blaðið - 24.02.2007, Page 38

blaðið - 24.02.2007, Page 38
LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 2007 tíska blaðiö Há mitti í vor verða há mitti á buxum og pilsum allsráðandi. Háu mittin hafa kraumað undir að undanförnu en hafa nú sprottið fram og eru ráðandi i sniðum á buxum og pilsum. Strigaskórnir Það er skyldueign hverrar konu að eiga eina fína og sæta strigaskó þegar vorið sækir að. Ekkert er eins huggulegt og að smeygja sér í eina hvíta og skínandi nýja þegar farið er út að setja niður vorlaukana. tiska@bladid.net Best fyrir herra Zirh-snyrtilínan var nýlega valin besta herrasnyrtilínan af FHM tímaritinu. Línan inniheldur krem sem er ætlað eftir rakstur og kallast So- othe. Kremið dregur úr roða, rakst- ursbruna og þeim óþægindum sem fylgja oft rakstri. Kremið inniheldur meðal annars Aloe Vera og Ginseng og yfir 60 næringarefni, vítamín og steinefni sem styrkja húðina og gefa henni fallega áferð. Línan inniheldur einnig andlits- vatn, Erase, sem er án alkóhóls og inniheldur efni sem kæla og mýkja húðina. Guðrún Lárusdóttir fatahönnuður JT I heimi götutísku Þau eru fjölbreytt, verk- efnin sem Guðrún Lárusdóttir fatahönn- uður hefur fengist við síðan hún útskrif- aðist sem fatahönnuð- ur fyrir fjórum árum. Hún hefur starfað sjálfstætt og séð um búninga fyrir auglýsingar og leikhús og um tíma sá hún um búninga fyrir leikara og brúður í Latabæ. Nú er hins vegar vöruþróunarstjóri hjá Nikita sem sérhæfir sig í götutískufatnaði fyrir stelpur. Nikita út um ailan heim Nikita er sem fyrr segir fatamerki sem sérhæfir sig í götutísku fyrir stelpur. Fyrirtækið hefur stækkað ört á undanförnum árum og Nikita er nú selt í verslunum úti um allan heim í 30-40 löndum. Á hverju ári koma tvær fatalínur frá Nikita og innihalda þær hvor um sig 250 gerð- ir af flíkum, allt frá undirfötum og bolum upp í dúnúlpur og ýmsa fylgi- hluti eins og húfur og töskur. „Starfið mitt núna felst í því að hafa yfirumsjón með allri framleiðslu fyrirtækisins og sjá um að hönnun- in skili sér til fulls í lokaframleiðsl- unni. Við erum sex sem störfum í hönnunarteyminu og hver og einn hefur sitt hlutverk," segir Guðrún. Alitaf ári á undan Það er búið að vera mikið að gera hjá Guðrúnu undanfarna daga en í vikunni skiluðu þau í framleiðslu hönnun fyrir sumarið 2008. „Við erum alltaf að vinna langt fram í tímann og það er hluti af þess- um heimi að hugsa alltaf ár á undan. Við fáum sendar prufur eftir tvo ur í búðir nú i vor, þrátt fyrir að ár sé komið síðan hún var fyrst hönnuð og segir að það sé mjög skemmtileg lína. „Þar er mikið um sterka liti og það er mikið af grafík og prenti á flíkunum. Við höfum verið að leika okkur með allskonar prent en hjá Nikita starfar grafískur hönnuður sem sér um að alla grafíkina sem fer á fötin. Við erum líka búin að gera einn flokk innan línunnar sem stílar meira upp á tísku en Nikita hefur hingað til verið meira í götu- tísku. Þar erum við að leika okkur meira með sniðin og gera tískulegri föt. Nikita er líka með gallabuxna- línu sem er alltaf að verða stærri og stærri. Síðastliðinn vetur gerðum við í fyrsta skipti snjóbrettalínu sem fékk mjög góðar viðtökur og á næsta ári ætlum við í fyrsta skipti að koma með línu fyrir stráka og hún heitir Atikin.