blaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 21

blaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 21
blaðið LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST2006 VIÐTALI 21 Ætli trúin sé í genum mínum. Eg held að ég hefði alltaf orðið prestur," segir Auður Eir Vilhjálms- dóttir prestur, en 32 ár eru síðan hún var vígður fyrsti kvenprestur fs- lands. „Ég bjó á æskuárum mínum á Grundarstíg rétt hjá sunnudaga- skóla KFUM og KFUK á Amtmanns- stíg og þangað fóru allir krakkar í hverfinu. Þar lærði ég góða kristna guðfræði. Æskuheimili mitt var venjulegt íslenskt heimili sem byggði á kristnum grundvelli. Það voru alltaf beðnar bænir með okkur krökkunum.Ég var barn sem lifði og hrærðist í umhverfinu, bærðist með því og naut þess. Við krakk- arnir lásum og lékum okkur. Þetta var þægileg tilvera. Menningin sveif yfir Tjörninni og umhverfinu þar í kring. Það var menning sem var byggð á kristinni trú. Trúin var alls staðar.“ Er ekki fremur óvenjulegt að barn skynji trúna alls staðar í umhverfinu? „Ekki held ég það. Ég hugsa að það séu margir sem skynji trúna þannig án þess að skilgreina það kannski fyrir sér. Allt þjóðlíf okkar er byggt á kristnum grundvelli. Það er gott og við eigum svo gott að við tökum ekki eftir því.“ Mikilvægi gamla bæjarins Faðir þinn Vilhjálmur Þ. Gísla- son var útvarpsstjóri. Ég geri ráð fyrir að þú hafir alist upp við mikla útvarpshlustun. „Jú, það hefur mótað mig. Á morgn- ana vaknaði ég við lög sem voru eins konar einkennislög Ríkisútvarpsins, svo var hlustað á fréttir og veður- fregnir og á kvöldin voru útvarps- sögur og þættir. Ég hlustaði á þetta allt saman. Mér eru leikritin á laug- ardagskvöldunum fyrir páska sér- staklega minnisstæð. Þá var búið að steikja lambalærið, það var steikt á pönnu og síðan pottsteikt. Við systk- inin vorum nýbúin að fara í bað og steikarilmurinn fyllti húsið. Svo kom að flutningi leikritsins, sem var kannski trúarlegt leikrit eftir Kaj Munk, og við sátum og hlustuðum. Hátíðleikinn var yndislegur. Mér finnst enn að gjöf allra daga sé að fá að mótast af hlutum í hvers- dagslífinu. Mér finnst til dæmis mik- ils virði að fá að vakna á morgana og koma á Laugaveginn því þar er svo mikið líf. Mér þykir vænt um miðbæ- inn og finnst skipta miklu máli að snúa aftur til þess tíma þegar gamli bærinn var gamli bærinn. Það er skelfileg hugmynd að byggja háhýsi við Laugaveginn. Ég er samt búin að sætta mig við það því ef þau verða byggð þá veit ég að þau verða rifin aftur og hús byggð sem eru í sama stíl og timburhúsin við Laugaveg- inn. Svo á eftir að byggja upp Hverfis- götuna og ég tel að það eigi að byggja hana upp sem íbúðabyggð. Einnig þarf að efla möguleika verslunar- innar í miðbænum til að fólk njóti hennar bæði um sumar og vetur og þar séu alls kyns verslanir, eins og eru í stórmörkuðum. Það ætti að byggja Reykjavík þannig að hvert hverfi hennar verði þorp og í hverju þorpi sé allt það sem börn þurfa að hafa. Um leið verður hvert hverfi nægilegt fyrir sjálft sig. Þá mætti dreifa skemmt- analífinu inn í hverfin, en ekki láta það allt eiga sér stað á einu svæði í miðbænum. Þetta eru hugmyndir mínar um uppbyggingu borgarinnar en þær eru ekki allar komnar frá mér. Margar þeirra eru komnar úr skírn- arveislum þar sem fólk ræðir saman um borgina.“ Prýðilega gjaldgeng Snúum aftur aðpreststarfinu. Hve- nær ákvaðstu að verða prestur? „Ég held að hugmyndin um að verða prestur hafi vaknað snemma án þess að ég hafi gert mér grein fyrir því. Eftir nám í Verzlunarskól- anum ákvað ég að fara í guðfræði- deild Háskólans. Á sama tíma og ég var í guðfræðinámi vann ég í kvenlögreglunni. Við lögreglukon- urnar unnum við að aðstoða konur á öllum aldri sem áttu í basli. Við vorum eins konar félagsráðgjafar og störfuðum með barnaverndarnefnd. Þetta voru konur sem voru beittar ofbeldi eða áttu við áfengisfanga- mál að stríða eða glímdu við önnur vandamál. Margar þeirra áttu mjög erfitt og auðvitað tók ég vandamál þeirra inn á mig en svo sannarlega var reynt að koma þeim til hjálpar. Verst var þegar ekkert var hægt að gera. Mörg mál var þó hægt að leysa. Sem betur fer. Ég minnist alltaf þess- arra kvenna af því að mér þóttu þær merkar og duglegar að komast af við lífið og sumar þeirra voru svo skemmtilegar að ekki er hægt að Framhald á næstu síðu Karolin 3ja sæta svefnsófi Tilboö kr.110.000.- Lugano sjálfstæð fjöðrun Tilboðsdagar Caleido Stærð 205x270 cm TILBOÐ kr.145.000 7 svæða late pokagormadýn Canett Eikarlína £ ££ J^5 svæða pokagormadýna v - - og botn * * . 140x200cm 68.7( im 68.700- I^ÖxWð’cnrST'.'öfo - 2+H+2 / 196x196 verð 99.000,- 3+H+2 / 196x242 verð 109.000,- Rafstillanleg rúm 80x200 áWBTSfrloT nú kr. 84.510- m 1015 Casper kr 9.800,- tilboð kr. 39.000,- 90x200 áöur 43.300,- / nú 37.315,- 120x200 áður 56.820.- / nú 47.770,- 140x200 áður öO.COO.- / nú 51.000.- 160x200 áöur 72.SÖ0.- / nú 61.965.- Mikið úrval af stökum dýnum HÚSGA6NAVERSLUN TOSCANA SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090 HÚSGÖGNIN FÁST &NNIG IHÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535 www.toscana.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.