blaðið - 28.03.2007, Síða 6
6 • FERMINGAR 2007
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 blaAÍA
Brim stækkar við sig:
Opnar þrefalt stærri verslun
Verslunin Brim, sem selur bretta-
og götufatnað, mun næstkomandi
laugardag opna nýja og glæsilega
verslun að Laugavegi 71. Götu- og
brettafatnaður er og hefur verið gif-
urlega vinsæll og því eru það góðar
fréttir fyrir neytendur að hin nýja
verslun Brims kemur til með að þjón-
usta þennan vöruflokk enn betur en
áður. Bretta- og götufatnaður hefur
undanfarin ár verið vinsæl gjafavara
fyrir fermingarnar og því mun hin
nýja verslun hjálpa fólki enn frekar
að finna gjöf fyrir fermingarbarnið.
Hin nýja verslun verður mun
stærri en fyrri verslun Brims á Lauga-
veginum. Eldri verslunin var um 120
fermetrar en hin nýja verslun mun
verða um 360 fermetrar. Þessi mikla
stærð verslunarinnar mun gera það
að verkum að hún verður ein stærsta
verslun Evrópu i þessum geira en al-
mennt eru verslanir af þessu tagi í
smærra lagi og því þröngar og jafnvel
óþægilegar fyrir viðskiptavini. Að
sögn eigenda verslunarinnar mun að-
gengi í hinni nýju verslun verða mun
betra en áður ásamt því sem vöruúr-
val mun aukast í samræmi við aukið
rými.
Svokallaður brettafatnaður er í
raun hátiskuvara sem hefur náð gríð-
arlegum vinsældum í heiminum á
undanförnum árum. 1 dag heldur
Brim utan um í kringum 20 þekkt
vörumerki bæði fyrir konur og karla,
unga sem aldna. Þar nægir að nefna
gæðamerki á borð við Billabong,
Adio og Element. Verslanir Brims
hafa í gegnum tíðina notið mikilla
vinsælda meðal jafnt íslendinga sem
ferðamanna fyrir mjög hagstætt verð,
samanborið við nágrannalöndin. Hið
hagstæða verð er tilkomið með þeim
hætti að allar vörur eru fluttar beint
inn frá framleiðendum og þannig er
mögulegt að halda verðinu á þessum
gæðavörum innan velsæmismarka.
Um leið og hin nýja verslun Brims
verður opnuð á Laugaveginum verður
ný og endurbætt heimasíða verslunar-
innar opnuð á slóðinni www.brim.is.
Flott hugmynd að
fermingargjöf
High Peak Redwood Fermingartilboð
svefnpoki » aaa
Þægilegur að -3C kr.
UTILIF
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 O GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 o KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Með hendur í
fermingarhári
Á hárgreiðslustofunni Scala
starfar þaulreynd fermingarhár-
greiðslukona, Halldóra Sjöfn
Róbertsdóttir. Aðspurð um ferm-
ingarhárskraut bendir hún á að
látlaus hártíska hafi verið að ryðja
sér til rúms undanfarin ár. Þó
kenni ýmissa grasa í hárskrauti
fyrir fermingarstúlkur sem eru
margar hverjar hrifnar af því að
skreyta hár sitt með alls kyns
gimsteinum, kömbum eða jafn-
vel þykkum spöngum í 7o’s-stíl.
„Oftar en ekki er hár fermingar-
stúlkna einungis blásið og skreytt
fáum blómum. Enda eru þetta
einungis 14 ára stúlkur sem er
alger óþarfi að stríla upp og gera
að fullorðnum konum.”
Kveðst hún ánægð með þá
þróun og hefur jafnvel hvatt
fermingarstúlkur til þess að tóna
sig niður varðandi hárgreiðslu
stóra dagsins. „Við á Scala höfum í
raun unnið að því undanfarin
ár að koma fermingarhár-
greiðslu niður á jörðina og erum
afskaplega ánægð með tískuna
i fermingargreiðslu í ár sem er
mjög stelpuleg og frjálsleg, al-
veg eins og fermingarstúlkurnar
eru sjálfar.”
FERMINGARLEIKUR
RÚMG0TT
Þrjú heppin fermingarbörn sem
fá nýtt rúm f rá Rúmgott, fá
andvirði rúmsins f fermingargjöf
f rá Rúmgott. Dregið verður 30 mai
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM