blaðið - 13.01.2007, Side 38

blaðið - 13.01.2007, Side 38
3 8 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 blaöiö Birna Karen Einars- dóttir er ein af farsæl- ustu fatahönnuðum landsins og fatalínur hennar eru seldar í mörgum löndum víðs vegar um heim. Hún rekur tvær verslanir undir nafn- inu Birna Concept Shop, önnur er í Reykjavík en hin í Kaupmannahöfn, þar sem hún hefur búið í fjórtán ár. Samt sem áður segist hún alls ekki hafa ætlað í fatahönnun heldur hafi hönnunin frekar leitað hana uppi. ,Ég hef alltaf haft rosalegan áhuga á fötum en ekki fatahönnun þannig séð og ætlaði því alltaf að gera eitt- hvað allt annað. Amma mín var saumakona og þegar ég var lítil saum- aði hún öll fötin á mig. Ég sagði henni hvað ég vildi nákvæmlega og hún bjó það til handa mér, enda saumaði hún hvað sem var. I þá daga hafði ég sjálf enga þolinmæði til að sauma og var til dæmis hent út úr saumatímum í grunnskóla, ég var bara sett í smíðar með strákunum. Þegar ég varð eldri fór ég sjálf að sauma á mig og hef alltaf búið til mín eigin föt. Svo hitti ég mann á götu í Kaupmannahöfn sem spurði mig hvar ég hefði fengið kjólinn sem ég var í. I kjölfar þess bað hann mig um að hanna föt fyrir búðina sína og ég ákvað að prófa það. Svona hefur þetta æxlast og fatahönn- unin kom eiginlega frekar til mín, enda gekk salan vel. Eftir þrjú ár ákvað ég að læra fatahönnun þvi ég vildi vita meira um allt ferlið." Vil ekki tjöldaframleiðslu Birna opnaði verslun á Istedgade í Kaupmannahöfn fyrir rúmu ári en íslenska verslunin hefur verið opin i þrjá mánuði. „Báðar búðirnar ganga rosalega vel og viðskiptahópurinn hefur stækkað, enda höfum við verið áberandi í dönskum fjölmiðlum und- anfarið. Auk þess eru nokkrar frægar danskar konur sem klæðast fötunum mínum þrátt fyrir að vera mjög mis- munandi týpur en við fáum fullt af kúnnum út á það. Búðin hér heima hefur gengið betur en ég bjóst við og ég er mjög ánægð með það. Mig hefur alltaf langað að opna búð hér heima og ég hugsaði með mér að ef það myndi ekki ganga þá myndi ég bara loka aftur. Auk þess sel ég hönnun mína til margra landa, til dæmis til Svíþjóðar, Noregs, Þýskalands og Færeyja. Reyndar er ég að breyta að- eins til núna og segja upp nokkrum búðum sem ég hef verið að vinna með. Mig langar að vinna með búðum sem kaupa vel inn, kynna vörurnar almennilega og leggja upp úr því að vörurnar fái sérpláss í búðinni. Ég ætla því að finna nokkra góða staði sem kaupa vel inn og svo er hönnun mín einungis þar. Þá heldur varan sér- stöðu sinni og er ekki úti um allt og fjöldaframleidd sem ég vil alls ekki.“ Föt sem fara ekki úr tísku Birna hannar föt fyrir konur á öllum aldri og hún segir að flík- urnar séu ekki endilega tískuföt. ,Mér finnst ég ekki hanna tískuföt því þetta eru mjög hlutlaus föt sem breytast ekki mikið á milli árstíða. Þetta eru ekki föt sem fara úr tísku því þau eru ekki í tísku en hægt er að nota þau við allt mögulegt. Það er örugglega þess vegna sem mér hefur gengið svona vel,“ segir Birna sem setur tvær fatalínur á markað á ári. „Núna er ég að byrja á línu með tíu flíkum sem verður einungis til sölu í mínum búðum. Það verða fimm flíkur hér og fimm í Kaup- mannahöfn og kúnninn fær þá flík sem verður aldrei til aftur. Þótt ég myndi helst vilja að öll hönnun mín væri þannig þá er ekki hægt að lifa á því. A næsta ári stefnum við að því að gera litla barnafata- og herralínu. Aðaláherslan verður ennþá á kvenna- föt en það verður eitthvað af barna- og herrafötum með. Auk þess ætla ég að opna fleiri búðir en staðsetn- ingin kemur í ljós síðar.“ Nánast eins og leikrit Birna segir að fyrirtækið hennar sé pínulítið, enda stefni hún ekki á heimsyfirráð. „Ég ætla ekki að opna búðir úti um allan heim því ég vil ekki að allir séu i fötunum mínum. