blaðið - 30.08.2006, Blaðsíða 15
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006
SKOÐUN I 27
Viðhorf
Skiljum við Framsókn
Sjálfstæðismenn eiga ekki að
festast í götóttu neti við Framsókn-
arflokkinn. Næsta ríkisstjórn þarf
að rétta af þjóðarskútuna með
aðferðum sem þekkjast ekki í her-
búðum Framsóknar. Vantraust
sjálfstæðismanna á Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur á ekki að neyða
þá til áframhaldandi samvinnu
við spillta örflokkinn Framsókn.
Bankamenn og auðmenn hafa
leikið hér of lausum hala með Val-
gerði Sverrisdóttur sem viðskipta-
ráðherra. Þeir hafa nú komið af
stað verðbólgu en kenna um lélegri
hagstjórn ríkisstjórnarinnar! Það
hentar þeim núna.
Valgerður Sverrisdóttir ákvað að
dansa við auðmenn þjóðarinnar,
reyndar líkt og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir gerði. Almenningur
horfir á tilþrifin á dansgólfinu
með betliaugum og sumir dans-
herranna telja sig geta sýnt stjórn-
völdum í tvo heimana og hafa dóm-
stólana í vasanum. Sjálfur forsetinn
lætur glepjast af gleðskapnum og
sér til þess að málgögn herranna
geti ótruflaðir sagt frá afrekum
þeirra.
Viljum við þetta, sjálfstæðismenn?
Frjálshyggjuformúlan segir að
menn skuli keppa án hjálpartækja
einstakra ráðherra, þingmanna og
lögmanna. Siðferðisbrestur í við-
skiptum skal fordæmdur en ekki
verðlaunaður í Hæstarétti.
Hvar standa frjálshyggjufor-
ingjar Sjálfstæðisflokksins I dag?
Víst er, að þeir hafa verið rægðir
og leitast hefur verið við að rýja
„Framsóknar-
flokki verður
komið frá
völdum.”
Jónána
Benediktsdóttir
þá trausti. Davíð Oddsson, Björn
Bjarnason og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir eru þeir ráðherrar,
sem hafa þorað að gagnrýna að-
ferðir forkólfa viðskiptalifsins,
en þau hafa talað fyrir daufum
eyrum framsóknarráðherra og
stjórnarandstöðunnar.
Að hlusta á raddir almennings
Sjálfstæðismenn hafa i valdatíð
sinni komið á því frjálsræði sem
hér ríkir í efnahagsmálum og al-
þjóðaviðskiptum. Þeir hafa leyst
úr læðingi öfl sem ættu að koma
öllum til góða. Það er kristaltært
og sést á fylgi flokksins að enginn
stjórnmálaflokkur á íslandi býr
yfir jafnmikilli þekkingarbreidd,
hæfileikum, áræðni og heiðaleika
og Sjálfstæðisflokkurinn.
Sú hagsæld, sem hér ríkir, á eftir
að koma allri þjóðinni til góða, en
það mun því aðeins ganga eftir ef
forpokuðum Framsóknarflokki
verður komið frá völdum. Fram-
sóknarmenn ráða ekkert við ráðu-
neytin sín og eru ekki nægilega
hugrakkir til þess fara gegn fá-
mennum hagsmunahópum.
Þeir sem ekki hlusta á raddir al-
mennings tapa íkosningum. Fólkið
fer einfaldlega annað. Or því að Siv
Friðleifsdóttir og Jónína Bjartmarz
komust ekki til valda í Framsókn-
arflokknum hefur dánarvottorðið
verið skrifað og nú á aðeins eftir að
stimpla það..
Ekki óttast fýluna í Framsóknl
Ýmsir íhaldsmenn í Sjálfstæð-
isflokknum auk Morgunblaðsins
leggja sig fram um að styggja ekki
framsóknarmenn, því þeir fara í
fýlu við minnstu gagnrýni. Þegar
framsóknarmenn fara í fýlu endist
hún kynslóð fram af kynslóð. Þeir
hætta að heilsa, neita að hitta fólk
og gleðjast við það eitt að sýna vald
sitt.
Það er til mikils að vinna, Sjálf-
stæðismenn, að óttast ekki fýluna
í Framsókn! Hægristefna okkar er
ekki orsök þeirrar misskiptingar
sem þjóðin býr við heldur dauf-
heyrn framsóknarmanna og stjórn-
arandstöðunnar. Er ekki í lagi að
viðurkenna það að við vorum illa
gift? Völdum ekki fallegustu stelp-
una á ballinu!
Höfundur er athafnakona í Reykjavík.
Sérstakur
heiðursgestur
Hinn árlegi stórdansleikur Milljónamæringanna verður í Súlnasal á Hótel Sögu laugardaginn 2. september.
Húsið opnar kl. 22. Miðaverð 2.000 kr. Miðasala í Súlnasal frá kl. 13 samdægurs. Up|j|singar í síma 525 9950
Söngvarar eru: Bogomil Font, Páll Óskar, Bjarni Arason og RaggWjarna. 'jt