blaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 3
blaðið FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006
VINNUVÉLAR I 23
Öðruvísi
fegurðarsamkeppni:
aursti
Benz
landsins valinn
Nýverið opnaði Askja fullbúna
þjónustumiðstöð fyrir Mercedes-
Benz atvinnubíla við Skútahraun
2 í Hafnarfirði. Við það tilefni var
slegið til mikillar hátíðar þar sem
gestum bauðst meðal annars að
aka Benz bifreiðum. En það sem
vakti þó mesta athygli var að
haldin var fegurðarsamkeppni
fyrir Mercedes-Benz atvinnu-
bifreiðar. Keppt var í þremur
mismunandi flokkum og sigur-
vegarar í hverjum flokki fyrir sig
voru verðlaunaðir. Síðan var
skorið úr um það hver af þremur
sigurvegurunum þótti eiga feg-
ursta Benzinn og að lokum stóð
Óskar Haukur Gíslason frá Jök-
ulfelli ehf. uppi sem sigurvegari
með Actros dráttarbíl sinn.
Fegurðarsamkeppnir hjá bílum
eru ekki óalgengt fyrirbæri og
því er við hæfi að skoða nánar
nokkrar bifreiðar sem hafa
unnið sér það til frægðar að
vera taldar fagrar kerrur ein-
hvers staðar í heiminum.
Sturlaugur & Co
Taka við umboði fyrir Astra
Sturlaugur & Co. gengu ný-
verið frá samningum við ítalska
fyrirtækið Astra. Astra framleiðir
meðal annars hinar svokölluðu
búkollur og vörubíla sem vinna við
mjög erfið skilyrði hjá verktökum.
Búkollurnar frá Astra eru nú þegar
orðnar vel þekktar hér á Islandi og
í hugum margra eru þær að verða
táknmynd stórframkvæmdanna
við Kárahnjúka.
Umboðið fyrir Astra-bílana er
mjög mikill fengur fyrir Sturlaug
& Co. og Sigurjón P. Stefánsson,
sölustjóri hjá fyrirtækinu, segir að
sú reynsla sem komin sé nú þegar á
þessa bíla hér heima segi að hér séu
einstaklega góðir bílar á ferðinni.
„Impregilo er búið að framkvæma
allt á Kárahnjúkum á bilum og
trukkum frá Astra. Þeir hafa verið
með um 50 trukka í vinnu nú í þrjú
ár og reynslan af þeim hefur verið
alveg í sérflokki."
Öflugar vinnuvélar Sturlaugur
& Co. hafa fengið umboð fyrir
Astra-búkollur og vörubíla.
Áratuga frábær reynsla af NEW HOLLAND vinnuvélunum á íslandi eru bestu meðmælin!
& NEW HOLLAND
Eigum fyrirliggjandi ún/al af stórvirkum vinnuvélum
sem og fjölvirkum smávélum - Veldu vél sem hentar þlnu verki!
Malarvagnar
Fiskislóð 14
101 Reykjavlk
Slmi. 551 4680
www.sturlaugur.is
STURLAUGUR & CO
Langendorf S\