blaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 4
4 • FERMINGAR 2007
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 blaðiö
( \
Tlvoli Audio
HLJÓMSÝN
www.hljomsyn.com ármúla 38 - sImi 588 5010
V______________________________________________________)
Falleg fermingarveski
í úrvali
Ókeypis nafngyiiing fyigir
margir litir og geröir
m
Leöuriðjan ehf Brautarholti 4 s. 5610060 www.atson.is
opnunartímar: mán. - föst. 8:00 -16:00 fim. 8:00 - 21:00
Siðfesta tekin á öllum aldri Jóhanna
stýrir siðfestu athöfn á jólablóti 2005.
Siðfesta ásatrúar:
Forvitnin eykst
á fermingaraldri
Þegar kemur að fermingunni
eru kannski ekki margir valkostir
fyrir unglingana til að velja úr.
Við ferminguna standa börnin á
tímamótum, þau standa á þrösk-
uldinum á milli bernsku- og full-
orðinsáranna og mörg þeirra eru
efins um hvaða braut skuli feta.
Margir unglingar kjósa að ganga
til prests og staðfesta skírnarsátt-
málann með því að fermast með
hefðbundnum hætti. Aðrir kjósa
að ganga í gegnum borgaralega
fermingu, ef til vill vegna þess að
þau eru ekki viss um hvort þau
eigi samleið með barnatrú sinni.
En það er ein trú sem virðist oft
gleymast þegar talið berst að
trú barna og unglinga og það er
ásatrú.
Ásatrú hefur verið að sækja
mjög í sig veðrið síðastliðin ár. Sið-
festa ásatrúarfólks er hliðstæða
hinnar kristnu fermingar. Jó-
hanna Harðardóttir Kjalnesinga-
goði segir að siðfestan sé á vissan
hátt ferming þeirra ásatrúarfólks
þó svo að margt sé ólíkt með
þessum tvennu. Hún segir að til
dæmis tímasetningarnar á siðfest-
unum séu ekkert endilega á sama
tíma og hinar kristnu fermingar.
„Siðfestan fer ekkert endilega
fram á vorin. Það er svo skrýtið
með siðfestuna að það er oft haft
samband við okkur um það leyti
sem fermingarnar eru og svo taka
krakkarnir siðfestuna um sum-
arið eða jafnvel á haustin.“
Siðfestan fer þannig fram að
á jörðina er gerður eldhringur,
annað hvort með sprittkertum,
útikertum eða kyndlum. Sá sem
tekur siðfestuna stígur inn í
hringinn og fer með eitt erindi af
þremur úr Hávamálum sem hann
hefur valið sér sjálfur en goðinn
sér um að flytja hin tvö. Eftir að
lestri erindanna er lokið tekur
goðinn til máls og vísar honum
inn í heim fullorðinna, heiðinna
manna.
Oft er það þannig að þegar ein
fræðsla hefst þá kviknar áhug-
inn á einhverju öðru og Jóhanna
segir að það sé einmitt svo með
siðfestuna. „Það er eins og krakk-
arnir fari að hugsa um þetta þegar
fermingarnar eru, hvort þau langi
til að skoða eitthvað annað og þá
fara þau að hafa samband." Ása-
trúarfélagið stundar ekki trúboð
með neinum hætti en Jóhanna
segir að allir sem leiti til félags-
ins muni fá svör við sínum fyrir-
spurnum. „Við erum þannig séð
ekkert að reyna að breiða þetta út.
Við höfum aldrei auglýst eða neitt
svoleiðis en ef við fáum einhverjar
fyrirspurnir um siðfestuna þá er
auðvitað brugðist við þeim. Þessar
fyrirspurnir eru einmitt mest að
berast á fermingartímanum."
Margir standa eflaust í þeirri
trú að þau börn sem gangast undir
siðfestu á fermingaraldrinum séu
krakkar sem eigi sterk tengsl við
ásatrúarfélagið, kannski báðir
foreldrar meðlimir í félaginu,
en Jóhanna segir að svo sé ekki
„Krakkarnir sem eiga foreldra í ása-
trúarfélaginu koma yfirleitt ekki í
siðfestuna svona ung, þau koma
yfirleitt seinna. Þessir krakkar
sem koma eru á fermingaraldri,
þetta eru krakkar sem eiga oftast
foreldra sem eru í Þjóðkirkjunni
en eru ekki kristnir. Það er nefni-
lega svo algengt að það sé fólk í
Þjóðkirkjunni sem er ekki kristið.
Það eru krakkar sem velta þessu
fyrir sér sem hafa kannski farið
í nokkra tíma hjá presti, eru að
hugsa mikið um trúmál og langar
til að kynnast einhverju öðru.“
Jóhanna segir að undirbúning-
urinn sé, vegna þess hve fá börn
gangast undir siðfestuna hverju
sinni, afar persónulegur. „Þetta er
mjög persónulegt og við goðarnir
reynum að skipta krökkunum á
milli okkar. Þau koma til okkar
og við tölum um siðfestuna. Síðan
lesa þau Hávamál og Völuspá, því
Hávamálin eru siðalögmál okkar.
Þá er rætt um ábyrgð á sjálfum sér
og hvernig eigi að haga sér gagn-
vart sér og sínum. Síðan er þetta
mikið í samtalsformi. Þau lesa
sér til og svo ræðum við saman
um hvað okkur finnst rétt, hvað
það er sem fylgir því að vera full-
orðinn og hvað fylgir því að vera
manneskja."
Það er mismunandi langur tími
sem fer í að undirbúa siðfestuna.
Þar breytir miklu hvort einstak-
lingurinn sem gengst undir sið-
festuna er vel kunnugur ásatrú
og þeim siðum sem henni fylgja.
„Ef þetta er fullorðið fólk sem
þekkir siðina þá er þetta kannski
ekki nema þrisvar sinnum en við
tökum þann tíma sem þarf fyrir
krakkana þangað til þau vita hvað
þau ætla að gera. Þegar viðkom-
andi er tilbúinn þá fer siðfestan
fram.“
Jóhanna segir að það sé búið
að bóka tvær siðfestur hjá henni
í sumar en svo verði enn fleiri í
haust. Sumarið er algengasti tím-
inn fyrir siðfesturnar enda oftast
nær um útiathafnir að ræða. Jó-
hanna minnist þess að minnsta
kosti ekki að hafa verið með sið-
festuathöfn á hinum venjulega
fermingartíma.
I gegnum tíðina hafa íslendingar
fullkomnað hátíðarmatinn með
ávöxtum frá Del Monte.
Veldu gœði, veldu
í)el Monte