blaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 12

blaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 blaöið UTAN ÚR HEIMI Arabi skipaður ráðherra Raleb Majadele hefur verið skipaður í embætti ráðherra vísinda- og tækni- mála í ísrael og er þar með fyrsti múslíminn af arabískum uppruna sem gegnir ráðherraembætti í ísrael. Þúsundir festust í skíðabæ Um tuttugu þúsund manns, þar af þrettán þúsund skíðamenn, festust í austurríska alpabænum Sölden þegar stórir grjóthnuliungar féllu úr hlíðum fjalls á eina veginn sem liggur að bænum. Bæjarstjórinn segir nokkra skíðamenn hafa misstu af flugfari sínu. Rannsakar ekki viðskipti Bildts Christer van der Kwast, sænski ríkissaksóknarinn, hefur sagt að viðskipti Carls Bildts utanríkisráðherra með verðbréf rússneska fyrirtækisins Vostok Nafta verði ekki rannsökuð frekar. Bildt segist fagna yfirlýsingu van der Kwast, en segir að hún hafi ekki komið á óvart. Borgarfjörður: Fótbrotnaði í fjallgöngu Karlmaður sem hugðist bregða sér í miðnæturfjallgöngu á Grábrók fyrir ofan Bifröst féll við með þeim afleiðing- um að hann fótbrotnaði. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi mun maðurinn hafa verið undir áhrifum áfengis. Lögregl- an í Borgarnesi þurfti að sinna nokkrum útköllum í fyrrinótt. Tilkynnt var um þrjú innbrot í sumarbústaði í Svínadal og voru miklar skemmdir unnar á verðmætum auk þess sem ein- hverjum verðmætum var stolið. Lögreglan rannsakar máhð. Kína: Skortur á kvenfólki Árið 2020 verða þrjátíu milljónum fleiri karlmenn en kvenmenn á giftingaraldri sam- kvæmt nýrri skýrslu kínverskra stjórnvalda. 1 skýrslunni er þeim áhyggjum lýst yfir að erfitt verði fyrir milljónir karlmanna að finna sér eiginkonu og að kynjamunurinn muni leiða af sér þjóðfélagslegan óstöðugleika. Hagtölur sýna að 118 strákar fæddust á móti hverjum hundr- að stúlkubörnum árið 2005. í Kína er einungis heimilt að eignast eitt barn og er talið að meirihluti foreldra kjósi að eignast stráka. Fóstureyðing- ar á kvenkyns fóstrum hafa aukist á undanförnum árum eftir að kynjagreiningar urðu ódýrari. Þá er talið að talsvert sé um að fæðingar á stúlku- börnum séu ekki tilkynntar til yfirvalda sem skyldi. Mikilvægar tekjur Á síðasta ári fékk Hafnarfjarðarbær ríf- lega hundraö milljónir í tekjur vegna álversins í Straumsvík og áætlaðar tekjur i ár gera ráð fyrir rúmum tvö hundruð milljónum. B! fl Ci | 1" • ,lrB f »r ii íi Tekjur Hafnarfjarðarbæjar vegna álversins í Straumsvík: Rúmlega hundrað milljóna tekjur fyrir síðasta ár ■ Gefa ekki upp samanburðartölur ■ Tekjurnar segja aðeins hálfa sögu Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Þessar tekjur skipta okkur auð- vitað heilmiklu en við höfum sagt að þær ættu að vera meiri. Tekjurnar segja samt ekki nema hálfa sögu þar sem afleiddar tekjur vegna starfseminnar eru töluverðar því fjölmargir rekstr- araðilar í bænum byggja á þjónustu við álverið," segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Á sfðasta ári fékk Hafnar- fjarðarbær hundrað og tíu milljónir í tekjur vegna álversins í Straums- vík. Þær samanstanda af framleiðslugjaldi af hverju tonni af áli sem framleitt er og tekjum sem greiddar eru til Hafn- arfjarðarhafnar. Áætlað er að bærinn fái rúmar tvö hundruð milljónir í tekjur á þessu ári, ef frumvarp um breytingar á skattlagningu álversins ganga í gegn. Blaðið leitaði eftir samanburðartölum um tekjur bæjarins frá öðrum fyr- irtækjum en þær fengust ekki upp- gefnar