blaðið - 13.01.2007, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007
blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Þarf að sanna sig
Hinn skeggprúöi framkvæmdastjóri LA Galaxy, Alexi Lalas, hefur sagt aö David Beckham þurfi að sanna
sig líkt og hver annar leikmaöur hjá liðinu. „Margar erlendar stjörnur sem hafa komið hingað hafa litið á
veru sína hér sem launað fri. Það verður ekki liðið hér. Beckham þarf að sanna sig líkt og aðrir en ég hef
fulla trú á honum sem leikmanni." Margir muna eftir Lalas með landsliði Bandaríkjanna á HM 1994
þar sem hann sló i gegn bæði fyrir frammistöðu og skrautlegt likamlegt atgervi.
Skeytin inn
T”
f Jl
i
“onathan
| Woodgate
telur að
innreið Davids
* Beckhams í
bandaríska fót-
'ji boltann muni
opna flóðgátt-
irnar fyrir aðrar
stjörnur í Evrópu-
boltanum. „Hann
er frábær leikmaður
sem getur fengið fleiri
ofurstjörnur með
sér.“ Getgátur eru uppi um að
fyrrum félagar Beckhams hjá
Real Madrid, þeir Ronaldo, Zid-
ane og Louis Figo, séu allir að
hugleiða brottför vestur um haf
til að kynna bandaríska knatt-
spyrnu fyrir almenningi, gegn
veglegum launapakka.
Hollenski miðjumaður-
inn Edgar Davids sem
leikur með Tottenham
er einnig sagður á leiðinni til
Bandaríkjanna. Á hann í við-
ræðum við FC Dallas-liðið frá
Texas-ríki. „Samningaviðræður
hafa staðið yfir í tvær vikur.
Við fengum mikinn áhuga á að
fá hann þegar við komumst að
því að hann væri falur,“ sagði
Steve Morrow, stjóri
Dallas-liðsins. Davids
er orðinn 33 ára og
hefur ekki
átt fast sæti
í liði Totten-
ham á leiktíð-
inni. Hann hefur
áður leikið með
Ajax, AC Milan,
Juventus og Inter
Milan en hann er gjarnan
kallaður „Bolabíturinn“ sökum
kröftugs og ákafs leikstils síns.
Cristiano Ronaldo hefur
verið kosinn leikmaður
desembermánaðar í
ensku úrvalsdeildinni. Hann
er aðeins þriðji leikmaðurinn
sem afrekar að hljóta nafnbót-
ina tvo mánuði í röð en hann
var einnig leikmaður nóvemb-
ermánaðar. Ronaldo
skipar sér í flokk með
þeim Robbie Fowler
og Dennis Bergkamp
sem einnig hlutu sama
heiður á sínum tíma.
Ronaldo skoraði
sjö mörk í sex
leikjum og er
aðeins einu marki á eftir Didier
Drogba hjá Chelsea, sem er
markahæstur með 13 mörk.
Liðsfélagi Ronaldos hjá
Manchester United, Paul
Scholes, segir Portúgal-
ann vera besta leikmann heims
um þessar mundir: „Hann
getur gert allt. Tekið menn á,
skorað og gefið stoðsendingar.
Það er eiginlega ógnvekjandi
hversu góður hann er. Við
vonum bara
að seinni helm-
ingur tímabils-
ins verðijafn
góður hjá honum
og sá fyrri." Sir
Alex Ferguson
. hefur sjálfur sagt
að Scholes eigi skilið
/ T að vera kosinn besti
leikmaður tímabilsins
en Scholes segist geta gert
betur: „Ég hef spilað betur
en nú og ég vona að ég finni
það form aftur.“
i
X
Líður að kosningu formanns KSI
Jafet S. Olafsson Hefurmikla
reynslu innan íþróttasambandsins
Jafet með mótframboð
■ Geir mun hætta sem framkvæmdastjóri ■ Launamál formanns í brennidepli
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Jafet S. Ólafsson gefur kost á sér til
formannskjörs KSl á ársþingi sam-
bandsins þann 10. febrúar. Jafet var
formaður Badmintonsambandsins
í fjögur ár og hefur einnig víðtæka
reynslu úr viðskiptalífinu en hann
gegndi stöðu framkvæmdastjóra
VBS fjárfestingarbankans þar til
í nóvember, en situr enn í stjórn
fyrirtækisins. Að sögn Jafets lítur
hann ekki á formannsstöðuna sem
fullt starf: „Ég mun ekki sinna for-
mannsembættinu sem fullri stöðu
ef ég skyldi hljóta kosningu. Ég
mun láta framkvæmdastjóra sjá um
almennan rekstur sambandsins,
líkt og tíðkast hefur hingað til.“
Jafet segist einnig ekki vera með
neinar áherslubreytingar að svo
stöddu: „Það er allt of snemmt að
segja til um slíkt á þessu stigi máls-
ins. Ég er almennt ánægður með þá
stjórnunarhætti sem þeir Eggert og
Geir hafa sýnt fram að þessu en auð-
vitað má alltaf gera betur í öllu.“
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSl, gefur einnig kost á sér til
formanns. Hann hefur einnig gefið
út að hann muni ekki gegna stöðu
framkvæmdastjóra áfram, þó svo
hann hljóti ekki kosningu til for-
manns Knattspyrnusambandsins.
