blaðið - 28.03.2007, Page 12

blaðið - 28.03.2007, Page 12
12 • FERMINGAR 2007 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 blaöiö /• afHansínu 'nssyni agy fiár&krciut 'Mikið úrcial af fiárskrauti ogy ákarfypipumfyrirfermingar Tfy áendinjCfy af hrltum-, perlum, ta&kunv og* kiútunv Varlínan frci 'Pilgiinv kamin - tiloalingjaf. Sendum i pá&tkröfw Skarthúsið Laugavegi 12 - Sími 562 2466 HPI Savage X 4,1 BIG BLOCK. Öflugur og sterkur fjarstýrður bensín torfærutrukkur Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is Engjateigi 5 Sími 581 2141 laugardaga frá kl. 10-16 Hestabók fyrir fermingarbarnið: Hestar í allri sinni dýrð Það fylgir því oft mikill haus- verkur að kaupa fermingargjöf handa ættingjunum. Með timanum hafa fermingargjafir orðið dýrari og dýrari og sífellt er fólk að leita að hinum fullkomnu gjöfum handa ungmennunum. Margir unglingar eru veikir fyrir hestum og hesta- mennsku og því er það kjörið ef hægt er að finna gjöf á viðráðanlegu verði handa þeim unglingum. Fyrir þessa unglinga væri kjörið að fjár- festa í fallegri bók sem mun bæði fræða ungmennin sem og skemmta þeim. Fyrir tæpu ári kom út áhugaverð bók frá bókaforlaginu Skruddu sem ber heitið Hestur guðanna. Bókin er ljósmyndabókeftir Önnu Fjólu Gísla- dóttur og eins og nafnið gefur til kynna er umfjöllunarefnið hinn íðil- fagri íslenski hestur á öllum aldri og árstíðum. Bókin hefur fallið í góðan jarðveg hér heima sem og erlendis. Anna Fjóla segir að hesta- mennskan og hestarnir hafi fylgt henni allt frá æskuárunum. „Ég er búin að vera í hestamennsku frá því að ég var unglingur, svo lærði ég ljósmyndun og náði í þessari bók að sameina þetta tvennt, vinnuna og áhugamálið sem er að mynda hesta.“ Hún segir að eftir að hafa myndað hesta í mörg ár hafi hún verið komin með ansi gott ljósmyndasafn. Það var þá sem hún ákvað að leita til útgefanda og Hestur guðanna er afraksturinn. Aðspurð um nafnið, Hestur guðanna, segir Anna að þetta nafn sé komið úr Hávamálum og gömlum íslenskum fræðum. „Það hefur verið ákveðin dýrkun á ís- lenska hestinum, og til dæmis báru guðirnir í ásatrú oft nöfn hesta.“ Vönduð Ijósmyndabók Hestur guðanna eftir önnu Fjólu Gísladóttur. .Ljösmyndir af fsk'nska hfstinum Bókin er prýdd mörgum fallegum myndum og Anna segir að hún hafi reynt að gefa sem víðtækasta mynd af notum íslenska hestsins. „Ég reyndi að byggja bókina þannig upp að hægt væri að sýna víðtækt hvernig hesturinn er notaður. Það eru þarna folaldsköst, hvernig hann er notaður í réttir og allt þar á milli.“ Bókin er kaflaskipt og skrifar Hjalti Jón Sveinsson stutta texta fyrir hvern kafla. Anna segir að bókin hafi fengið góð viðbrögð, sérstaklega erlendis frá. „Ég er búin að fá góðar kveðjur frá erlendum lesendum því það er ofboðslega stór hópur erlendis sem hreinlega elskar íslenska hestinn." Eins og fyrr segir skartar bókin mörgum fallegum myndum og er því ekki úr vegi að birta nokkrar vel valdar myndir úr bókinni til þess að gefa smá forsmekk af því sem er að finna í þessari vönduðu bók.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.