blaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 blaðið
órg Þorsteinsdóttir fræðslufulltrúi
Það sem fyrst kom upp í hugann
þegar ég var spurð þessarar spurn-
ingar var litla húsið mitt. Litla húsið
kom inn í líf mitt árið 1989 og þar
hef ég dvalist mikið - stundum stutt,
stundum lengi - stundum með fáum,
stundum mörgum - stundum á
sumrin, stundum á veturna - stund-
um leið, stundum kát og svona gæti
ég lengi talið.
Litla húsið stendur undir Hestfjalli
í Grímsnesi. Litla hús segi ég - þegar
ég kom í húsið nýrisið 1989 þá hafði
ég aldrei komið í stærri sumarbú-
stað. Núna er hann með þeim minni
í landinu. Ég hvílist alveg hreint
ótrúlega vel þarna því við fjölskyld-
an erum ekki haldin of mikilli fram-
kvæmda- eða skógræktargleði. Svo
er þetta himnaríki hinnar hysknu
húsmóður því ekki þarf annað en að
hugsa um tiltekt, þá er allt orðið fínt.
Litla hús - sjáumst brátt.
Svavarsdóttir borgarfulltrúi •mmmmm
ffjfM 11 ZjÆ
Svandís
f o fJJJL
Morgunstund
með fjölskyldunni
Samvera með
fjölskyldu
Mér líður best þegar konan er enn sofandi við hliðina
á mér og dóttir okkar sefur vært í vöggunni á meðan
dagurinn er enn þá rólegur og fallegur og skarkalinn
og amstrið ekki farið af stað. Þetta er það sem lætur
mér líða vel. Ég hef ekki mikinn tíma til að sinna
fjölskyldunni og því held ég mjög mikið upp á þau
augnablik sem gefast. Ég vil hafa frið til að sinna
þeim og þá líður mér best.
Mér líður einnig vel þegar vel gengur í þeim störfum
sem ég tek mér fyrir hendur og allir eru ánægðir sem
vinna með mér. Það starfsumhverfi sem mér finnst
skemmtilegast að vinna í er þegar listrænn árang-
ur er augljós, framfarir nást í sköpun og einhver
fjárhagslegur ávinningur fylgir. Þetta getur verið í
misjöfnum hlutföllum en þegar maður hittir á það að
viðburðurinn er arðbær, farsæll og krefjandi sköpun-
arlega séð þá er maður voðalega ánægður. Þá smellur
allt saman.
Af stöðum sem hafa góð áhrif á mig má nefna Vest-
urbæinn eins og hann leggur sig, Austfirðina og
auðvitað heimabæinn Selfoss enda er þar mjög rólegt
og afslappað andrúmsloft.
Mér líður best með fólkinu mínu, vin-
um mínum og fjölskyldu. Að borða
með vinum og fjölskyldu, að elda
mat, gleðjast yfir fjölbreyttu bragði,
spjall og hlátur, söngur og samvera.
Eg á létt með að gera ekkert og lætur
Hka vel að gera mikið á stuttum tíma.
Þess vegna líður mér vel þegar ég er
í fríi og ekkert er framundan, ekkert
stendur til og hægt er að spinna
daginn jafnóðum en líka þegar allt er
á fullu, þegar ég get breytt, haft áhrif
og bætt. Það skiptir mig miklu máli
að missa ekki sjónar á því að njóta
hamingjuaugnablika þegar þau koma
og þá gjarna án þess að gera boð á
undan sér. Stundum er hamingjan
og vellíðanin best í hversdagslífinu,
þegar maður hættir að vera meðvit-
aður um eigin tilveru. Vellíðan og
hamingja eru sennilega systur.
Einar Bárðarson umboðsmaður
Margir þættir hafa
áhrif á daglega líð-
an okkar svo sem
samferðafólk okkar,
umhverfi, störfog
áhugamál. Lyklarnir
að hamingju og vellíð-
an eru líklega jafnmargir
fólkinu sem byggir jörðina.
Hvernig líður þér best? Blaðið
lagði þessa spurningu fyrir
fimm valinkunna íslendinga.
Sambúðarvandi
við Elli kerlingu
Ég bý eiginlega við dálítið erfiðan sambúðar-
vanda. Það er ekki vegna minnar heittelskuðu
sem ég er búinn að vera með í fimmtíu ár
heldur er sambúðarvandinn við Elli kerlingu.
Mér gengur illa að lynda við hana og hún er
stundum að gera mig alveg vitlausan.
Þó að það sé bjánalegt að segja það þá líður
mér yfirleitt best þegar mér líður ekki of
djöfullega. Ég er í frekar vondu standi til sálar
og líkama fyrst á morgnana, er þá oft með
þyngsli fyrir brjóstinu og alveg hreint að drep-
ast á sálinni.
Mér líður eiginlega best þegar ég er kominn
fram úr og núna í morgun vaknaði ég til dæm-
is við það að ég heyrði mannamál frammi í
eldhúsi og þar var kominn mikill vinur minn
frá fornu fari, skólabróðir og aldavinur sem
ég sé ekki nema alltof sjaldan og ég fann alveg
hvernig öll ólundin og öll líkamshörmungin
fór í samt lag á samri stundu. Mér líður því
alveg ágætlega núna eftir að hafa hitt þennan
gamla vin minn og hans fólk.
Mér finnst ekki gaman að vera á kjaftaþingi
við fólk sem mér þykir ekki skemmtilegt en
þegar gamlir skemmtilegir vinir mínir koma
lífgast ég allur upp og mér finnst ég vera 30
árum yngri.
Líður best
með manninum
Vellíðan hefur mörg stig. Nákvæmlega þegar
hringt var í mig gekk ung kona fram hjá
hinum megin á götunni klædd mjög fallegri
gráblárri dragt sem náði niðrá miðja kálfa.
Hún hélt á hvítum hatti í annarri hendinni.
Svarthærð og klippt algjörlega í 1940-tisku.
Svona sjón skapar vellíðan hjá mér. Ég hrífst
af fólki sem leggur alúð og natni í tilveruna
og nennir að hafa fyrir henni. Þess háttar fólk
skapar hjá mér vellíðan.
Annars líður mér dags daglega langbest með
manninum mínum. Við erum miklir og ein-
lægir vinir og njótum samverunnar og eyðum
eins miklum tíma saman og við getum. Við
látum samverustundirnar vera ráðandi í
lífi okkar, ferðumst mikið saman og það er
dásamlegt því hann er geipilega vel lesinn,
fróður og stálminnnugur.
Þegar ég er einn líður mér langbest við að
yrkja ljóð sem síðan verður söngur. Það er
mér skemmtileg glíma sem útheimtir ein-
beitni og rannsóknarvinnu. Að semja sögu
á agaðan hátt er áskorun sem þroskar mig,
fræðir og örvar. Gjöf sem unun er að gefa
víðar.