blaðið - 02.11.2006, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006
blaðið
HVAÐ FINNST ÞÉR? li
folk folk@bladid.net Var þetta Norðurlands- skjálftinn? „Já, þetta var náttúrlega skjálfti á Norðurlandi en ég vona að það verði ekkert meira úr þessu."
Rágtiar Stefánsson,
j urðs kj á Iftafræ ðitigur
Jarðskjálfti upp á 4,5 á Richter mældist í gærvið
Flatey á Skjálfanda. Fleiri tugir eftirskjálfta fylgdu í
kjölfarið. Ragnar Stefánsson býr fyrir norðan og varð
hressilega var við skjálftann.
HEYRST HEFUR...
Launagreiðslur frá KSl til
íslenskra fótboltakvenna
eru naumt skammtaðar eins og
greint hefur verið frá í fréttum
að undanförnu. Knattspyrnu-
samband
fslands hefur
haft minna
í launaum-
slögum kvenna
en karla. Margir
hafa hvatt KSI
til að gera þar
bragarbót á, en sjái þeir ekki að
sér þá mæla femínistar með því að
fólk borgi sérstakan góðverka-að-
gangseyri inn á landsleiki kvenna-
landsliðsins. Einnig hafa komið
upp hugmyndir um að íslenskar
fótboltakonur segi sig úr KSÍ og
stofni sitt eigið samband. Þá gætu
þær staðið að eigin tekjuöflun og
selt inn á leiki enda hefur það sýnt
sig að þær geta trekkt vel að á leiki
með þokkabrögðum í auglýsinga-
herferðum. Þó benda forkólfar KSÍ
á að það dugi ekki til.
Getraunir á netinu eru vinsælar
um þessar mundir. Á dög-
unum stóð Gettu betur-kappinn
Stefán Pálsson fyrir getraun á
vefsíðu sinni undir yfirskriftinni
Kannastu við kauða þar sem fólk
átti að reyna að geta upp á nöfnum
þekktra einstaklinga. Sumum
fannst fullmikil karllægni í leik
Stefáns og ekki leið á löngu áður
en annarri getraun var hleypt af
stokkunum á annarri síðu undir
yfirskriftinni Kannastu við kerlu.
Rithöfundurinn
og blaðamaðurinn
Þórunn Hrefna
Sigurjónsdóttir
lætur ekki heldur
sitt eftir liggja og
blés um daginn til bókmenntaget-
raunar á bloggsíðu sinni. Þar er
Þórunn Hrefna á heimavelli, enda
lagði hún stund á bókmenntafræði
í háskólanum á sínum tíma og er
vel að sér um ýmsa jöfra íslenskra
bókmennta, ekki síst meistara
Megas og Þórberg Þórðarson.
•• ' ‘
fgg |
■/ ■■ f
Hamborgarasósa
Þú þekkir
bragðið
og eggjalaus
gerir gcefumuninn
VOGABÆR
Sími 424 6525 www.vogabaer.is
Veit aldrei hverju
maður á von á
-4-,
Strembið starf Björgunarsveitarkonan Sóley Ein-
arsdóttir segir að leit geti tekið mjög iangan tíma og
menn viti aldrei fullkomnlega hverju þeir eigi von á.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
stendur fyrir fjáröflun um þessar
mundir undir yfirskriftinni Neyð-
arkall frá björgunarsveitunum og
bjóða félagar til sölu svokallaðan
Neyðarkall sem er lítil eftirlíking
af björgunarsveitarmanni. Starf í
björgunarsveit höfðar ekki síður til
neyðarkvenna en neyðarkarla og
ein þeirra sem hefur tekið virkan
þátt í slíku starfi er Sóley J. Einars-
dóttir sem er í útkallshópi á björgun-
arskipinu Ásgrími.
Hún er búin að starfa í sjóbjörgun-
arhópnum í tæpt ár og hefur þegar
þurft að fara í fjögur útköll.
„Það tekur náttúrlega á en sem
betur fer hefur maður ekki enn þá
komist i kynni við mjög alvarlega
hluti. Hvert útkall er undirbún-
ingur fyrir það,“ segir Sóley og
bætir við að hún þurfi alltaf að vera
í viðbragðsstöðu því aldrei er að vita
hvenær næsta útkall kemur.
„Leit getur staðið yfir mjög lengi
og maður veit í raun og veru aldrei
fullkomlega hverju hægt er að eiga
von á. Oft gefst lítill tími til að taka
sig til þegar útkallið kemur og þá
þarf útbúnaðurinn að vera tilbúinn
til að grípa hann með sér. Maður
lendir sem betur fer ekki á hverjum
degi í slíku en hugsar út í þetta ef
maður fer til dæmis út úr bænum
um helgar,“ segir Sóley.
Leit er mjög krefjandi, bæði lík-
amlega og andlega, og er björgun-
arsveitarfólk því oft undir miklu
álagi. „Það skiptir máli að halda sér
ágætlega rólegum og hafa skipulag
á hlutunum. Þegar farið er í útkall
skiptir miklu máli að fólk sé þjálfað
í sem flestu þannig að hver og einn
geti hlaupið í störfin," segir Sóley og
bætir við að mikilvægt sé að björg-
unarsveitarmenn æfi reglulega til
að vera betur undir það búnir að tak-
ast á við raunverulegar aðstæður.
eftir Jim Unger
12-20
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
förnum vegi
Hefurðu gert
símaat?
Anton Andrésson, nemi „Já,
þegar ég var yngri. Ég hringdi í
einhvern mann og þóttist þekkja
hann."
Stefán Stefánsson, banka-
starfsmaður og Sóley Sigurð-
ardóttir „Já, fyrir frekar löngu
síðan.“
ívar Orri Aronsson, nemi „Já,
ég gerði síðast símahrekk fyrir
einhverjum árum síðan.“
Kristinn Páll Teitsson, nemi
„Já, það hefur komið fyrir. Ekkert
nýlega samt, bara þegar ég var
Helgi Tómasson, nemi „Já, fyrir
löngu síðan.“
Hvað meinarðu með að tíminn sé búinn?