Geir hefur hlotið stuðning allra Suð-
urnesjaliðanna auk Knattspyrnu-
félags Reykjavíkur og þykir sigur-
stranglegur. Hinsvegar segist Jafet
hvergi banginn: „Ég væri nú ekki
að fara út í þennan slag ef ég hefði
ekkert á bak við mig. Eg hef hlotið
stuðning víðsvegar að en ég er samt
sem áður að bjóða mig fram á eigin
forsendum,“ sagði Jafet í gær.
Nefndur hefur verið þriðji fram-
bjóðandinn í formannskjörið, Viðar
Halldórsson, fyrrverandi landsliðs-
maður í knattspyrnu. Viðar sagðist
þó ekki gefa neitt upp ennþá: „Ég
hef heyrt af þessu tali um mig en
ég get ekkert staðfest í þeim efnum.
Við verðum bara að bíða og sjá hvað
framtíðin ber í skauti sér,“ sagði
Viðar.
Launamál Knattspyrnusam-
bandsins hafa verið i umræðunni
að undanförnu Aðeins sex menn
vita um laun formanns og er ákvörð-
unin tekin af fjórum mönnum. Þeir
eru allir í framkvæmdastjórn KSl
og er Eggert Magnússon formaður
í þeirri stjórn. Einnig hefur stefna
sambandsins varðandi kjör kvenna-
landsliðsleikmanna meðan á verk-
efnum stendur verið gagnrýnd
harkalega, en þau eru afar fjarlæg
því sem karlalandsliðið hefur úr að
spila.
Almenn ánægja ríkir þó með þá
auknu umgjörð sem íslensk knatt-
spyrna hefur skartað undanfarið,
stækkun Laugardalsvallar og fjár-
hagsstöðu sambandsins, sem er góð.
Frestur til að bjóða sig fram
rennur út þann 27. janúar.
Rafa Benitez kvartar undan kaupstefnu Liverpool:
Vill meiri pening
Rafael Benitez, stjóri hjá Li-
verpool, hefurkvartað undan því að
hafa ekki nægilegt fé til leikmanna-
kaupa. Liverpool lá í tvígang illa
fyrir Arsenal á hinum annars firna-
sterka heimavelli Anfield Road, þar
sem hinar ungu stjörnur Arsenal
gjörsigruðu Rauða herinn í síðari
leiknum, þrátt fyrir að Liverpool
skartaði sjö leikmönnum með
byrjunarliðsreynslu.
„Þeir eru með tvo til þrjá leik-
menn sem við vorum einnig að fylgj-
ast með en gátum ekki fengið vegna
fjárskorts. Ef maður vill fá hágæða-
leikmenn verður maður að geta
borgað fyrir þá, hvort sem um er
að ræða eldri og reyndari leikmenn
eða unga og efnilega leikmenn,"
sagði Benitez gramur.
Liverpool hefur á undanförnum
leiktíðum keypt mýmarga leikmenn
sem ekki hafa staðið sig sem skyldi
hjá liðinu. Á’ þeim lista eru leik- Antonio Nunez,
menn á borð við Emile Heskey, Pon- Pellegrino, og Jan
golle, Le Tallec, Salif Diao, Bruno Kromkamp. Sumir
Cheyrou E1 Hadji Diouf, Morientes, þessara leikmanna voru
Cissé, Harry Kewell, Neil Mellor, keyptir á tímum Gerards
Houllier og virtist sem álög hvíldu á
þeim leikmönnum sem hann keypti
til liðsins; um leið og þeir komu til
borgarinnar hættu þeir að spila af
þeirri getu sem þeir voru þekktir
fyrir. Benitez hefur samtals eytt 60
milljón pundum í leikmenn í valda-
tíð sinni. Til samanburðar má
nefna að Jose Mourinho hefur
eytt um 200 milljón
pundum á svipuðum
tíma. Hugsanlega
verður Benitez að
ósk sinni því við-
standa yfir um
yfirtöku á klúbbnum
og peningar virðast
engin fyrirstaða fyrir
viðskiptamennina frá
Dubai, en þeir eru á
meðal
10 ríkustu manna í
heiminum.