blaðið - 02.11.2006, Page 28

blaðið - 02.11.2006, Page 28
36 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 blaðið Peter Sellers telst í hópi frægustu gamanleik- ara 20. aldar. Þótt hann hafi venjulega þótt stórskemmtilegur á hvíta tjaldinu var hann fremur óskemmtilegur í einka- lífi, afar mislyndur og erfiður í umgengni. Hann fæddist árið 1925. For- eldrar hans voru farandleikarar og honum tókst aldrei að mynda var- anleg vináttubönd við önnur börn vegna stöðugra flutninga. Hann var einkabarn foreldra sinna og móðir hans dekraði hann ákaft. Þrettán ára gamall hætti Sellers í skóla og fékk vinnu í leikhúsi hjá móðurbróður sínum við tiltekt og seinna sem ljósameistari. Frá þeim tíma vissi hann að hann vildi verða leikari. Fyrstu sporin á frægðarbraut Árið 1951 kvæntist hann ástr- alskri leikkonu, Anne Hayes. Hann krafðist þess að hún hætti að vinna og hún gekk að þeim kröfum. Hjón- bandið entist í ellefu ár en reyndist eiginkonunni erfitt því Sellers var ekki auðveldur í sambúð, kröfu- harður, afbrýðisamur og dyntóttur. Hjónin eignuðust tvö börn sem Sell- ers sinnti lítið. Sellers vakti verulega athygli fyrir vel heppnaða útvarpsþætti með Spike Milligan og Harry Sec- ombe og þeir félagar skemmtu iðulega á sviði. Þeir nutu sérstakra vinsælda meðal yngri kynslóðar- innar sem hafði dálæti á fárán- leikahúmor þeirra. Fyrsta góða kvikmyndahlutverk Sellers var í myndinni The Ladykillers og eftir það lék hann í hverri myndinni á fætur annarri. Hann öðlaðist gríð- arlegar vinsældir fyrir túlkun sína á lögreglumanninum seinheppna Clouseau í myndunum um Bleika pardusinn, en fyrsta myndin var gerð árið 1963 og sú síðasta árið 1978. Milli heimsog helju Hjónabandi hans lauk eftir að eiginkona hans gafst upp á framhjá- höldum hans. Sellers hitti sænska leikkonu Britt Ekland og bað hennar eftir ellefu daga kynni. Hún tók bónorði hans en sagði seinna að hún hefði ekki verið ástfangin af honum heldur full lotningar vegna frægðar hans. Sellers var 38 ára gamall og Britt 21 árs þegar þau giftust. Þegar þau höfðu verið gift í 46 daga fékk Sellers hjartaáfall. Hann var fluttur á gjörgæslu þar sem hann fékk annað hjartaáfall. Honum var ekki hugað líf. Dagblöð og tímarit höfðu hraðar hendur og hófu að skrifa minningargreinar um leikrann og feril hans. Öllum til furðu hjarnaði hann við. Heilsa Peter hans varð aldrei söm og áður og hann varð að nota gangráð. Lifað í hlutverkum Þeim sem þekktu Sellers bar saman um að hann hefði ekki getað lifað öðruvísi en í hlutverki. Hann tók ætíð á sig það gervi sem hann lék í kvikmynd. Hann varð per- sónan, ekki bara á hvíta tjaldinu heldur einnig í hinu daglega lífi. Þetta gerði eiginkonum hans erfitt fyrir því þær urðu sífellt að laga sig að nýrri persónu. „Þegar ég hef lokið við að leika hlutverk finnst mér ég vera týndur," sagði hann eitt sinn. Hann var mik- ill dulhyggjumaður, sannfærður um að vera úr öðrum heimi fylgdi sér og verndaði. „Þetta er mjög ein- kennilegt, að sumu leyti er þetta eins og bölvun,“ sagði hann við vin sinn. „Fólk sem hefur reynt að leggja stein í götu mína hefur orðið fyrir alls kyns skakka- föllum. Ég trúi því ekki að ég sé sérstök manneskja en ég veit að það fer illa fyrir fólki sem er sér- staklega vont við mig. Það er mjög einkennilegt." Peter Sellers Þótt hann hafi venju• tega þótt stórskemmtilegur á hvita tjaldinu var hann fremur óskemmti- legur i einkalífi, afar mislyndur og erfiður i umgengni. Greiðslukjör í allt að 36 mánuði (visa/euro) Engin útborgun Sjóntækjafræðingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga § Gleraugað Bláu húsin við Faxafen Suðurlandsbraut 50 108 Reykjavik Sími: 568 1800 Fax: 568 2668 gleraugad@simnet.is www.gleraugad.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.