blaðið - 30.08.2006, Page 6

blaðið - 30.08.2006, Page 6
6IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 blaöiö Útgáfutónleikar verða á Stóra sviði Borgarleikhússins þann 5. september kl.20:00 og 22:00 og í Laugarborg, Eyjafjarðarsveit 6. og 7. september kl. 20:30. í tilefni af 30 ára samstarfi Mannakorna kemur út tónleikadiskurinn Ekki Dauðir Enn þar sem öll bestu lög Mannakorna eru á einum frábærum geisladisk í mögnuðum útsetningum. Upptökur voru gerðar í Salnum Kópavogi þar sem þeir Pálmi og Magnús fengu til liðs við sig valinkunna tónlistarmenn ásamt fjögurra manna strengjasveit. Sérstakur gestur á tónleikunum verður hin unga og efnilega söngkona Hrund Ósk Árnadóttir sem m.a. sigraði í söngvakeppni framhaldsskólanna árið 2005 og söng þjóðhátíðarlagið sem Magnús Eiríksson samdi nú í ár. í samvinnu vi3... BORGARLEIKHUSIÐ HÚSASMIDIAN ...ekkert mál Atta manns hafa látist í umferðinni í ágúst: Aldrei fleiri látist í einum mánuði Umferðardeild miður sín út af banaslysum Jafnmargir látnir í umferðarslysum og allt síðasta ár Eftir Val Grettisson valur@bladid.net. „Ég man ekki eftir öðru eins,“ segir Árni Friðleifsson yfirlögreglu- þjónn umferðardeildar lögregl- unnar í Reykjavík, um mikinn fjölda banaslysa í ágústmánuði. Hann segir þetta hafa tekið mik- inn toll af umferðardeildinni og segir starfsmönnum líða beinlínis illa yfirþessu. Síðast lést tvítug stúlka þegar hún lenti í árekstri við sorpbíl. Slysið átti sér stað á Eiðavegi sem er skammt frá Egilsstöðum. Áreksturinn mun hafa verið mjög harður og höfnuðu báðar bifreiðar utan vegar. Ökumaður sorpbifreið- arinnar slapp öllu betur og án telj- andi meiðsla. Aldrei hafa verið jafnmörg bana- slys og nú í ágúst. Átta manns hafa látið lífið í sex banaslysum en í október árið 1995 létust jafn- margir í fimm banaslysum. Nítján manns hafa látist í bílslysum það sem af er ári. Á síðasta ári létust 19 einstaklingar í 16 banaslysum Starfsmönnum líóur illa vegna bana |-slysanna Árni Friflleifsson yfirlögregluþjónnum- ferðardeildarlögregl- unnar i Reykjavik samkvæmt Umferðarstofu. Versta slysahrina síðan mælingar hófust var árið 1977 en þá létust 37 ein- staklingar í 33 slysum allt árið. Eftirtekarvert er að flest bana- slys eiga sér stað í júní, ágúst og október samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu. Engar haldbærar skýringar eru á því hversvegna slysin eru flest í þessum mán- uðum en ökuskilyrði eru með besta móti á þessum tíma þó svo það geti verið mismunandi í október. Þá er umferð líka mikil á vegum úti. Umferðarstófa byrjaði ekki að skrásetja slys eftir mánuðum fyrr en 1985. Rafræn skráning byrjaði sama ár en skrásetning banaslysa hófst upprunalega árið 19 66. Stórslysamánuður Átta manns hafa látist íbílslysum en það hefur aðeins einu sinni áður gerst í Islandssögunni Mynd/Frikki Leikfangafyrirtæki hótar lögsóknum: Lesbísk Barbie Leikfangaframleiðandinn Mattel hyggst lögsækja brasilískan lista- mann fyrir að mála leikfangadúkk- una Barbie í lesbískum athöfnum. Karin Schwarz hefur sett upp sýn- ingu á vinsælum bar í borginni Curitiba og eru nokkrar myndir á sýningunni af Barbie að láta vel að kvenmanni. Talsmaður Mattel sagði fyrirtækið tilbúið að gefa Schwarz sólarhring til að taka niður myndirnar en ann- ars yrði gripið til aðgerða. Schwarz segist hins vegar tilbúin að fara í hart. „Mattel er að nota Barbie. Hún er látin klæðast undirfötum, sýna á sér magann, er með stór brjóst og á m.a.s. kærasta," sagði Schwarz. Talsmaður Mattel sagði hins vegar: „Barbie er siðfáguð kona og hún er ekki ánægð með að vera sýnd sem eitthvað sem hún er ekki. Umdeildar myndir Mattel vill ekki sjá lesbíska Barbie né að aðrir sjái myndiraf henni. Við ætlum að fara í mál og vonandi kennir það fólki lexíu. Barbie er 46 ára og á virðingu skilda!" Dominosrán: Þjófur handtekinn Lögreglan í Reykjavík handtók tæplega tvítugan pilt í fyrradag grunaðan um að hafa stolið peningatösku sem pitsusendill af Dominos var að fara með í banka. Pilturinn játaði brotið á sig en var búinn að eyða fénu á veitinga- stöðum miðbæjarins. Þjófnaður: Rændi tólum Á mánudaginn var tilkynnt um innbrot í nýbyggingu en þar hafði verkfærum verið stolið. Lögreglan telur líklegt að atvikið af átt sér stað um helgina síðustu. Einnig kom upp mál þar sem gas- kúti var stolið en það mun vera þriðja tilfellið á örfáum dögum.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.