“ Draumastarf Guðrún segir að það sem hún sé að fást við núna sé að mörgu leyti ólíkt því sem nám í fatahönnun býr mann undir. „Starfið hentar mér samt mjög vel en ég hef alltaf haft gaman að halda utan um einhverja heildarmynd og ég er pródúsertýp- an í mér. Framleiðsluferlið er mjög stór hluti af því þegar flík verður til og hönnunarhlutinn sem mest er lögð áhersla á í skóla er ekki nema smá þáttur í því að sjá hlutina verða að veruleika. Það er mjög gaman að vinna hjá fyrirtæki eins og Nikita þar sem á íslandi eru ekki mörg fata- hönnunarfyrirtæki sem framleiða á þessum skala og því má kannski segja að þetta sé draumastarf fyrir íslenskan fatahönnuð.” mánuði og síðan aftur eftir hálft ár. Það þarf alltaf að breyta einhverju og bæta í ferlinu og margt sem kem- ur upp á þessum tíma. Stundum kemur flíkin þó mjög flott til okkar en oft þarf að gera einhverjar breyt- ingar. Á þessu ári, þar til að línan kemur í verslanir, þurfum við að gera auglýsingar og bæklinga,“ seg- ir Guðrún en margar af þekktustu brettastelpum heims hafa setið fyr- ir í fötum frá Nikita. Sterkir litir og flottar áletranir Guðrún segist þó ekki alveg vera búin að gleyma vorlínunni sem kem- Z'\ Vorlínan 2007 frá Nikita Það er mikið um sterka liti og mikið að graf- ík og prenti á flíkunum í vorlínunni. Pro-Gastro 8, eru GÓÐAR FRÉTTIR fyrir meltinguna og þarmaflóruna! 7 hylki 2svar á dag fyrir máltíð og minnst eitt glas af vatni er gott ráð til losna við flest meltingaróþægindi. Fáanlegt i flestum apótekum, heilsu- búðum, Hagkaup og Fjarðarkaup. \__________________________ __________________________J Falleg og fersk Til þess aö halda húðinni fallegri og ferskri þarf að hlúa vel að henni. Húðin þarfnast meðal annars raka og næringar og er fjöldinn allur til af góðum kremum sem sjá húðinni fyrir því. Sama kremið hentar ekki hverjum og einum og þvi er um að gera að prófa sig áfram og finna það sem hentar best. Rakakrem Aqua Booster frá Marbert er frá- bært rakakrem sem vinnurgegn rakaleysi húðarinnar. Kremið styrk- ir og eykur rakaforða húðarinnar og gefur henni fullkominn raka allan sólarhringinn. Árangurinn er mikil breyting á útliti og áferð húðarinnar. Misfellur verða ekki eins sýnileg- ,_____ ___ ar og litarhaftið verður jafnara. Comfort Cream Frábært krem frá Marbert sem hentar vel þeim sem þjást afrós- roða, háræðasliti eða eru með við- kvæma húð. Kremið byggir upp háræða- veggina og róar húðina. I þvíeru engin rot- varnarefni þannig að það hentar líka þeim sem hafa mjög viðkvæma húö. COMFORTCREAM anti-couperose c,fcc' Andlitskrem frá Arden Andlitskremið Ceramide Plump Perfect dregur úr fínum línum í andlitinu og gefur húðinni aukinn raka og fyllingu. thP Kremið nærir og mýkir húð- ina og gerir hana fyllri, þéttari og unglegri. Sublimage frá Chanel Sublimage andlitskremið frá Chan- el veitir góðan raka ásamt því sem það verndar húðina gegn öldrun og vinnur ótrúlega vel á leiðinleg- um húðvandamálum. Andlitið fær aukinn Ijóma þar sem kremið nærir yfirborð húðar- innar. SIÐASTA HELGI ÚTSÖLUNNAR 70% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HAUST- OG VETRARVÖRUM 'j^/0 Einnig erum við komin með fulla búð af nýjum vörum: ‘ Brjóstagjafa-, meðgöngu- oq barnaföt xoctasmár\ , vwssoo J '~JJ y-j Fyrir verðandi mæður og born

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.