blaðið - 13.01.2007, Page 39

blaðið - 13.01.2007, Page 39
blaöiö LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 39 verður alltaf betra og betra. Ég hef samt aldrei haft heimþrá en ég hef náttúrlega ekki búið á Islandi síðan ég var 18 ára gömul. Undanfarna daga höfum við keyrt út um allt og velt fyrir okkur hvort við ættum að flytja heim.“ Viðbrigði að eignast barn Aðspurð hvort margt hafi breyst þegar hún varð móðir segir Birna svo vera. „Þá gat ég ekki stungið af lengur heldur varð að vera kyrr. Það var rosamikið sjokk og ég held að allir finni fyrir því þegar þeir eignast börn. Ég var alltaf viss um að ég gæti gert þetta og hitt þegar barnið svaf en svo svaf barnið mitt ekkert í hálft ár. Maður var því negldur niður og ég er ekkert rosalega jarðbundin þannig að þetta voru mikil viðbrigði. Ég var ekki með fæðingarþunglyndi en mér fannst ég vera föst. Ég opnaði líka fyrirtækið mitt um leið og hún fæddist sem var mjög erfitt. Maður- inn minn setti því sinn frama á bið og sá helst um heimili og barn á meðan ég kom fyrirtækinu af stað. Við erum mjög mikið með dóttur okkar því ég á enga fjölskyldu í Danmörku og maðurinn minn á litla fjölskyldu." Teikna það sem mér finnst flott Birna segist ekki eiga í erfiðleikum með að fá hugmyndir og hún fái inn- blástur af því einu að vera lifandi. „Ég er endalaust með einhverjar hug- myndir í hausnum og þannig hefur það alltaf verið. Ég horfi á fólk og breyti fatnaði þess í huganum. Ég horfi mjög mikið á fólk en er þá bara að horfa á fötin. Sumir vinna út frá einhverju ákveðnu þema en ég hef aldrei gert það. Ég teikna það sem mér finnst flott og svo teikna ég endalaust á sömu teikninguna þar til mér finnst hún vera rétt og þá bý ég fötin til,“ segir Birna og bætir við að það sé áríðandi fyrir sig að starfið sé skemmtilegt. „Ég nenni ekki að gera eitthvað sem er leiðinlegt. Það er náttúrlega ekki alltaf skemmti- legt þegar maður er að vinna mikið og er þreyttur en núna er fyrirtækið farið að keyra sig sjálft. Ég er með mikið af góðu fólki í vinnu sem sér um búðirnar, sníðagerð og mismun- andi hluta í fyrirtækinu. Það er ro- salega erfitt að finna fólk sem ég get treyst á og veit að gerir allt án þess að ég þurfi að pæla í því. Þetta er voða gaman ef það gengur vel. Það er náttúrlega ekkert gaman ef það gengur ekki vel.“ Fær laun í fyrsta sinn Birna segist ekkert vera á leiðinni að hætta í hönnun. „Mér finnst lífið almennt gott. Ég er reyndar ekki sátt við að verða svona gömul eins og ég er að verða,“ segir Birna og hlær. „En lífið er voða fínt. Ég ferð- ast mikið og er að gera það sem mig langar til. A meðan þetta er gaman og það er skemmtilegt að fara í vinn- una þá held ég áfram að gera það sem ég geri. Ef þetta verður leiðin- legt þá hætti ég þessu bara. Þetta er bara vinnan mín, ég dey ekki ef ég geri eitthvað annað en það verður samt að vera gaman. Það er mjög áríðandi,“ segir Birna sem er að fá föst laun í hverjum mánuði í fyrsta sinn í langan tíma. „Ég greiddi mér ekki laun í mörg ár, það fór allt inn í fyrirtækið svo það gæti rúllað því það varð alltaf stærra. Ég hef aldrei þurft á öryggi að halda því ég veit að hlutirnir reddast, maður fer aldrei á götuna og hefur ekki að borða. Það er ekki möguleiki í þessu samfélagi sem við lifum í, enda fer ég ekki og kaupi bíl á Visa- raðgreiðslum eða eyði geðveiku á kreditkorti í London. Öryggi fyrir mér er að vakna lifandi og heilbrigð, peningarnir reddast bara.“ svanhvit@bladid.net Ferskt og sumarlegt Hér má sjá vor- og sum- arlínu Birnu sem kemur í búðir innan skamms. inu 1

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.