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hönnunin sé ekki til alls staðar. Mér finnst allt eyðileggjast ef það eru margir í sama jakkanum. Ég hef aldrei pælt í því hvort ég sé að fylgja tískunni eða ekki. Ég kíki ekki í ein- hver blöð og eltist við hugmyndir, ég bý til það sem mig langar til að búa til. Auðvitað verð ég alltaf fyrir einhverjum áhrifum en fyrir mér er tíska afstætt hugtak og mér finnst orðið fáránlegt. Fólk á bara að vera í því sem klæðir líkamann vel og það langar til að vera í. Það skemmtileg- asta við klæðaburð er að þú getur búið til mismunandi persónur og þetta er nánast eins og leikrit. Ef ég væri í þröngum hvítum kjól og með rauðan varalit þá myndi fólk mynda sér aðra skoðun á mér en það gerir í dag. Klæðaburður segir til um hvernig heimurinn lítur á þig og það að geta gefið mismunandi merki i mismunandi aðstæðum finnst mér athyglisvert og skemmtilegt.“ Er rosalegur egóisti Birna viðurkennir að það geti verið erfitt að reka heilt fyrirtæki og sér- staklega hafi það verið erfitt fyrstu árin. „Þá vann ég 18-20 tíma á sól- arhring og það var fyrst fyrir svona einu ári sem ég gat farið að vinna eðlilega. Ég tók líka jólafrí í fyrsta sinn á síðasta ári,“ segir Birna og hikar. „Það var eiginlega hræðilegt, ég vissi ekkert hvað ég átti að gera og ég var að fríka út. Eg er byrjuð í jóga og það hjálpar mér að slaka á. Þegar maður er vanur að gera svona mikið þá fær maður spennusjokk og verður veikur þegar maður slappar loksins af. Ég á voðalega erfitt með að gera ekki neitt og get til dæmis ekki farið í fri í meira en eina viku á sólarströnd þvl þá verð ég að gera eitthvað. Þess vegna hefur þetta gengið því mér finnst fínt að vinna mikið. Eg vinn ennþá mikið en mér finnst það í góðu lagi því ég fæ samt sem áður meiri gæðatíma með fjöl- skyldunni,“ segir Birna og vill ekki kannast við að vera mikil fjölskyldu- kona. „Ég held ég sé bara rosalegur egóisti, það segja að minnsta kosti flestir sem þekkja mig. Sennilega er ég helst fjölskyldumanneskja á kvöldin en ég er ekki þannig að ég elski að elda, taka til og hafa fínt í kringum mig. Ég eyði tíma mínum í skemmtilegri hluti en heimilisstörf.“ Minna lífsgæðakapphlaup í Danmörku Birna segist vera orðin dálítið þreytt á því að búa í Danmörku og sé að íhuga að flytja til Islands á næsta ári. „Eg á danskan kærasta og við eigum fimm ára gamla stelpu. En það var ekki út af karlmanni sem ég flutti til Danmerkur en mér fannst ég finna einhvern meðalveg þar. Það var ekkert alltof mikið né alltof lítið. Maður verður mjög þreyttur af að vera í London eða New York í langan tíma. Þegar ég hafði verið í Dan- „Ég á voðalega erfitt með að gera ekki neitt ogget til dæmis ekki farið ífrí í meira en eina viku á sólarströnd því þá verð ég að gera eitthvað. Þess vegna hefur þetta gengið þvi mér finnst fint að vinna mikið." mörku í hálft ár þá fann ég þessa ró inni í mér, að geta verið einhvers staðar en ég hef ekki verið á sama stað lengi síðan ég var 16 ára. Það er þægilegt að vera í Kaupmannahöfn, það er alltaf fullt að gerast þar en sömuleiðis getur ekkert verið að ger- ast. Kaupmannahöfn er líka mjög góður staður til að ala upp börn og fínt land til að búa í þótt Danirnir geti verið erfiðir. Það er ekki eins rosalegt lífsgæðakapphlaup í Dan- mörku og hér, þar er maður ekki núll og nix ef maður á ekki hús, bíl, hund og tvö börn,“ segir Birna og bætir við að hún og maðurinn hennar séu að íhuga að flytja til Islands. „Það er gott að koma í heimsókn og það Bima Einarsdóttir: „Þetta er ekki föt sem fara úr tísku þviþau eru ekki ítísku en hægt er að nota þau við allt mögulegt. Það er örugg- lega þess vegna sem mér hefur gengið svo vel. “

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.