blaðið

Ulloq

blaðið - 24.02.2007, Qupperneq 25

blaðið - 24.02.2007, Qupperneq 25
blaðið LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 25 Það má segja að fjöl- breytnin og gróskan sé það allra merki- legasta við fjölmiðla- markaðinn um þessar mundir" segir Þorbjörn Broddason fjölmiðlafræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla íslands. „Allt í einu erum við komin með jafnmörg dagblöð og við vorum með á gósentíma flokksblaðanna. Dagblöðin á Islandi eru orðin fimm: Morgunblaðið, Fréttablaðið, Blaðið, Viðskiptablaðið og DV og auk þess kemur Krónikan út vikulega. Þetta er stórmerkilegt. Ég held að þessi gróska stafi að einhverju leyti af því að ákveðnum hagsmunaaðilum er ekki rótt nema þeir eigi innhlaup í dagblað, viti af vinum í varpa, án þess þó að þeir séu að ritstýra blöðunum." Hvaða hagsmunaaðilar eruþetta? „Er ekki nánast hver einasti við- skiptafursti landsins búinn að eign- ast dagblað? Um leið er orðin til nokkurs konar ný útgáfa af flokks- blöðum. Hér áður fyrr mátti treysta því að ekki yrði hallað á Framsókn- arflokkinn í Tímanum, ekki á Sjálf- stæðisflokkinn í Morgunblaðinu og aldeilis ekki á sósíalista í Þjóðvilj- anum. Hins vegar gat maður fengið ágæta mynd af pólitíkinni ef maður las öll blöðin. Svo breyttist þetta og blöðunum fór að fækka og flokk- arnir misstu áhugann eða höfðu hreinlega ekki efni á að halda blöð- unum úti. Maður hlaut að spá því að tími dagblaða væri meira og minna liðinn. Upp úr 2000 spruttu upp ný öfl með nýja peninga sem sáu sér hag í því að leggja umtalsvert fjármagn í dagblöð. Eg er alls ekki að væna þessa eigendur um að hafa afskipti af störfum blaðamanna og ritstjóra en það er engin tilviljun að þeir sjá sér hag í því að eiga fjölmiðil. Ef menn eiga hálfan eða heilan millj- arð og hafa það eitt í huga að ávaxta peningana sína þá held ég að þeir ættu að setja þá í eitthvað annað en dagblöð. En ef menn líta á þessa fjár- festingu sem eins konar forvarnir þá er hún kannski ekkert svo galin. Eg held að þessir kallar viti hvað þeir eru að gera. Þetta eru yfirveg- aðar ákvarðanir." Asjónur dagblaðanna Má lesa pólitískar línur úrskrifum dagblaðanna? „Ef við förum yfir flóruna þá get ég ekki sagt það að ég sjái það á Blaðinu. Það þurfti að finna sér rými sem ekki var fyllt og það nær því að vera eins og tímarit, í afslapp- aðri blaðamennsku, og kannski sérstaklega núna síðustu vikurnar og mánuðina. Það er mild ásjóna á Blaðinu og hluti af því virðist vera að laða að lesendur sem hafa áhuga á menningarmálum. Ég treysti mér ekki alveg til að tjá mig um DV. Ég hef séð svo lítið til þeirra. Fyrir einhverjum mán- uðum síðan játaði ég það í áheyrn nokkurra DV manna að ég læsi það blað ekki mikið. Ég gafst upp á blað- inu þegar verst gegndi síðastliðinn vetur. Nú er það að koma aftur sem dagblað og ég óska þeim til ham- ingju. Ég sá fyrsta blaðið þeirra í dagblaðsformi og útlitið er fínt, það er fallegur og líflegur svipur á því. Mér sýnist á innihaldinu að þeir DV-menn ætli greinilega að kveðja þær persónulegu ofsóknir sem þeir voru lagstir í sem þjónuðu engum til- gangi og hjálpuðum ekki nokkrum manni. Það blasir við að það má lesa pólitískar línur úr skrifum Morg- unblaðsins. Morgunblaðið er ekki- lengur málgagn Sjálfstæðisflokks- ins á sama hátt og áður en það er í ríkum mæli málgagn þeirra sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Morgun- blaðið leitast við að móta sjálfstæða pólitíska stefnu en reynir um leið að draga vagninn í sömu átt og Sjálfstæðisflokkurinn. Fréttablaðið