hjá bæjarskrifstofunni. Enginn óháður Pétur Óskarsson, talsmaður Sólar í Straumi sem berst gegn stækkun álsversins, undrast að bærinn veiti ekki samanburðartölur því þær eigi ekki a ð MJÓLKURVÖRUR í SÉRFLOKKI w VÖRUR ff m FLOKKI S§Ls(+p' Er mikið ála ? í skólanum? LGC+ er fyrirbyggjondi vörn! Streita og kvíði, skyndibitafæði, sætindi, stopular máltíðir - allt þetta dregur úr innri styrk og einbeitingu, veldur þróttleysi og getur raskað bæði ónæmiskerfinu og meltingunni. LGG+ er sérstaklega þróað til að vinna gegn þessum neikvæðu áhrifum og dagleg neysla þess tryggir fulta virkni. vera leyndarmál. Hann segir í fljótu bragði líta út fyrir að bærinn vilji ekki láta tölurnar frá sér. „Við leggjum áherslu á að enginn máls- aðili er óháður í þessu og allir hafa verið að birta sínar eigin útgáfur af tölum. Bærinn er þar ekk- ert undanskilinn og hefur hagsmuna að gæta líkt og aðrir,“ segir Pétur. „Við viljum fá óháða aðila til þess að yfirfara og end- , urskoða " a 1 1 a r $ tölur og :' g0 gn ; málsins áður en m á 1 i ð v e r ð u r kynnt op- inberlega fyrir bæjar- búum. Við viljum bara að heiðarlegu ljósi sé varpað á þetta mál, fyrr er ekki hægt að ganga til kosninga.“ TEKJUR 2006 FRAMLEIÐSLUGJALD: 70 HAFNARFJARÐARHÖFN: 40 SAMTALS: 110 Allar tölur eru í milljónum króna. ÁÆTLAÐAR TEKJUR 2007: I FRAMLEIÐSLUGJALD, TEKJUSKATTUR 0G I FASTEIGNAGJÖLD: 172 HAFNARFJARÐARHÖFN: 40 SAMTALS: 212 Allar tölur eru I milljónum króna. Fullt fang Aðspurður segir Lúðvík saman- burðartölur ekki ljósar og ekki víst að bænum sé heimilt að gefa þær upp. Hann telur það ekki meg- inágreiningsefni umræðunnar að svo stöddu að togast á um tölur. „Ég hef ekki íhugað það sérstaklega að fá óháða aðila til að samræma allar tölur. Við höfum haft í nógu að snúast og höfum verið upptekin við deiliskipulagið og kosninga- fyrirkomulagið. I raun höfum við alveg haft fangið fullt með það,“ segir Lúðvík. „Þegar nær dregur verður sjálfsagt kallað eftir öllum gögnum og þau verða auðvitað lögð fram eins og þau liggja fyrir.“ blaðiðs SMAAUGLYStNGAR@BUDID.NET Heimsókn forseta Alþingis til Sádi-Arabíu: Kaupa vörur fyrir milljarða Kingdom’s Imports From lceland Touch SR287m Lu Wa Shalhoub. Arab Nows JEDDAH, 11 January 2007 — Saleh Al-Turki, chairman of Jeddah Chamber of Commerce and Industry (JCCI), said yesterday that Saudi Arabia and Sólveig í Sádí-Arabíu Forseti Alþingis fundaði með k sádi arabískum ráðamönnum 1 í fyrradag. I Otflutningur íslendinga til Sádi- Arabíu er um þrisvar sinnum meiri en útflutningur Sáda til íslands samkvæmt upplýsingum Arab News. Sádar fluttu út vörur til Is- lands fyrir um tvo milljarða króna árið 2005 á meðan íslendingar fluttu út vörur til Sádi-Arabíu fyrir um fimm og hálfan milljarð sama ár. Að sögn Arab News fluttu fs- lendingar fyrst og fremst inn sjáv- arafurðir og landbúnaðarafurðir. f viðtali við Arab News segir Saleh Al-Turki, formaður Viðskipta- ráðs Sádi-Arabíu, að samband ríkj- anna sé traust. Þá segir hann að þó tölurnar segi að munur sé á útflutn- ingi ríkjanna þá sé hann viss um að útflutningur einhverra sádiarab- fskra olíufyrirtækja til fslands hafi ekki verið tekinn með f reikninginn. Heimsókn Sólveigar Pétursdóttur, forseta Alþingis, til Sádi-Arabíu í boði forseta ráðgjafarþings landsins lauk í fyrradag. Með Sólveigu í för voru þrjár þingkonur auk Belindu Theriault, forstöðumanns alþjóða- mála á skrifstofu Alþingis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.