blaðið - 02.11.2006, Qupperneq 30
3 8 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006
blaöió
Nicorette Fruitmint
Nýtt bragð
sem kemurá óvart
Nicortrtte nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar rtíykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem btístum árangrí skal ávallt fylgja leiöbeíningum í fylgisríðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve míkið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeím. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgíseðli. í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúöarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þorf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstööuga versnandi hjartaöng, aivarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóöfall eiga ekki aö nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaóar konur og konur meó barn á brjósti eiga ekki aö nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjaó er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauösynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Handhafi markaösleyfis: Pfizer ApS. Umboð á íslandi: Vistor hf., Horgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is
*Tilboðsverö 2006
Dragtir kr 7990
Rýmum til fyrir jólavörum, allt að 50%
af völdum vörum i nokkra daga
konan
Konur vinna meira en fá minna
Konur leggja fram 66 prósent af vinnuafli heimsins
en uppskera einungis 11 prósent af tekjunum fyrir
vinnuframlag sitt.
i
konan@bladid.net
Athafnakona „Það erad kannski
öðruvísi að vera kona i viðskiptum en
kart og konur þurfa að sanna sig meira
út á við en karlar. En hvað rekstur
varðar þá fer velgengni eftir persónu-
leikanum, ekki kyninu," segir Ingibjörg
Þorvaldsdóttir í Oasis og Habitat sem
er komin átta mánuði á leið.
Ingibjörg Þorvaldsdóttir er komin átta mánuði á leið
Fjölskyldan númer
eitt, tvö og þrjú
Ingibjörg Þorvaldsdóttir hefur
þrátt fyrir ungan aldur látið
til sín taka í verslunarrekstri
á Islandi og verið verslunareig-
andi í meira en sjö ár. Ingibjörg
byggði upp Oasis-verslanirnar á ís-
landi sem hún seldi síðastliðið vor
en hún rekur nú fimm Oasis-versl-
anir í Danmörku. Nú í haust festi
hún kaup á Habitat-versluninni á
Islandi sem hún rekur ásamt eigin-
manni sínum, Jóni Arnari, og það
eru spennandi tímar framundan.
„Það er í mörgu að snúast þessa
dagana. Dagurinn er yfirleitt ekki
nógu langur til að klára verkefnin
sem liggja fyrir. Við erum að færa
búðina í aðra mynd og markmiðið
er að taka inn allt sem Habitat hef-
ur upp á að bjóða. Ég sé einnig um
markaðs- og kynningarmál fyrir
verslunina þannig að það er nóg að
gera en mér finnst þetta gaman og
vinnan er einnig áhugamálið mitt,”
segir Ingibjörg.
„Það fer alltaf partur af deginum
í að sjá um reksturinn á Oasis-versl-
ununum sem við rekum í Dan-
mörku en við hófum þann rekstur
fyrir tveimur árum og rekum þar
fimm verslanir.” Ingibjörg segir að
það sé aðeins erfiðara fyrir hana
núna að reka verslanir í öðru landi
þar sem hún sé komin átta mánuði
á leið. „Ég stekk ekki upp í flugvél
eins og ég var vön en við erum með
gott fólk sem vinnur fyrir okkur úti
og síðan eru samskipti svo auðveld
í dag þannig að þetta gengur mjög
vel.“
Ingibjörg segir að það sé kannski
öðruvísi að vera kona í viðskiptum
en karl og að hún finni fyrir því að
konur þurfi að sanna sig meira út á
við en karlar. „En hvað rekstur varð-
ar þá fer velgengni eftir persónuleik-
anum, ekki kyninu.”
Ingibjörg og Jón Arnar eiga einn
son og nú er annað barn á leiðinni.
Ingibjörg segir að það geti verið snú-
ið að sameina vinnu og fjölskyldu.
„Sonur okkar hefur fengið að vera
mikið með okkur. Við vorum í
Danmörku í heilt ár að byggja upp
verslanir þar og þá fékk hann að
vera mikið með okkur. Við skiptum
líka með okkur verkefnum og reyn-
um alltaf að hætta á milli fjögur og
fimm á daginn og förum þá frekar
aftur að vinna eftir að sonurinn er
sofnaður, ef við þurfum þess.Við er-
um líka að vinna að því að safna að
okkur góðu fólki svo að við getum
haft meiri tíma fyrir fjölskylduna,”
segir Ingibjörg en hún bætir því
við að fjölskyldan sé alltaf númer
eitt og hennar aðaláhugamál. Hún
segir jafnframt að hamingjan felist
í því að eiga góða að sem maður
elskar og treystir og að vera sáttur
í einkalífi og starfsframa. „Það er
númer eitt, tvö og þrjú að eiga góða
að svo að hitt geti gengið upp.”
Ingibjörg byrjaði ung að vinna
í Sautján-verslunum en hún var
þrettán ára þegar hún byrjaði að
vinna þar. „Ég lærði mjög mikið á
þeirri vinnu og var verslunarstjóri
í Sautján áður en ég keypti Oasis.
Það var unnið í öllum fríum og
eftir skóla. Ég tel það mikilvæga
reynslu fyrir unglinga að kynnast
atvinnulífinu.
Það er Iíka mikilvægt að hafa trú
á sjálfum sér og halda ekki að ein-
hver annar geti gert hlutina betur
en maður sjálfur. Mér hefur reynst
best að láta vaða með þær hugmynd-
ir sem ég hef trú á og veit að ég get
framkvæmt,” svarar Ingibjörg þeg-
ar hún er beðin um að gefa einhver
góð ráð sem reynst hafa henni vel
i lífinu.
Aöferöir til að
efla hamingjuna
í hjónabandinu
Bókin Hjónaband og sambúð er
komin út hjá JPV útgáfu. Bókin
byggir á vinsælum hjónanám-
skeiðum sem séra Þórhallur Heimis-
son hefur haldið undanfarin 10 ár.
í bókinni er fólki bent á nýjar
aðferðir til að efla hamingjuna í
sambúðinni og ekki veitir af í dag
þegar um 40 prósent hjónabanda
enda með skilnaði. í bókinni tekur
Þórhallur fyrir þau mál sem einna
helst brenna á sambúðarfólki í dag,
eins og tímaleysið, stressið, fram-
hjáhöldin, peningamálin, kynlífið
og margskonar ósætti og bendir
á leiðir út úr vandanum. Bókin er
samin út frá íslenskum aðstæðum
og í henni er að finna fjölda verk-
efna og aðferða sem lesendur geta
nýtt sér í sínu hjónabandi. Bókin er
ætluð öllum sem eru í sambúð eða
á leið í sambúð, óháð aldri, kyn-
hneigð, þjóðfélagsstöðu og trú.