blaðið - 24.02.2007, Síða 6

blaðið - 24.02.2007, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 blaöið INNLENT FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI Mótmæla umsögn læknafélagsins Samtök fjármálafyrirtækja segja Læknafélag (slands fullyröa ranglega að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hafi gengið erinda vátryggingafélaganna við afgreiðslu frumvarps um vátryggingasamninga. Læknafélagið telja lagabreytingu að þeirra kröfu. REYKJAVÍk Einn þriðji fer aldrei á útivistarsvæðin Tæpur helmingur þeirra, sem svöruðu í nýrri símakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla (slands, sögðust fara þrisvar eða oftar í Öskjuhlíðina á ári, samkvæmt frétt af mbl.is. 42 prósent svarenda sögðust fara þrisvar eða oftar íGrasagarðinnáári. MOSFELLSBÆR Enginn samningur við Línuhönnun Varmársamtökin hafa ekki samið við Línuhönnun um skoðun eða mat á tengibrautinni eins og haft var eftir samtökunum. Leituðu Varmársamtökin til fyrirtækisins en var þeim tjáð að slík vinna gæti einungis farið fram í fullu samráði við Mosfellsbæ. Þetta vill Línuhönnun leiðrétta. Jón Gerald Sullenberger: Davíð hjálpaði Baugi Jón Gerald Sullenberger, sem er ákærður í Baugsmálinu, segir í samtali við Blaðið að allt tal um að málið eigi sér pólitískar rætur fjarri lagi. „Það ætti eiginlega að vera öf- ugt því ég get ekki betur séð en að Davíð Oddsson hafi varað sinn nán- asta samstarfsmann við húsleitinni hjá Baugi og gefið Baugsmönnum tíma til að fara ofan i alla pappíra og taka til í bókhaldinu hjá sér. Svo talar Jón Ásgeir um að Baugur sé fastur í fyrsta gír. Það er bara eins gott því hvernig væri ástandið ef Baugur kæmist í fimmta gír, þá ættu þeir bókstaflega allt á íslandi.“ Jón Gerald var fyrir réttinum í gær. Hann var meðal annars spurður út i eignarhald og notkun á skemmtibátnum Thee Viking og er greinilegt misræmi í vitnisburði hans og Jóns Ásgeirs sem bar vitni í síðustu viku. Til að mynda segir Jón Gerald að aldrei hafi staðið til að Gaumur tæki yfir eignarhaldið á bátnum líkt og Jón Ásgeir hélt fram Hins vegar hafi þeir feðgar, Jón Ás- geir og Jóhannes, ætlað að taka per- sónulega yfir bátinn. Einnig var misræmi í frásögn þeirra varðandi kreditkort í nafni Gaums sem Jón Gerald hafði undir höndum. Segir Jón Gerald að hann hafi sjálfur óskað eftir því að fá kortið til að „þrífa“ eftir Baugsmenn eftir notkun þeirra á bátnum en Jón Ásgeir hélt því fram að Gaumur hafði látið Jón Gerald fá kortið að fyrra bragði til að fá betri yfirsýn yfir reksturinn á bátnum þar sem honum hafi fundist útgjöld Jóns Geralds tilviljanakennd. Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Sverrir Einarsson Hcrmann Jónasson Geir Harðarson ' k Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Hlkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Bladið/Frikki Nafnlaust bréf um Baugsmálið veldur fjaðrafoki: Atlaga að réttar- skipan í landinu ■ Dómarar og aðrir málsaðilar bornir þungum sökum ■ Saksóknari og verjendur lýsa yfir vanþóknun sinni Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Baugsmálið tók óvænta stefnu í gær er upp komst að nafnlaust bréf hafði verið sent til fjölmargra aðila sem koma að málinu. I bréfinu kemur fram hörð gagnrýni á dómsvaldið og er dómsformaður í málinu, Arn- grímur ísberg, borinn þungum sökum. Þá eru nafngreindir fjöl- margir aðrir dómarar sem komið hafa að málinu og þeir gagnrýndir fyrir að ganga erinda Baugs. Mönnum ber saman um að bréfið er skrifað af mikilli þekkingu og mjög líklegt að lög- fróður maður hafi átt hlut að máli. Fyrri hluti bréfs- ins snýr að fyrri ákæruliðum sem vísað hefur verið frá dómi og farið ofan í einstaka ákæruliði af nokkurri nákvæmni. Síðari hluti bréfsins er að mestu leyti sögusagnir og vangaveltur sem bera vott um mikla gremju út í for- svarsmenn Baugs og fleiri aðilum tengdum málinu. Slæmt fyrir sókn málsins Bæði verjendur sakborninga og fulltrúi ákæruvaldsins telja að með bréfinu sé harkalega vegið að dóm- stólum 1 landinu. Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í mál- inu, segist ekki hafa fengið bréfið sent til sín en að Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, hafi afhent honum afrit af þvi eftir þinghald í fyrradag. Sigurður lýsti í gær yfir vanþóknun sinni á bréfinu. „Bréf þar sem menn koma ekki undir nafni eru alltaf verulega ógeðfelld í mínum huga og ég vil að sjálfsögðu taka skýrt fram að þetta er verulega slæmt fyrir sókn málsins. Allar svona samsæriskenningar og órökstudd ummæli, hvaðan semþærkoma, eruein- göngu til þess fallnar að draga athyglina frá raunverulegum atvikum þessum máls,“ segir Sigurður Tómas sem segist ekki hafa tekið afstöðu hvort bréfið sé þess eðlis að það krefjist rannsóknar enda sé það ekki á hans könnu. Staðreyndum snúið á haus Gestur tók í sama streng og Sig- urður Tómas og segir að efni þess sé alvarleg atlaga að réttarskipan- inni í landinu. „Ég lýsi yfir van- jóknun minni á efni þessa bréfs og jeim hætti sem viðhafður var við MUGS Nafnlaus bréf eru verulega ógeðfelldí mínum huga SigurðurTómas Magnússon, settur saksóknari Ég lýsi yfir van- þóknun minni á efni þessa bréfs Gestur Jónsson, verj- andi JónsÁsgeirs. að dreifa því. Það virðist vera að val- inn hópur manna hafi fengið þetta sent í pósti og það er nafnlaust, uppfullt af dylgjum, staðreyndum snúið á haus og það sem verst er að nafngreindir einstaklingar eru gerðir tortryggilegir með algjör- lega ómaklegum hætti.“ Gestur gefur ekki mikið fyrir hvaða áhrif þetta muni hafa á máls- vörnina enda sé það aukaatriði samanborið við efni bréfsins. „ Það alvarlegasta í bréfinu er að það er beinlínis verið að halda því fram að dómstólakerfið í landinu virki ekki á hlutlægan hátt, það er að þar ráði allt önnur sjónarmið en þau sem byggja eigi á við úrlausn mála." 1 ,Enn eru þeir sem segja að meirihluti dómara Hæstaréttar sé að hetna sín. Þeir séu reiðir yfir því að hafa ekki fengið að ráða nýskipun dómara í réttinn að undanförnu. Sérstaklega sé þeim illa við skipun Ólafs Barkar 2003 og Jóns Steinars Gunnlaugssonar 2004. Þeir telji að Davíö Oddsson hafi stjórnað því að þeir fengu ekki aö ráða þessu. Nú hafi þeir fengiö tækifæri til að hefna sín, þvi að öllum sé Ijóst að Davíð vilji ófarir Baugsmanna sem rnestar." „..(slenskir dómstólar hafa gersamlega brugðist í þessum málum. Sé leitað þeirrar skýringar sem hagstæðust er dómurunum, er niðurstaðan sú að þeir reynast öfærir um. að fjalla af hlutleysi um þetta mál, þar sem ríkir menn eiga í hlut sem að auki ráða yfir fjölmiölum..." .Þannig á Arngrimur Isberg að hafa sagt í áfengisvímu við samdómara sinn að hann vissi vel að málið væri allt runnið undan rifjum Davíðs Oddssonar!" ,Því má skjóta inn í, þó að það hafi sjálfsagt ekki legið fyrir Hæstarétti, að Al [Arngrímur Isbergj hafði á vettvangi Héraösdóms Reykjavíkur sótt það fast að fá að dæma í nýja málinu. Það þykir lögfræðingum skrýtiö." .Lögfræðingar sem leggja fyrir sig verjenda- störf eru furöu lostnir. Þeir spyrja sjálfa sig, hvort þeirra skjólstæðingar megi búast við álíka hagstæðum niðurstöðum í framtíðinni. Lífsreyndir menn hlæja að þessu og telja að réttarfarið í Baugsmálum sé einnota." ,Sumir telja að persónuleg afstaða dómara Hæstaréttar til þátttakenda i þessu drama skipti máli. Sumir telja sig hafa oröið vara við að máli sklpti hvað þeir heita sem flytja málin. Markús Sigurbjörnsson er talinn afar áhrifamikill í dómarahópnum[...]Einstakir lögmenn eru sagðir njóta sérstakrar velvildar hjá þessum áhrifamikla dómara. Til þess hóps heyra Gestur Jónsson og stofan sem hann vinnur á en þar er einnig að finna aldavin Markúsar, Ragnar Hall. Sagt er að Markús, Gunnlaugur og jafnvel fleiri dúmarar hafi horn í síðu Jóns HB. og jafnvel Sigurðar Tómasar...“ „Og til að undirstrika þetta sjónarmið um ótt- ann tekur sá sem þetta skrifar fram að hann þorir ekki að láta nafns síns getið. Til þess er hann of huglaus!"

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.