blaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 34

blaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 blaöiA „Þetta erfáránlegt. Viö megum ekki spila Born inA Casket en megum spila Dismembered and Moiested. Hvort hljómar verra?“ George„Corpsegrinder" Fisher, um bann á tónlist Cannibal Corpse i Þýskalandi. ónlist Sænsk-gríska dauðarokkssveitin Nightrage hefur tilkynnt að gítar- leikarinn Constatin hafi gengið í raðir sveitarinnar. Constantine þessi er frá Aþenu, Grikklandi, og er sagður gríðarlega hæfileikaríkur gítarleikari sem sé tilbúinn að gefa sig allan í Nightrage. ■ Dimmur Borgir og Children of Bodom eru meðal sveita sem staðfest er að verði með í Graspop Metal Meeting sem haldið verður í júní í Belgíu. Aðrar sveitir sem hafa eru Sabaton, Pain of Salvation, Life of Agony, Brutal Truth, Finntroll, Amon Amarth og Korn. Þýska dauðarokkssveitin Necrop- haglst neyðist til að hætta við átta fyrstu tónleikana í væntanlegum Evróputúr sínum. Sveitin gefur þá skýringu að ófyrirsjáanlegar aðstæður hafi ráðið því að sveitin geti engan veginn spilað á tónleik- unum. FÖSTUDAGUR LAUGARDAGUR Svartmálmssveitirnar Finngálkn og Svartidauðí koma fram á hinum frábæra tónleikastaö Húsinu á Akureyri klukkan 20 I kvöld. Ekkert aldurstakmark er á tónleik- ana og kostar 500 krónur inn. I hléi verða drunur í boði Doomsayer. Svartmálms- og dauðarokkshausar eru hvattir til að mæta. Foreign Monkeys, Perfect Oisorder, Dimma, Celestine og Helshare spila reyndar ekki dauðarokk, en málefnið er gott. Sveitirnar koma fram á tónleikum til styrktar hjartveikum börnum á Sport- barnum Breiðholti. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. og kostar 1.000 krónur inn. Frábær endurkoma I gegnum árin hefur hljómsveitin Deicide verið ein sú harðasta í dauðarokksbransanum, án efa vegna forsprakka sveitarinnar, Glen Benton, sem er óhræddur við að viðurkenna hatur sitt á kristni og trú sína á Lúsífer. Gekk hann svo langt að brennimerkja öfugan kross á ennið á sér. Allir diskar Deicide hafa fjallað um satanisma og andkristni og hafa diskar á borð við Legion og Once Upon the Cross verið taldir með betri diskum sem komu í Flór- ída-dauðarokkssenunni. En eftir að Serpents of the Light kom út fóru hlutirnir að dala hjá hljómsveitinni, aðdáendur voru sammála um að þemað væri farið að verða gamalt. Insineratehymn náði góðri sölu en þótti týpísk og klisjukennd. En hljómsveitin hélt ótrauð áfram og kom með diskana In Torment in Hell, best of disk og svo Scars Upon the Crucifix. Dræm sala diskanna og erfiðleikar innan bandsins urðu til þess að Hoffman-bræðurnir, gít- arleikarar og stofnmeðlimir hættu í því. En nýlega sneri hljómsveitin aftur, með nýjum meðlimum, þeim Jack Owen úr Canniþal Corpse og Ralph Santolla sem hefur verið í böndum á borð við Death og lced Earth. Með plötunni The Stench of Redemption hefur bandið sannað sig að nýju í augum marga aðdáenda, hreinn satanismi hefur þróast í meiri andkristni og trúleysi og gítarleikurinn er þéttari en nokkru sinni fyrr og eru sólóin líklegast þau bestu sem þeir hafa verið með hingað til. Platan byrjar á titillaginu sem r * Deicide The Stench of Redemption ■■■ Frábær gítarleikur og söngur wmm # Andkristnin er aö veröa ★ ★★★★ gamaldags - L________________________________á stendur ekkert sérlega upp úr og fylltist maður vonbrigðum og hélt að þetta væri meira af því sama, en þegar sólóin byrja kemst maður að því að hér er eitthvað nýtt og ferskt á ferð. Annað lag plötunnar hljómaði klisjukennt en vakti smá spenning vegna kli- sjunnar, en það er lagið Death to Jesus en það er einfaldlega með betri lögum plötunnar, frábærar gítarharmóníur og sóló og söngur Bentons upp á sitt besta. Frá með þessu lagi eru lögin bara frábær, sum standa þó upp úr eins og Crucified for the Innocence, Homage for Satan sem seinna var gert myndband við og The Lord’s Sedition. Platan endar svo öðruvísi en aðrar plötur Deicide, en þeir ákváðu að covera Deep Purple-lagið Black Night. Það hlakkaði í mér að heyra lagið, hvernig skyldi svona lag hljóma í dauðarokksútfærslu? Ekki olli lagið mér vonbrigðum því ég skemmti mér frábærlega yfir því, en á hinn bóginn held ég að Deep Purple-aðdáendur myndu kalla þetta slátrun á laginu. elli@bladid.net Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@bladid.net Cannibal Corpse er söluhæsta dauðarokkshljómsveit allra tíma. Sveitin er fyrsta dauðarokkssveit sögunnar til að ná platínusölu í heiminum og sú fyrsta til að koma dauðarokksplötu á Billboard-list- ann bandaríska. Hrollvekjustíll Cannibal Corpse er væntanleg til landsins í sumar og mun halda tvenna tónleika á Nasa, 30. júní og 1. júlí. Sveitin gaf út sína fyrstu plötu, Eaten Back to Life, fyrir 17 ár- um. Eins og nafn plötunnar gefur til kynna er stíll plötunnar hrollvekja af ýmsu tagi og fjalla textarnir flest- ir um morð, pyntingar, dauða og af- skræmingu. Af þeim sökum hefur verið bannað að selja plötur og vör- ur sveitarinnar í Ástralíu, Nýja-Sjá- landi og Kóreu. Önnur plata sveitarinnar, Butc- hered at Birth (Slátrað við fæðingu), var bönnuð með öllu í Þýskalandi árið 1991. Þá var flutningur á fýrstu þremur lögum plötunnar stranglega bannaður. Lögin fjalla á afar grafísk- an hátt um mannát og kynferðislega misnotkun á líkum. Heimurinn virðist umburðarlyndari gagnvart þannig textum í dag þar sem bann- inu var aflétt í júní á síðasta ári. Ekkert eftir til að limlesta Á þeim 17 árum sem Cannibal Corpse hefur starfað hefur sveitin gefið út 10 hljóðversplötur og sent frá sér fjölmargar aðrar útgáfur. 1 textum sveitarinnar hafa óteljandi ódæði verið framin og árin virðast ekkert róa meðlimina. Árið 2004 „Lögin fjalla á afar grafísk- an hátt um mannát og kynferðislega misnotkun á líkum.“ virtist sveitin hafa siglt í strand á sinn hátt þegar lagið Nothin Left to Mutilate, eða Ekkert eftir til að lim- lesta, kom út á plötunni The Wretc- hed Spawn. Sveitin komst aftur „á skrið“ árið eftir þegar hún gaf út Kill. Á plöt- unni mátti finna lög á borð við Mur- der Worship (Morðdýrkun), Five Na- ils Through the Neck (Fimm naglar í gegnum hálsinn) og Submerged in Boling Flesh (Á kaf í kraumandi hold). Platan komst í 170. sæti Bill- board-listans og í 16. sæti yfir plöt- ur sem gefnar eru út af sjálfstæðri útgáfu. Utgáfa plötunnar var keim- lík útgáfum vinsælla popptónlistar- manna þar sem DVD-diskur fylgdi með viðhafnarútgáfu plötunnar. ALgjört hatur Cannibal Corpse er hvergi nærri hætt og þann 6. mars á þessu ári kemur út 11. hljóðversplata sveit- arinnar; Vile. Sveitin fer troðnar slóðir í sköpun sinni en á lagalista plötunnar má finna lög á borð við Mummified in Barbed Wire (Gerð að múmíu í gaddavír), Absolute Hatred (Algjört hatur) og Orgasm Through Torture (Fullnæging eftir pyntingar). Það síðastnefnda gæti auðveldlega verið um ónefndan for- stöðumann Byrgisins. Cannibal Corpse er ein virtasta dauðarokkssveit í heiminum í dag. Sveitinni hefur tekist að selja millj- ónir platna um allan heim án hjálpar fjölmiðla og stórra auglýsingaher- ferða, ef frá er talin famkoma sveitar- innar í kvikmyndinni Ace Ventura, Pet Detective, með Jim Carrey í aðal- hlutverki, þar sem sveitin spilaði lag sitt; Hammer Smashed Face. Suffocation í sjónvarpi Sjónvarpsstöðin The History Channel notar lag dauðarokkssveitar- innar Suffocation; Bind, Torture, Kill, í auglýsingu þáttaraðarinnar The Dark Ages, sem fjallar um árin eftir fall Rómaborgar. „Það var frábær reynsla að fá að vinna í sjónvarpsiðnaðinum,” sagði Mike Smith, trommari Suffocation, í viðtali í síðustu viku. Sveitin tók virk- an þátt í framleiðslu auglýsingarinnar sem tók um eina viku í framleiðslu. „Við vonumst til að fá að vinna oft- ar í þessum iðnaði. Aðdáendur okkar sem hafa séð auglýsinguna eru hrifn- ir og bera mikla virðingu fyrir sjón- varpsstöðinni. The History Channel hefur pottþétt öðlast virðingu og stuðningdauðarokkssamfélagsins.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.