blaðið - 30.08.2006, Blaðsíða 26

blaðið - 30.08.2006, Blaðsíða 26
38 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 blaöið HVAÐ FINNST ÞER? Kemur Akraborgin aftur? „Afogfrá. Hins vegarer faögóð viðskiptahuginyhd fyrir framkvæmdaglaða einstaklinga að bjóða upp á skemmti- siglingar milli Akraness og Rcykjavíkur. " Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi Á fundi samgöngunefndar í gær var ræddur sá möguleiki að taka upp strandsiglingar að nýju til að draga úr álagi á þjóðvegum landsins. Áætlunarferðir Akraborgarinnar voru lagðar nlður eftir að Hvalfjarðargöngin voru opnuð. Smáborgarinn Á brimbretti með flugdreka Anna María Torfadóttir er hefur mörg áhugamál. Hún er kennari í Austurbæjarskóla, þolfimikennari og líka mikil ævintýramanneskja. Anna lagði stund á þolfimikenn- aranám í Danmörku fyrir tíu árum og segir að mikill áhugi á dansi og heilsusamlegu líferni hafi orðið til þess að þetta nám varð fyrir valinu. Þegar tími gefst leggur Anna Mar- ía líka stund á margs konar ævin- týramennsku, meðal annars kletta- klifur og „paragliding" sem felst í því að það er gengið á fjöll með svif- væng og svo er annaðhvort hlaupið niður hlíðarnar þar til fólk tekst á loft eða stokkið fram af fjalli. „Það fer eftir því hvað maður er hugaður hvort maður stekkur fram af eða ekki, en það að geta farið í fjallgöngu og mega svo bara svífa niður finnst mér alveg æðislegt.“ „Ég er líka mikil sjóbrettaáhuga- manneskja og út frá því hef ég far- ið í það að stunda „kite-surfing“. Þetta gerði ég nú í sumar þar sem ég dvaldist á Spáni í fimm vikur „Kite-surfing“ gengur út á það að maður fer með bretti út á sjó og er svo dregin áfram af eins konar flugdreka sem kallast kraftdreki í þessu tilfelli. Þetta virkar alveg eins og flugdreki á þann hátt að maður nýtir vindinn til að draga sig áfram. Mér finnst mjög gaman að stunda íþróttir þar sem spennan felst í því sem náttúran hefur fram að færa. í þessum íþróttum er maður aldrei með neinn mótor sem gefur kraftinn, heldur koma þeir allir frá náttúrunni. í „kite-surfing“ er fólk jafnvel að takast á loft og fljúga á brettunum yfir sjónum sem er mjög skemmtilegt," segir Anna og hlær. Hvað stendur svo til að gera í vetur? „Ég er að fara að kenna eins kon- dans-þolfimi tíma í World Class sem innihalda salsa spor og fleira ’æmmtilegt. Svo langar mig líka mikið til að fara eitthvað um jólin til að stunda „kite-surf“ og helst ein- hvern dans í leiðinni. Þetta krefst þess að ég þarf að fara eitthvað mjög sunnarlega þannig að Suður-Afríka er inni í myndinni. Sonur minn verður hjá pabba sínum næstu jól og í stað þess að hanga án hans yf- ir hangikjötinu þá finnst mér það skemmtilegri tilhugsun að fara eitthvað suður til að dansa og sigla, eða fljúga á brimbretti," segir þessi skemmtilega ævintýramanneskja að lokum. margret@bladid. net Ævintýramanneskjan Anna María Torfadóttir Stundar brimbrettasiglingar með flugdreka, klífur fjöll og svífursvo fram af þeim. Þess á milli kennirhún börnum í Austurbæjarskóla og þolfimi í World Class. BiaM/FMi UNG OG FALLEG Fyrir nokkrum árum kvörtuðu menn sáran undan því að meðal- aldurinn á Alþingi væri í hærra lagi og ungt fólk ætti ekki nógu marga fulltrúa á þeirri ágætu samkomu. Stjórnmálaflokkarnir brugðust greinilega við gagnrýninni því að eftir síðustu þingkosningar fylltist steinhúsið við Austurvöll af ungum og upprennandi stjórn- málamönnum sem margir hverjir voru nýskriðnir út úr háskóla. Það sama var uppi á teningnum í kosningum til borgarstjórnar nú í vor. Allir flokkarnir stilltu upp ung- lingum framarlega á lista, jafnvel í oddvitastöðu. Þetta var ungt og myndarlegt fólk sem brosti fallega og kom vel fyrir. Draumatengda- sonurinn eða -dóttirin. Það verður að viðurkennast að þessir ungpólitíkusar eru upp til hópa frekar einsleitir