blaðið - 23.01.2007, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007
blaðið
INNLENT
aazBB
Þjófóttur öryggisvörður
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær öryggisvörð frá
Securitas í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnað í húsnæði Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi.
Öryggisvörðurinn stal bæði peningum og tölvubúnaði í
þeim tilgangi að fjármagna fíkniefnaneyslu sína.
VESTMANNAEYJAR
Bæjarráð mótmælir hækkun
(ályktun sem bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti í
gær var gjaldskrárbreytingum á fargjaldi með Herjólfi
mótmælt og harmað það skilningsleysi sem ríkir um
þjóðveg Eyjamanna. Gjaldskrá Herjólfs mun hækka að
meðaltali um 11,49 prósent 1. febrúar.
LITLA-HRAUN
Fangi kærir fanga
Fangi á Litla-Hrauni hefur kært samfanga sinn
fyrir líkamsárás og eignaspjöll til lögreglunnar á
Selfossi. Málsatvik eru þau að fanginn var sleg-
inn í höfuðið með plastdunki fullum af súpu en
áverkar hans reyndust hins vegar litilvægir.
Stjórnarandstaðan um Ríkisútvarpið:
Láta af málþófi
Umræðum um frumvarp
menntamálaráðherra um Ríkisút-
varpið lauk skyndilega á Alþingi
í gær eftir að Mörður Árnason,
þingmaður Samfylkingarinnar,
las upp sameiginlega yfirlýsingu
frá stjórnarandstöðuflokkunum.
Þar kom fram að umfjöllun þe-
irra um frumvarpið væri lokið að
sinni. Atkvæði verða greidd um
frumvarpið á Alþingi í dag og má
fastlega gera ráð fyrir því að það
verði samþykkt af hálfu stjórn-
arþingmanna, en að þingmenn
stjórnarandstöðu greiði atkvæði á
móti því.
f yfirlýsingu stjórnarandstöð-
unnar segir að myndi stjórnarand-
Ekki uppgjöf
heldur fyrirheit
um frekari
baráttu
MörðurÁrnason, þing-
maður Samfylkingarinnar
stöðuflokkarnir ríkisstjórn eftir
kosningar í vor verði lögin um Rík-
isútvarpið endurskoðuð. „Þetta
er ekki uppgjöf heldur fyrirheit
um að við höldum áfram að end-
urskoða þessi mál,“ segir Mörður
Árnason. „Við leggjum til að gildis-
takan verði seinna, eða eftir kosn-
ingar, en ríkisstjórnarflokkarnir
hafa ekki sæst á það.“
Meiri verðlækkun á
útsölunni
Engjateigi 5
Sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
HAPPDRÆTTI
BÓKATÍÐINDA
A hverjum degi desembermánaðar
voru dregnir út veglegir happdrættisvinningar.
Bókaúttekt aðandvirði 15.000 kr.
Happdrættisnúmerið þitt finnur þú
í Bókatíðindum 2006 á blaðsíðu 249.
Vinninga ber að vitja í næstu bókabúð fyrir 1. maí 2007
gegn framvísun baksíðu Bókatíðindanna.
Númer sem dregin voru út ern:
1. des:
2. des:
3. des:
4. des:
5. des:
6. des:
7. des:
8. des:
9. des:
10. des:
11. des:
12. des:
090691
088144
095685
106130
022269
011721
056451
047200
014990
027358
000527
061088
13. des:
14. des:
15. des:
16. des:
17. des:
18. des:
19. des:
20. des:
21. des:
22. des:
23. des:
24. des:
066802
010799
025279
000068
072121
030281
074492
000794
001573
001925
109542
046978
FÉLAG ÍSLENSKRA
BÓKAÚTGEFENDA
Guðni sigraði Hjálmar H/á/mar
Árnason hættir ípólitík og Eygtó
Harðardóttir telur fráleitt að
öörum en henni verði boðið sæti
hans. Mynd/SigurðurJónsson
P'fvf Vt' B' \ W l\f :I
r
K w m' Íi B I
Eygló Harðardóttir, frambjóðandi:
Fráleitt bjóðist
mér ekki sætið
■ Ekki óeðlilegar vangaveltur ■ Þakklátur fólkinu í kjördæminu
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ég tel fráleitt að hugsa til þess að mér
verði ekki boðið þriðja sætið í kjölfar
ess að Hjálmar ákvað að hætta.
g geri ekki ráð fyrir öðru en að
niðurstöður prófkjörsins gildi. Þan-
nig færist ég upp í þriðja sætið og óeðl-
ilegt ef öðrum aðila yrði boðið sætið,“
segir Eygló Harðardóttir, sem lenti í
fjórða sæti í prófkjöri Framsóknar-
flokksins 1 Suðurkjördæmi.
Um helgina lauk prófkjöri
framsóknarmanna í kjördæminu þar
sem Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins, sót-
tist eftir fyrsta sætinu ásamt Guðna
Ágústssyni, varaformanni flokksins.
Guðni vann baráttuna og Hjálmar he-
fur nú tilkynnt að hann ætli að hætta
í pólitík. Hann hefur jafnframt lýst
yfir áhyggjum sínum af hlutskipti
frambjóðenda af Suðurnesjum og
fleiri hafa tekið þátt í umræðunni um
hvort einhverjum Suðurnesjamanni
verði boðið sæti hans í staðinn.
Úrelt hugsun
Eygló furðar sig á þeirri umræðu
og segir það alveg skýrt að hún sé
að vinna fyrir allt Suðurkjördæmið.
Hún telur óeðlilegt að verið sé að
skipta sér af prófkjörum eða uppstil-
lingum einstakra kjördæma, og vísar
til skrifa Björns Inga Hrafnssonar,
borgarfulltrúa Framsóknarflokksins
og formanns borgarráðs.
„Það hefur ekki verið hefð i
Framsóknarflokknum að menn
skipti sér af prófkjörum eða uppstil-
lingum í öðrum kjördæmum. Ho-
num færi betur að hafa meiri áhyg-
gjur af stöðu flokksins í sínu eigin
kjördæmi. Ekki veitir af,“ segir Eygló.
„Þetta er einfaldlega úrelt hugsun þvi
það hefur alveg frá upphafi komið
skýrt fram að ég er í framboði fyrir
allt kjördæmið. Ég á erfitt með að
svara því hvernig ég myndi bregðast
við ef öðrum yrði boðið sætið, ég hef
enga trú á því að það muni gerast."
Ekki stakan staf
Á heimasíðu sinni svarar Björn
Ingi ásökunum um hreppapólitík
og segir vangaveltur sínar ré-
ttmætar í ljósi þess að fjörutíu
prósent kjósenda í kjördæminu séu
Suðurnesjamenn. Hann bendir á að
Hjálmar sjálfur hafi vakið athygli á
þessu.
„Það er ekki óeðlilegt að menn velti
því fyrir sér hvernig rétta megi hlut
Suðurnesja á framboðslistanum.
Þetta held ég að sé ekki aðeins sakle-
ysisleg athugasemd, heldur mjög ré-
ttmæt,“ segir Björn Ingi. „En að kalla
slík skrif afskipti af prófkjörum er
afar langsótt svo ekki sé meira sagt.
Það hef ég einmitt ekki gert. Nú er
prófkjörið hins vegar búið og mjög
eðlilegt að menn velti fyrir sér fram-
haldinu. Og því hvernig stilla megi
upp eins sigurstranglegum lista og
kostur er.”
Stórkostlegur stuðningur
Guðni er eins og gefur að skilja
ánægður með útkomuna. Hann segir
MFyrirmig
erþetta
stórkostlegur
stuðningur
Guðni Ágústsson,
varaformaður
Framsóknarflokksins
ljóst að Bjarni Harðarson muni þig-
gja annað sætið en segir óvíst með
hvortEyglófariíþriðjasætið. „Bjarni
fellir sjálfan þingflokksformanninn
og það væri nú meira ef hann tæki
ekki sætið sem hann sóttist eftir. Ég
veit ekki hvort Eygló verður boðið
þriðja sætið og hef ekkert heyrt um
það ennþá,“ segir Guðni. „Hjálmar
vildi taka þessa áhættu að keppa
við mig og ég þakka honum góða
vináttu og samstarf í gegnum tíðina.
Fyrir mig er þetta stórkostlegur
stuðningur og er ég þakklátur öllu
fólkinu í kjördæminu."
Ekki fulltrúar einstakra svæða
Eygló bendir á að Hjálmar hafi
verið góður fulltrúi Suðurnesja-
manna og að hann hafi sjálfur
ákveðið að draga sig í hlé. Hún
segir mikla eftirsjá í Hjálmari því
hann hafi verið sterkur þingmaður
flokksins í Suðurkjördæmi síðustu
tólf ár. „Að mínu viti er hins vegar
ekki æskilegt að fulltrúar flokksins
tali þannig að þeir séu fulltrúar
einhverra einstakra svæða innan
kjördæmis. Mér fannst þetta koma
skýrt fram í niðurstöðum prófkjör-
sins. Þetta er einfaldlega úrelt hug-
sun,“ segir Eygló.
Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins:
Þarfnaðist ögrunar
„Ég tel afleitt ef enginn Suðurnesjamaður
er í efstu sætunum. Suðurnesjamenn
virðast kunna vel að sækja sjóinn en
Sunnlendingar kunna betur að smala fé.
Mér fannst það ögrun að sækjast eftir
fyrsta sætinu en það gekk ekki eftir. Á
þessum tímapunkti vantaði mig ögrun því
maður verður að hafa neistann til að
vera í pólitík. Ég tók þessa ákvörðun
í fullri sátt og glaður í bragði. Minn
vinnuferill hefur einkennst af tíu ára
lotum og ég tel það hæfilegan tíma.
Nú hef ég verið í tólf ár á þingi
og sennilega var
minn tími kominn. Ég vil ekki
enda sem lúinn og uppgefinn
/ stjórnmálamaður. Ég hef góða
menntun og nú hefst nýr kafli
í mínu lífi. Ég hlakka til og sé
fram á eitthvað spennandi og
skemmtilegt."