blaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 24. PEBRÚAR 2007 blaðið Sonur pabba Sigmar er kraftalegur karl í krapinu. Mynd/Eyþór Jóns Páls Sigmarssonar folk@bladid.net HEYRST HEFUR BANN Bændahallarinnar við komu klámráðstefnugesta á Hótel Sögu hefur ekki farið fram hjá mörgum. Bera Bændahallar- menn við sterkri siðferðiskennd þegar kemur að ástæðu þessarar sögulegu ákvörðunar. Þó kann einhverjum að þykja forvitnilegt að á sama tíma og hin ógurlega klámráðstefna átti að vera, var fyrirhöguð önnur ráð- stefna. Jú, mikið rétt, sjálf Bændasam- tökin með búnaðar- þing... AU6LÝSTUR hefur verið þáttur Egils Helgasonar, Silfur Egils, fyrir næsta sunnudag. Þar munu leiða saman hesta sína (og út- reikninga) þeir Hannes Hólm- steinn Gissurarson og Stefán Ólafsson. Það verður gaman að fylgjast með hvort skilgreining fátæktar muni koma í ljós í eitt skipti fyrir öll, en um það hafa þeir einmitt karpað undanfarið. Það skyldi þó aldrei vera að í Silfrinu verði eldað grátt silfur MÁL málanna í dag er án efa Baugsmálsbréfið sem barst til helstu fjölmiðla og aðila málsins í gær og fyrradag. Reynt hefur verið að ritrýna í bréfið til að bera kennsli á höfund þess, sem margir telja jafnvel fleiri en einn. Hafa gárungar gantast með að hér sé um konu á miðjum aldri að ræða, sem hafi sérstakan áhuga á Baugsfeðgum, heilsu- rækt og skoðanaskiptum ... BAUGUR G R O U P HVA D Heíur ^itsjórn kveðjubréfs Kristins H frjffrír nokkuð verið að skrifa önnur nafnlaus bréf undanfarið? r, f „Ég veit ekki hver sú ritstjóm er. En mér þykir það ávallt heigulsháttur að skrifa nafnlaus bréf, hvert sem innihaldiö er.“ Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins Kaldlynt kveðjubréf til Kristins H. Gunnarssonar birtist á vef Fram- sóknarflokksins I síöustu viku. Var bréfið merkt ritsjórn, en ekki hefur verið hægt að fá vitneskju um meðlimi þeirrar ritstjómar. Önnur skrítin nafniaus bréf hafa verið á ferðinni síðan þá ... BLOGGARINN.. Skúbb ársins... „Við Alexía sáum á forsíðu Séð og heyrt í dag að brúðkaup okkar væri i aðsigi. Athyglisvert. Þetta væru auðvitað bara ánægjuleg tíðindi, ef brúðkaup stæði raunverulega tii, en gallinn á þessari frétt er sá að brúð- kaup hefur barasta ekki neitt staðið til og hefur ekki einu sinni verið rætt okkar á milli. I okkar augum er þetta svakalegt skúþþ hjá Séð og heyrt. Við sjálfvissum ekki einu . sinni afþessu. Við erum f alveg hamingjusöm og ' allt það. En við erum . bara alls ekkert að fara t ifo. að gifta okkur. Það auðvitað Eirikur U Ijjfla Jónsson sem skrifar þetta. Hver WBW: ■ Guðmunc gummi t annar. Guðmundur Steingrímsson gummisteingrims.blog.is Reisir föður sínum styttu Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Sigmar Freyr Jónsson er sonur Jóns Páls Sigmarssonar heitins, hinnar einu sönnu íslensku þjóðhetju, sem lést langt fyrir aldur fram. Sigmar hefur haldið merki föður síns á lofti og hefur meðal annars fengið einka- leyfi fyrir slagorðinu „Ekkert mál fyrir Jón Pál,“ sem hefur fest sig kyrfi- lega í sessi í íslenskrar tungu. Blaðið tók tal af kappanum og komst að því að eplið féll ansi stutt frá eikinni. „Ég er 23 ára gamall, 1,81 cm á hæð og 94 kíló. Ég vinn í húsgagnafyrir- tæki, í svona bólstrunar- og lagerv- innu og afgreiðslu á húsgögnum. Einnig er ég einkaþjálfari þegar tími gefst og þá er ég einnig dreifingarað- ili fyrir Herbalife. Síðan reyni ég að rækta líkamann eftir bestu getu, þótt það komi svona mest í skorpum. Annars tek ég 120 kíló í bekk,“ sagði Sigmar hógvær. Frægðarsól Jóns Páls skein hátt á sínum tíma. En skyldi hafa verið erfitt hlutskipti að vera sonur sjálfs kraftakóngsins? „Nei, í rauninni ekki. Þegar maður var yngri þá var maður frekar meira dáður vegna þessa og lítið strítt. Ef- laust voru einhverjir öfundsjúkir en ég varð ekki mikið var við það. Nú á dögum koma margir að máli við mig að fyrra bragði og segja mér sögur af kallinum frá því þegar þeir þekktu hann. Slíkt yljar manni bara um hjartarætur og segir manni hversu virtur og dáður hann var.