er í stjórnarand- stöðu. Er það vegna þess að þeir eru á móti Sjálfstæðisflokknum? Það er ekki víst. Þeir líta svo á að þeir verði að finna sér smugu þar sem er autt rými og fundu það í því að vera í stjórnarandstöðu. Það er hin klassíska hugmynd um dagblaðið sem varðhund fyrir hönd almenn- ings. Hver er skjólstæðingur fjöl- miðilsins? Eigandinn? Stjórnvöld? Auglýsendur? Eða eru það lesendur, áhorfendur og hlustendur? Fyrir mér er svarið mjög einfalt. Það er síðasttaldi hópurinn. En það er ekki þessi síðasttaldi hópur sem skilar tekjunum. Auglýsandinn er höndin sem fæðir fjölmiðilinn. Ef fjölmiðill missir lesendur þá er auglýsandinn líka fljótur að fara því hann hefur engan áhuga á fjölmiðlum nema sem tæki til að ná til almennings." Tákn Moggans Tvcerforsíður Morgunblaðsinshafa vakið athygli undanfarið. Önnur var um dóm hœstaréttar í kynferðisof- beldismáli ogsvofréttum orð forseta íslands í Silfri Egils fyrir skömmu. Sumir segja að þarna séu annarlegar hvatir að baki. „Ég hef aldrei gert þá kröfu til fjöl- miðils að hann gegni hlutverki Guðs almáttugs, sé réttsýnn og góður og viti alla hluti og dragi ekki taum nokkurs manns. Ég held að flestir fjölmiðlamenn vilji í einhverjum tilvikum breyta heiminum. Ég held að það sé hjartans meining Morgun- blaðsmanna að vilja bæta heiminn. Þeir gera það í gegnum blaðið sitt og þá kemur í ljós að skoðanir þeirra ná stundum yfirhöndinni og ítrasta hlutlægni víkur. Forsíða Morgunblaðsins um Gömlu kartöfluqeymslurnar öðlast nýtt líf Gömlu kartöflugeymslurnar í Ártúnsbrekkunni breytast í sannkallaða listasmiðju á Vetrarhátíð 2007. En þar verður boðið upp á mjög fjölbreytta dagskrá fyrir unga jafnt sem aldna á föstudag og laugardag. Föstudaginn 23. febrúar 17:00 Ólátagarður. Samsýning 10 listamanna sem er innblásin af Hip hop menningunni. Sýnd eru verk á striga, fatnað, skúlptúra, videolistaverk og fleira. Lifandi tónlist. Laugardaginn 24. febrúar 14:00 - 21:00 Dýrið í mér. Samsýning 6 listamanna sem búsettir eru á Héraði og hefur hver og einn listamaður unnið að sérstöku verki sem túlkar titil sýningarinnar. Verkin á sýningunni eru margvísleg, málverk, innsetningar og Ijósmyndir. Ólátagarður, samsýningin heldur áfram. 14:00 - 22:00 Reykjavík 1944. Árið 1944 tók Loftur Guðmundsson kvikmyndir í Reykjavík. Hann lauk aldrei við verkið og verður afurðin sýnd á Vetrarhátíð á vatnstjaldi. 14:00 Listræn andlitsmálun og Blöðrufígúrulist. Ungt fólk frá "Fjölskyldan Kknarfélag" verður með listræna andlitsmálun og kynna listgreinina Blöðrufígúrulist sem er nýjung hérlendis. 20:00 Tíu ára afmæli Dansleikhúss með ekka. Um þessar mundir heldur Dansleikhús með Ekka upp á 10 ára afmæli sitt. Á Vetrarhátíð ætlar Ekka að bjóða áhorfendum á uppákomu tengda afmælinu. Margt hefur gerst í þessum geira á síðastliðnum t(u árum og gefin verður innsýn (innviði og sögu leikhússins. Meðal þeirra sem fram koma eru: Kolbrún Anna Björnsdóttir, Aino Freyja, Karen Marfa Jónsdóttir o.fl. 20:00 - 22:00 Tónleikar - Flís Tríó og Steintryggur. Flís trióið leikur spunakennda tónlist sem ber lit af jafn óKkum stefnum og reggae dub, djassi, afrópoppi og elektrónfsku barrokki. Steintryggur er samstarfsverkefni þeirra slagverksmanna Sigtryggs Baldurssonar og Steingríms Guðmundssonar en þeir hafa nú fengið til liðs við sig Ástralann Ben Frost. Búist er við rytmískum áflogum. POURQUOIPAS? ©_ FRANSKT VOR A fSLANDI g V Reykjavíkurborg *spron Orkuveita Reykjavikur Kynntu þér dagskrána á www.vetrarhatid.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.