blaðið - 02.11.2006, Page 31
blaöiö
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 39
Magnesíum fyrir stressaða
Skortur á magnesíum hefur áhrif á varnir líkamans gegn alls kyns
umhverfisáreiti og umhverfishljóðum. Þannig getur hröð umferð, og
hávær tónlist verið meira truflandi fyrir fólk sem skortir þetta efni en
aðra. Til að hressa upp á magnesíummagnið í líkamanum er gott að
fá sér hnetur, þurrkaða ávexti, sardínur, grænt salat og heilkorn.
heilsa
Lofnarblóm
Lofnarblómaolía er góð fyrir alla þá sem eiga erfitt með að festa svefn
og slaka á. Lofnarblóm er þekkt fyrir að vera róandi, gott gegn leiða,
hreinsandi og uppbyggjandi. Nokkrir dropar í baðvatnið til að auka á ró-
andi áhrif baðsins. Gott er einnig að láta olíu í bómull og láta hana gufa
upp á ofninum, þá verður andrúmsloftið einkar róandi og slakandi.
heilsa@bladid.net
Svefninn er góður
Góður svefn er gulls ígildi og jafn
mikilvægur heilsunni óg hollt mata-
ræði og hreyfing. Það eru þó margir
sem láta svefninn sitja á hakanum
og fá ekki nægan svefn. Svefn er
mældur bæði í magni og gæðum og
talað er um að sjö tíma svefn á nóttu
sé ráðlagður dagskammtur eða næt-
urskammtur fyrir fullorðna. Það
er ýmislegt sem hefur áhrif á gæði
svefnsins og gott að hafa það í huga
fyrir þá sem finnst þeir ekki rísa út-
hvíldir úr rekkju að morgni.
■ Áfengi hefur áhrif á djúpsvefn-
inn og veldur því aö þú vaknar fyrr,
áöur en þú ert úthvíldur.
■ Kaffi, te, kóka kóla og súkkulaði
hafa áhrif á svefngæðin og best
er að sleppa þessum gleðigjöfum
seinnihluta dags.
■ Streita veldur sumum erfiðleik-
um með að festa svefn og þeir sofa
órólega. Gott er að nota tónlist til
að slaka á og gott ráð er að skrifa
niður það sem er að angra þig og
leyfa þér síðan að sleþpa áhyggjun-
um alla vega fram á morgun.
■ Sjónvarpsgláp. Það hefur ekki
góð áhrif á svefninn að horfa á
hryllingsmynd eða æsispennandi
sjónvarpsefni rétt fyrir svefninn.
Þeir sem eiga erfitt með að festa
svefn ættu einnig að iáta æsi-
spennandi reyfara eiga sig.
■ Nammi. Sælgæti sem hækkar
blóðsykurinn og vekur líkamann
er ekki gott fyrir svefninn. Betra
er að fá sér hollan bita eins og
banana eða mjólk.
■ Umhverfið hefur líka mikið að
segja um gæði svefns. Svefnher-
bergið á að vera griðastaður og
það er ýmislegt hægt að gera svo
að það þjóni hlutverki sínu til fulls.
Hitastigið í svefnherberginu á að
vera um 20 stig og alltaf á að sofa
við opinn glugga og huga að því
að gott loft sé í herberginu.
Það er mikilvægt að hafa dimmt
í herberginu þar sem minnsta
Ijósglæta hefur áhrif á framleiðslu
líkamans á melatóníni sem er efni
sem viðheldur góðum svefni.
Best er að herbergið sé málað
í róandi litum og að það sé ekki
yfirhlaðið af dóti og drasli sem
truflar hugann.
■ Sjónvörp og tölvur eiga alls ekki
heima í svefnherbergjum. Slík raf-
magnstæki eru truflandi og gefa
frá sér rafsegulbylgjur sem hafa
slæm áhrif á svefninn og að sofna
við sjónvarp virkar truflandi og
kemur í veg fyrir að þú sofnir.
Hlaupastingur
Margir kannast við að hafa feng-
ið hlaupasting þegar þeir eru úti að
skokka. Hægt er að komast hjá því
að fá hlaupasting með því að passa
að borða ekki of mikið eða of lítið
áður en hlaupið er. Það er gott ráð
að borða einn banana hálftíma áður
en hlaupið er. Hlaupastingur gerir
einnig vart við sig ef öndunin er
ójöfn, það getur því verið gott ráð
að hugsa um öndun og anda í takt
við skrefin sem eru tekin, anda inn
þrjú skref og anda út þrjú skref. Ef
stingurinn gerir vart við sig er gott
að beygja sig fram og hægja á hlaup-
unum og ganga á meðan verkurinn
líður hjá.
Aldrei er góö vísa
of oft kveðin
Eins og allir vita þá er það líkam-
anum nauðsynlegt að drekka 8 glös
af vatni á dag. Vatnsskortur hraðar
á öldrunareinkennum líkamans og
heilinn virkar ekki eins vel, melting-
in fer úr jafnvægi og húðin springur
og þornar. Það er ekki bara nauðsyn-
legt að drekka nóg vatn fyrir innri
líffærin heldur skiptir það miklu
máli fyrir húðina sem er stærsta
líffæri mannslíkamans. Þurr húð
virkar grófari og er oft viðkvæmari.
Kannanir hafa einnig sýnt að það
er fylgni á milli rakastigs húðar og
einbeitingar, því þurrari húð þeim
mun erfiðara á fólk með að einbeita
sér. Ásamt því að drekka nóg vatn
er mikilvægt að nota rakakrem á
húðina.
NOBLAUCH +
Sstel + WeiDdorr
mw vffomtn t
5ALMON OIL CAPSULES
OMEGA 0 FATTY ACID5
120 Kap^ein
Fjölskylda af fjörefnum
- m.a. vítamín með ávaxtabragðl
20% kynningarafsláttur
2. nóvember til 9. nóvember
Fæst í: Arbæjarapóteki, Garðsapótek, Lyfjavali Alftamýri, Lyfjavali Hæðasmára,
Lyfjavali Mjódd, Lyfjaver og Rimaapóteki.
«Ha. , adoPhaþma m*- % fiOKoC-h jLA
■ ABOPHARA adoP| " jp®
'A JWwwWw