlaust því þoturnar eru farnar. Og samkvæmt yfirlýsingum ríkis- stjórnarinnar átti þá varnarsam- starfinu við Bandaríkin að vera lokið. En sú yfirlýsing er fokin út í vindinn og enn er haldið áfram einhverjum viðræðum sem enginn veit að hverju eiga að stefna. Agalaus Sjálfstæðiflokkur Rétt eins og Sjálfstæðisflokk- urinn berst fyrir því að halda í her sem er farinn virðist erindi hans helst vera orðið einmitt það að halda í það sem farið er eða fara ber, eins og verðtryggingin, krónan og landbúnaðarkerfið eru góð dæmi um. Eftir að hafa setið lengi að völdum hefur hann snúist í vörn fyrir fortíðina og boðar ekki lengur nýjungar fyrir framtíðina. Ein sterkasta birtingarmynd er- indisleyis er agaleysið því þegar menn hafa setið of lengi að völdum glata þeir viljanum sem þarf til aðhalds. Efnahagsmálin vitna um aga- leysið í gengissveiflunum, of- urvöxtunum og verðbólgunni. Ríkisendurskoðun og stjórnarþing- menn játa agaleysið í ríkisfjármál- unum þessa dagana þar sem keyrt er framúr lögum um átta þúsund milljónir á ári hverju. Sú lausa- ganga í ríkissjóð hefur með öðru leitt til sjálfvirkrar þenslu ríkisút- gjalda einmitt þegar aðhalds var þörf. Þegar draga þurfti úr neyslu jós Sjálfstæðisflokkuinn út skatta- lækkunum fyrir eigna- og hátekju- fólk og þegar draga þurfti úr vænt- ingum talaði hann um góðæri. Það er löngu tímabært að binda enda á þetta erindis- og agaleysi og fela sterkri stjórn undir forystu jafnaðarmanna að endurheimta hér stöðugleika efnahagslega og félagslega. Sá nýi meirihluti í rík- isstjórn verður ólíkt starfsamari en íhaldsmeirihlutinn í borginni, enda blasa verkefnin við í daglegu lífi venjulegs fólks sem taka þarf á allt frá vöxtum að vöruverði. Höfundur er alþingismaður Samfylkingar. Klippt & skorið Klippara rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar hann sá grein í Við- skiptablaðinu i gær, þar sem grein var gerð fyrir stöðu Dagsbrtínar eftir hálfsárs- uppgjör fyrirtækisins var birt, en óhætt er að segja að það hafi valdið eigendunum nokkrum von- brigðum. Rætt var við Gunnar Smára Egilsson, forstjóra Dagsbrúnar, og greindi hann frá því hvernig staða fyrir- tækisins yrði löguð. Ekki var það þó stí lýsing, sem klippari skelfdist, heldur fyrirsögnin: „Blaðinu verður snúið við." Er samkeppnin ekki orðin fullhörð? Staksteinahöfundur Morgunblaðsins skrifaði um málefni Framsóknarflokks- ins ( gær, sem tæpast er að undra í ijósi þess, að framsókn- armenn velja sér nýjan formann i dag. Ljóst er að höfundurinn telur Jón Sigurðsson mun heppi- legri til þess að sinna starfanum, hvernig sem , á er litið. Ekki síst hvernig | framsóknarmönnum takist að koma að stjórnarsamstarfi, en þar er bent á að Halldóri Ásgrímssyni hafi auðn- ast að tryggja flokknum valdaaðstöðu í 12 ár. Sjálfsagt hefur Staksteinahöfundur í einnig í huga að Siv Friðleifsdóttir er sögð njóta lítils stuðnings í þingflokknum, sem varla er gott veganesti í stjórnarviðræður. K veðjuræða Halldórs Ásgrímssonar á iflokksþinginu í gær var um margt fróðleg og kannski ekki síður um það, sem Halldór talaði ekki um en hitt sem hann sagði. Þannig vék hann ekkert að deilum í flokknum eða kosningaúrslitum nýliðinna sveitarstjórna- kosninga. En hitt var óneitanlega fróðlegt, hvernig hann lýsti frati á eina helstu trúarsetn- ingu Framsóknarflokksins um árabil og sagði berum orðum að fella þyrfti niður vörugjöld og breyta innflutningsvernd landbúnaðar- vöru. Nú á eftir að reyna á hvort flokkurinn fer að tilmælum Halldórs, en það er Ijóst, að það eraldrei of seint að iðrast! andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.