og óáhuga- verðir. Það er ekki nóg að vera Það verður að viður- kennast að þessir ung- pólitíkusar eru frekar einsleitir og óáhugaverðir. ungur og fallegur ef maður hefur ekki sjálfstæða skoðun og getur ekki komið fyrir sig orði nema í gömlum klisjum. Það hefur ekkert upp á sig að setja á sig bindi og þykjast vera fullorðinn ef maður hefur engar nýstárlegar og frum- legar hugmyndir. Það skýtur á vissan hátt skökku við hversu óáhugaverðir og hugmyndasnauðir ungu stjórn- málamennirnir okkar eru. Maður hefði þvert á móti haldið að ungt fólk gæti leyft sér að vera frumlegt og storka gömlu kempunum. Þó að þeir láti gjarnan í sér heyra hefur því miður lítið kveðið að þessum ungu og fallegu stjórn- málamönnum okkar og enginn þeirra getur talist sérstaklega eftirminnilegur. í fljótu bragði sér maður engan tilvonandi Össur, Steingrím J eða Davíð í þessum hópi. Hugsanlega eru þeir í stjórn- málum vegna pólitískrar rétthugs- unar urn að á framboðslistum verði að vera viss breidd. Nema þeir séu þarna bara upp á punt. Þetta er náttúrlega myndarlegt fólk sem tekur sig vel út á vegg- spjöldum og auglýsingum og hvað er meira við hæfi þar sem kosningar nú til dags eiga meira skylt við fegurðarsamkeppnir en stjórnmál. SU DOKU tainaþraut Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt I reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: 4 8 6 9 3 8 4 2 7 9 5 1 3 5 6 3 7 7 2 5 6 9 2 7 1 4 2 3 4 7 6 9 8 4 5 6 1 2 7 9 3 7 9 6 3 8 5 4 1 2 1 2 3 4 7 9 5 6 8 9 3 8 2 4 6 1 7 5 2 6 1 5 9 7 8 3 4 5 7 4 8 3 1 9 2 6 6 8 9 7 5 3 2 4 1 4 1 2 9 6 8 3 5 7 3 5 7 1 2 4 6 8 9 11-2 <D Jim Unger/dist. by United Media, 2001 Hann sagði þetta aldrei! Ég sá varir þínar hreyfast. HEYRST HEFUR... Fregnir um að Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrún- ar, léti þar af störfum komu ekki öllum á óvart. Stórfeng- legt tap á fjölmiðla- og fjarskiptafyr- irtækinu var af þeirri stærð- argráðu að ljóst mátti heita að sækja þyrfti nýja vendi. Innan úr Dagsbrún heyrist að það hafi verið Gunnar Smári sjálfur, sem stakk upp á því, að hann yfirgæfi samkvæmið og einbeitti sér að því að stýra Dagsbrun Mediafond, en svo skal hann heita, nýi fjárfest- ingasjóðurinn að baki Nyheds- avisen í Danmörku... að fellur hins vegar í skaut Árna Pétri Jónssyni að taka til í Dagsbrún og það skjótt. Árni Pétur þykir hafa staðið sig vel við rekstur Og Vodafone og nú á hann að koma sömu festu á í fjöl- miðlahluta Dagsbrúnar. Þar nýtur hann þess sjálfsagt líka að tengjast einstökum verkefn- um og deildum í fjölmiðlafa- brikkunni í Skaftahlíð ekki, en þar hafa mæst stálin stinn að undanförnu... Talið er að hinn nýi forstjóri muni þegar taka til við niðurskurð og sparnað. Hvísla menn um að DV verði slegið af innan tíðar, enda er það nú aðeins prentað í um 13.000 ein- tökum og seld eintök nokkru færri. Hefur Páli Baldvini Baldvinssyni ekki hafa tekist að finna blaðinu nýtt erindi sem helgarblað og telja menn að nýtt blað Reynis Traustasonar munigeraþví enn erfiðar fyrir, en stefnt er á útgáfu þess í október... Stóra spurningamerkið er hins vegar sett við Nýju fréttastofuna (NFS). Hún hefur reynst dýrari í rekstri en að var stefnt, en áhorfið hefur látið á sér standa ef undan eru skildir þeir dagskrárliðir, sem eru í samsýningu með Stöð 2. Fyrir vikið þykir mönnum lít- ið hafa unnist, þó þeir Róbert Marshall og félagar á NFS þyki um margt hafa gengið vel við að koma á nýjum vinnu- brögðum við gerð sjónvarps- frétta. Hefur sú hugmynd komið upp að sjálfstæð útsending NFS verði aflögð, en NFS muni áfram starfa sem verktaki við gerð fréttaefnis og skyldra þátta fyrir Stöð 2. Island í bítið og Is- land í dag muni því lifa ásamt Silfri Egils og hugsanlega tóri Pressan áfram sem afleysing fyrir Silfrið... andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.