blaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 8
8 • FERMINGAR 2007
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 blaðiö
Jón Ómar Gunnarsson er verðandi guðfræðingur:
kirkjunni tíu mínútur í ellefu og
sækja þau rúmri klukkustund
síðar,” segir Jón Ómar sem hefur
starfað bæði við Seljakirkju og í
Lindasókn. Ætli guðfræðineminn
eigi sér óskasókn er til framtíðar
er litið? „Nei, í raun ekki. Þegar
kallið kemur verð ég tilbúinn,”
segir Jón Ómar Gunnarsson að
endingu.
Klár þegar kallið kemur
Hinn ungi guðfræðigumi Jón
Ómar Gunnarsson útskrifast sem
guðfræðingur eftir rúmlega ár ef
að líkum lætur, en hann stundar í
dag nám við guðfræðideild Háskóla
fslands. „Mikil áhersla er lögð á
grísku og hebresku svo hægt sé að
lesa handrit Biblíunnar frá fyrstu
hendi, sem eru mörg allt að 3000
ára gömul.“ Þá leggja guðfræði-
nemar einnig stund á íslenska sem
og alþjóðlega kirkjusögu, trúfræði
og mismunandi trúarbrögð. Varð-
andi guðfræðideild háskólans þá
er hún frekar fámenn en góðmenn.
,Við erum oft kringum 10-12 stykki
í kennslutímum og nemendahópur-
inn er mjög fjölbreyttur. Samnem-
endur mínir eru til að mynda að
miklu leyti konur á miðjum aldri og
sá elsti er fæddur árið 1944 ef mig
minnir rétt, þannig að partíin verða
oft á tíðum dálítið sérstök.” Guð-
fræðideildin lyftir sér upp á tylli-
dögum og hefur meðal annars farið
í bolludagskaffi á Biskupsstofu og
lagði leið sína nýlega til Framsókn-
arflokksins í vísindaferð.
Varðandi trúmál þá eru hinn ungi
guðfræðisveinn og blaðamaður sam-
mála um það að á komandi árum
kunni að verða miklar hræringar
í íslensku trúlífi. „Aðallega vegna
aukinnar alþjóðavæðingar. Flestir
innflytjenda til fslands eru Pól-
verjar og Filippseyingar og eru þær
þjóðir að miklu leyti kaþólskar. Það
kallar auðvitað á öðruvísi nálgun af
kirkjunnar hálfu og ef til vill breyt-
ingar á því hvernig störfum hennar
er háttað.”
Meðan á guðfræðinámi stendur fá
nemar tækifæri til þess að taka þátt í
Jón Ómar Gunnarsson
„Markaöurinn hugsar meira um
börnin en börnin hugsa um
hann.“
samfylgdarkerfi Þjóðkirkjunnar, til
þess að kynnast prestsstörfum frá
eigin hendi. „Þá eru guðfræðinemar
undir handleiðslu presta og taka
þátt í fermingarfræðslu, æskulýðs-
starfi og hjálparstarfi kirkjunnar.”
Þegar talið berst að fermingum tjáir
Jón Ómar blaðamanni að guðfræði-
nemar læri um þróun fermingarat-
hafnarinnar í kirkjusögu og að þeir
leggi stund á trúar-, uppeldis- og
kennslufræði. Aðspurður um hin
gríðarlegu markaðsöfl í sambandi
við fermingarbörn hefur guðfræð-
iguminn svör á reiðum höndum.
„Eg held að krakkarnir hugsi ekki
næstum því eins mikið um mark-
aðinn eins og markaðurinn um
þau. Ég hef tekið þátt í fermingar-
fræðslu og mér finnst miklu meira
spunnið í fermingarbörnin en fjöl-
miðlar láta oft á tíðum uppi.”
Hvað fermingarstarfinu í heild
viðkemur finnst Jóni Ómari að
foreldrar fermingarbarna mættu
taka virkari þátt í því með krökk-
unum. „Skemmtilegra væri til
dæmis að hafa foreldrana inni í
sunnudagsmessunum, í stað þess
að sjá þau skutla krökkunum að
BRYNE himnasæng
056, L230 cm
TROMSNES rúm
B90xL200cm
Opið 10:00 - 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is
Minningar
lifa áfram
Fólk veltir mikið fyrir sér hvernig
það geti gert fermingardaginn
enn eftirminnilegri í huga barns-
ins. Eitt gott ráð til að hjálpa
barninu að minnast þessa góða
dags er að fá barnið til að skrifa
niður hugleiðingar sínar varðandi
ferminguna og fermingardaginn,
að kvöldi fermingardags. Pessi
pistill barnsins er síðan geymdur
á vísum stað og hægt er að draga
hann fram eftir fimm, tíu eða
tuttugu ár. Með þeim hætti getur
fullorðið fólk fengið innsýn í sinn
eigin hugsunarhátt á fermingar-
daginn, bæði hvað varðar trúmál
og margt annað.
Auglýsingasíminn er
510 3744
...........