blaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 21

blaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 21
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 29 Guðrún hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Guðrún Hannesdóttir hlaut Ljóð- staf Jóns úr Vör 2007 fyrir ljóð sitt Offors en Hjörtur Marteinsson og Eiríkur Örn Norðdahl viðurkenn- ingar fyrir sitt ljóðið hvor í árlegri samkeppni um Ljóðstafinn. Til- kynnt var um úrslitin og skáldun- um afhent verðlaun og viðurkenn- ingar við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi síðdegis á sunnudag. Um 400 ljóð bárust í samkeppnina að þessu sinni, en rökstuðningur dómnefndar fyrir veitingu Ljóð- stafsins í ár er svohljóðandi: „Ljóð- ið Offors lýsir jurt sem sumir kalla illgresi, en er þó matjurt sem runn- in er upp í fjarlægum heimshluta nálægt vöggu menningarinnar og fylgt hefur Islendingum um lang- an aldur. Mynd þessarar jurtar í ljóðinu er dregin á listrænan hátt sem sækir í íslenska alþýðuhefð. Jafnframt lýsir Offors óstýrilátu eðli rabarbarans og lífsseiglu og býður í lokin upp á fleiri en eina túlkunarleið að hætti margra nú- tímaljóða." Guðrún Hannesdóttir er þekkt- ust fyrir barnabækur sem hún hef- ur jafnframt myndskreytt, bæði eigin sögur og vísnabækur með gömlum barnavísum og þjóðkvæð- um sem hún hefur safnað. Myndir hennar hafa víða verið sýndar bæði heima og erlendis. Fyrir fyrstu bók sína hlaut hún viðurkenningu íslandsdeildar IBBY 1994 og fs- lensku barnabókaverðlaunin ásamt Sigrúnu Helgadóttur 1996. Einnig hlaut hún viðurkenningu fyrir ljóð- ið Þar í samkeppninni um Ljóðstaf Jóns úr Vör 2004. Það er Lista- og menningarráð Kópavogs sem stendur fyrir sam- keppninni sem kennd er við Jón úr Vör, en verðlaunaafhendingin fer fram á afmælisdegi skáldsins, 21. janúar, ár hvert. Ljóðstafurinn var fyrst veittur 2002 og er öllum heim- iít að senda ljóð í keppnina. Skáldið sem stafinn hlýtur hverju sinni fær DHI Skáldin Eiríkur Örn Norð- dahl, Hjörtur Magnússon og Guðrún Hannesdóttir. til varðveislu árlangt einn af göngu- stöfum Jóns úr Vör og nafn sitt letr- að á stafinn og minningargrip og peningaverðlaun að auki. f dómnefnd áttu sæti skáldin Sigur- jón B. Sigurðsson (Sjón) formaður, Hjörtur Pálsson og Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur. Spennandi slóðir Fyrir þá sem hyggjast leggja leið sína til Lundúna á næstu vikum er tilvalið að skoða hvað um er að vera á Tate Modern. Á vef safnsins er að finna allar upplýs- ingar um sýningar og viðburði á safninu auk spennandi myndefnis af ýmsu tagi. http://www.tate.org. uk/modern/ Á vef Tímarits Máls og menningar kennir ýmissa grasa. Ftitstjórinn, Silja Aðalsteinsdóttir, skrifar reglulega skemmtilega menning- arpistla þar sem víða er komið við. Finna má efnisyfirlit yfir tímarit síð- ustu ára auk bréfa frá lesendum og tilkynninga um listviðburði. www.tmm.is ÁTÍuþúsund tregawött má finna fjöldann allan af frum- sömdum Ijóðum og nýlegum þýðingum eftir ung og efnileg skáld. Ritstjórn hvetur einnig áhugasama til að senda inn hver- skyns efni til birtingar svo þetta er tilvalinn vettvangur fyrir skúffu- skáld að koma sér á framfæri. http://www.tregawott.net/ Bókaormar leggja flestir f vana sinn að fylgjast vökulu auga með bókagagnrýni og fréttum af útgáfumálum í þeirri von að eitt- hvað spennandi rati á náttborðið í kjölfarið. Á síðum The Times og The Sunday Times má finna bóka- gagnrýni eftir marga helstu menn- ingarpostula Bretlands. Þessi skrif eru aðgengileg á slóðinni http://www.timeson- line.co.uk/books.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.