blaðið


blaðið - 02.11.2006, Qupperneq 12

blaðið - 02.11.2006, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 blaöiö UTAN UR HEIMI ÍSRAEL O: Umsvifamikil hernaðaraðgerð á Gaza Sex Palestínumenn og einn ísraelskur hermaður féllu og þrjátíu og fimm særðust í átökum á Gaza-svæðinu í Palestínu í gær í kjölfar þess að ísraelski herinn hóf um- svifamiklar hernaðaraðgerðir. Loftárásir voru gerðar í norðurhluta Gaza og hermenn umkringdu bæinn Beit Hanoun. Talsmaður ísraelshers segir að gripið hafi verið að- gerðanna til þess að stöðva eldflaugaárásir palestínskra vígamanna á byggðir í (srael. Japan: Egglos í farsímann Konur í Japan sem vilja eignast börn geta fengið upphringingu eða SMS-skilaboð í farsímann sinn þegar þær eru með egglos. Fyrirtækið sem býður þessa þjónustu fær fyrst upplýsingar um tíðahring kvennanna og reiknar síðan út hvenær líklegast sé að þær verði barnshafandi. Boðið var upp á þjónustuna þegar í ljós kom að fæðingum í Japan hafði fækkað í fyrra. Betri heyrn - bætt,:r-a! ' Pantaðu tíma í he/rnarmælingu og fáðu ráðgjöf um hvernig nýjasta kynslóð heyrnartækja getur hjálpað þér að heyra betur Kaupþing Ekstra Bladet fullyrðir að Baugur sé * mjög háður Kaupþingi '■ Umfjöllunin í Ekstra Bladet: Engin áhrif á markaðinn ■ Engar áhyggjur ■ Áhyggjur af éfnahagnum Eftir Ingibjörgu Báru Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Fjármálamarkaðurinn lætur sér í léttu rúmi liggja þær upplýsingar í Ekstra Bladet sem fram hafa komið. Og fyrir mig sem starfa á þessum markaði eru þær ekki áhugaverðar,” segir Lars Christensen, sérfræð- ingur hjá greiningardeild Den Danske Bank í Kaupmannahöfn, um greinaflolck Ekstra Bladet um ís- lenska athafnamenn og meint skatt- svik þeirra. „Það sem skiptir máli er staða efnahagsmála á íslandi almennt og hún hefur ekkert með umfjöllun blaðsins að gera. Við höfum hins vegar enn áhyggjur af þróun efna- hagsmála á fslandi,” bætir Lars við. Hann segir það jafnframt mat sitt að fall krónunnar um 2 prósent síð- astliðinn föstudag hafi frekar verið tákn um taugaveiklun á markaðnum en vegna áhrifa greinaskrifa. f gær fullyrti Ekstra Bladet að Baugur væri mjög háður Kaup- þingi um allar fjárfestingar og meint skattsvikakerfi bankans. Minnst er á Baugsmálið svokall- aða og að Jón Ásgeir Jóhannesson, sem berjist gegn ímynd sinni sem glaumgosi, hafi kært til Mannrétt- indadómstólsins vegna langrar meðferðar málsins. Ekstra Bladet fullyrti jafnframt að tveir danskir lögmenn, Jeff Galmond og Claus Abildström, hefðu hjálpað Björgólfi Thor Björg- ólfssyni og föður hans, Björgólfi Guðmundssyni, að verða millj- arðamæringar. Sagt er frá því að feðgarnir hafi farið til Rússlands til að freista gæfunnar og einnig er greint frá viðskiptum Pálma Har- aldssonar sem blaðið kallar fyrrver- andi grænmetiskaupmann. Áhugi annarra danskra fjölmiðla á greinaflokki Ekstra Bladet hefur dvínað frá því i upphafi vikunnar. Mundueftirdðfinno besta verðið áðurenþúkaupirdehk! 3 \Su Smurþjónusta • Alþrif • Rafgeymar 'if* /#ASSH Car-rental / Bílaleiga • DekkjaþjónustavM £3 Sími: 557-9110 www.bilko.is Sími: 555 3330 www.hasso.is Vetrardekk - Heilsársdekk- nagladekk - loftbóludekk &J - Betri verd! öj® Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.