blaðið - 28.03.2007, Síða 15

blaðið - 28.03.2007, Síða 15
blaðið MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 Sverrir Diego um fermingarmyndina: Verður að geta hangið uppi á veggnum Sverrir Diego, klippari á Rauð- hettu og úlfinum í Tryggvagöt- unni, lætur ekki mæður ákveða hárgreiðslu fermingarbarna, heldur leggur hann ásamt samstarfsfólki sínu áherslu á að fermingarbörnin sjálf ráði ferðinni varðandi hár sitt á þeim merka degi sem fermingin ber upp á. „Fermingarbörn koma fyrst og fremst á stofuna til þess að fá góða klippingu og lit en enga svakalega greiðslu sem þau sjá fljótt eftir. Stelp- urnar vilja oftar en ekki fá frjálsa liði í hár sitt en það er nánast ekk- ert um rjómatertugreiðslur eins og í gamla daga.” Sverrir segir að hár fermingar- stúlkna sé rétt tekið upp í hliðunum eða sé sett upp í hálfgerðan hnút á hvirflinum en fáar séu að missa sig í öfgakenndri hárgreiðslu. Ferm- ingarstúlkur sem lita hár sitt fyrir stóra daginn eru oftar en ekki að því í fyrsta skipti, þannig að ferm- ingin er ef til vill manndómsvígsla fyrir þær á fleiri en einn veg. „Þó erum við að sjálfsögðu ekki að ýta undir hárlitanir fermingarbarna, valið er algerlega í höndum við- skiptavina. Ef ég mætti hins vegar ráða þá kæmu vöfflur og bylgjur aftur í tísku. Það er eitthvað hall- ærislega töff við það. Ég bíð raunar spenntur eftir að það komi aftur inn, gef þessu svona tvö ár.” Fermingardrengir virðast vera yfirvegaðri varðandi hárgreiðslu fermingardags heldur en stúlkurnar. „Strákarnir stytta iðulega á sér hárið aðeins, en nú er það alveg búið að vera með svakalegan lubba sem betur fer. Flestir eru mjög rólegir yfir þessu og ófáar mömmur þurfa að koma með á stofuna og segja hvað eigi að gera við hár drengjanna, sem hafa ef til vill enga skoðun á því. En auðvitað er einn og einn sem hefur afar sterkar skoðanir á fermingarhárinu.” Samkvæmt Sverri reyna þau á stofunni að búa þannig um hnútana, í hári ungmennanna, að ferming- armyndir þeirra geti hangið uppi á vegg um ókomna tíð án þess að vera álitnar hræðilega hallærislegar. „Við viljum ekki að breiða þurfi yfir fermingarmyndir sökum þess hve ljótri hárgreiðslu var skartað. Ferm- ingargreiðslur í ár eru mjög látlausar, nánast alveg lausar við skraut og að sjálfsögðu er það allt eftir óskum fermingarbarna. Sumar kjósa að fjárfesta í ýmiss konar skrauti og auðvitað komum við til móts við þær. Talsvert er um pantanir á fermingar- hárgreiðslu á Rauðhettu og úlfinum en andrúmsloftið á stofunni er mjög afslappað og þægilegt." NJÓTTU ÞESS AÐ HANNA FALLEG OG SKEMMTILEG BOÐSKORT í FERMINGUNA Á KORTAVEF PÓSTSINS Þú getur hvort sem er búið til kort með þínum eigin myndum eða myndum úr myndabanka Póstsins. Þú klárar málin í tölvunni og Pósturinn sér síðan um allan pakkann: prentun, umslög, merkingu og sendingu - einfaldara og þægilegra getur það varla verið. Þú býrð til þinn eigin heimilisfangalista á postur.is. Listinn er uppfærður sjálfkrafa ef upplýsingar breytast. Næst þegar þú vilt senda kort geturóu gengió að honum vísum - og réttum! 2 heppin fermingarbörn sem gera boóskort á Kortavefnum fá INIOKIA myndavélasíma í fermingargjöf frá Póstinum. www.postur.is eitthvað alveg einstakt GJAFAKORT: Við vitum hvað getur verið erfitt að velja list fyrir aðra þv( er að sjálfsógðu alltaf auðveld lausn að gefa gjafakort

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.