“ Sigmar segist ekki ætla að feta í kraftaspor föður síns sérstaklega. Hann leggur meiri áherslu á al- mennt hreysti og líkamsrækt. En hann heldur þó nafni föður sins á lofti með öðrum hætti. „Síðan reyni ég að rækta líkamann eftir bestu getu, þóttþað komi svona mest í skorpum. Annars tek ég 120 kíló í bekk“ „Það hefur lengi verið talað um að reisa honum styttu sem væntanlega yrði staðsett í Laugardalnum. Ég veit ekki nákvæmlega á hvaða stigi málið er en ég veit að það hefur verið talað við nokkra listamenn. Hverjir það eru get ég ekki greint frá á þessu f. stigi en málið er allt í vinnslu.“ Helsta slagorð Jóns Páls heitins er hverju barni kunnugt. Það gæti allt eins verið komið úr Islend- ingasögunum segja sumir, enda óvenju grípandi og hagyrt. Og nú hefur Sigmar tryggt það endanlega í eigu ættarinnar: „Já, ég sótti um einkaleyfi fyrir slagorðið .Ekkert mál fyrir Jón Pál\ Ég fór einfaldlega á fund einka- leyfastofu og greiddi um 30.000 krónur fyrir leyfið. Þá fór ákveðið ferli í gang, sem ég kann ekki að útskýra hér, en get þó tilkynnt það að ég fékk það í gegn,“ sagði Sigmar hróðugur. Sigmar segir hugmyndina að tengja slagorðið við styttuna til að tryggja það enn frekar í sessi. Hann hyggst þó ekki rukka fyrir notkun þess nema það sé notað í ágóðaskyni. „Maður vill nú ekki að það sé notað í hvað sem er. Það hefur að mér vitanlega ekki verið notað enn þá og því gott að vera búinn að tryggja sér það,“ sagði Sigmar að endingu. ...Bændahallarfram- sóknarkóngar... „Við hverju er að búast hjá þjóð sem tignar trúbadúrinn, og fyrrum dryk- kju- og dópmógúiinn, Bubba? Er nokkuð Alabamalegra en það? Fólk sem flykkist í sveit á haustin, snarar rolluskjátur og dregur í dilka. Grípur svo andann á lofti þegar fólk kemur í bæinn sem ekki aðhyllist sama hræsn- isfulla vammleysið - og hrekurþað á brott. Kyndlarog heykvíslar ætti að vera nýtt lógó Bændahallarinnar.“ Mengella mengella.blogspot.com OLYMPIC HEALTH ... Ingibjargar-blús „Eftirað hafa kynnst hrokalegri framgöngu Ingibjargar Sólrúnar sem borgarstjóra og hvernig hún talaði til þeirra, sem hún taldi sig hafa ífullu tré við íkrafti valds síns, get ég ekki annað er brosað að þessari opinberu kvörtunarherferð i hennar þágu. Hér á síðunni hefég látið þess margsinn- is getið, að einkenni stjórnmálastarfa Ingibjargar Sólrúnar sé að skilja eftir sig sviðna jörð. Henni varalveg sama um Kvennalistann, eftir að hann hafði dugað henni til að hefjast til metorða. Hún varð að hrökklast úr borgarstjóra- stólnum, afþvíað hún /§£^$0^ sýndi samstarfsfólki sínu íR-listanum pól- itiska lítilsvirðingu og sagðist víst geta farið sínu fram, hvað sem það segði." Björn Bjarnason www.bjorn.is Upplifðu www.europcar.is Su doku Kynntu þértilboð okkar á bílaleigubílum Pantaðu bílinn hjá Europcar áður en þú leggur af stað Víð erum 1170 löndum. Upplýsingar og bókanir i síma: 565 3800 europcar@europcar.is Europcar PÚ LEIGIR MEIRA EN BARA BlL. 7 9 5 4 6 8 3 7 9 6 1 2 6 8 2 4 6 9 5 1 2 7 2 4 3 1 7 1 6 5 Su Doku þrautin snýst um aö raöa tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 4-29 C LaughingStock Intemational IrrcVcfist. by United Media, 2004 HIRMAN eftir Jim Unger Þú færð starfið.Taktu nú þessa með heim og farðu að sleikja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.