blaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 16
16 • FERMINGAR 2007
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MaðÍA
Til fermingargjafa
Urval af fallegum og
vönduóum rúmfatnaði
ifiilíi i
Skólavörðustíg 21
Sími 551 4050 • Reykjavík
Fermingarstúlka segir frá upplifun sinni
Annasamur
51
SMAAUGLYSIN
blaöið
fermingardagur
Fermingarmærin Ágústa Björg
Kristjánsdóttir fermdist síðastlið-
inn sunnudag í Bústaðakirkju og
var þar með fyrsta stúlkan til að
fermast í þeirri sókn á þessu ári.
„Ég vaknaði klukkan 7 um morgun-
Kökumot
inn, klæddi mig í fermingarfötin
sem eru að mestu leyti úr versl-
uninni 17 og setti á mig fallegu
skartgripina mína. Þá fór ég í klipp-
ingu og hárgreiðslu og þaðan í Bú-
staðakirkju þar sem ég henti mér í
kyrtilinn.”
Ágústa Björg tjáir blaðamanni að
nokkur fermingarbörn hafi verið
ansi stressuð fyrir athöfnina en
presturinn hafi talað rólega við þau
og undirbúið fyrir stóru athöfnina.
„Athöfnin gekk mjög vel fyrir sig en
í hópmyndatöku að henni lokinni
var ég strax komin með harðsperrur
í kinnarnar því ég var búin að brosa
svo mikið.”
Eftir athöfnina þeystust fjöl-
skyldur fermingarbarna til þeirra;
föðmuðu, kysstu og fögnuðu gríð-
arlega ungmennunum sem voru
þar með komin í tölu fullorðinna.
„Ég fór til atvinnuljósmyndara eftir
messuna sem sagði ekkert nema:
„Hæ, hæ, já, horfðu á mig, hæ” og
smellti af. Það var dálítið sérstakt.
Þaðan lá leiðin heim til að undirbúa
veisluna sem hófst innan skamms.”
Ágústa Björg var með þar til gert
gjafaborð í veislu sinni þar sem
gestirnir röðuðu dýrindisgjöfum
á. „í veislunni hélt ég ræðu og bauð
fólk velkomið, síðan fengu gestirnir
yndislegan mat og partíið byrjaði.
Ég gekk á milli gesta og sá til þess
að allt væri í lagi hjá öllum og að
engum leiddist úti í horni.” Bestu
veitingarnar, að mati fermingar-
barnsins, voru jarðarberjaterta og
heimagerðar veitingar frá ömmu.
Undirbúningur fermingardags-
ins hófst í ágúst, þegar 8. bekkingar
byrjuðu í fermingarfræðslu. „Ferm-
ingin er auðvitað stór áfangi í lífinu
sem þarf að undirbúa vel og huga
að.” Á undirbúningstímabilinu fóru
tilvonandi fermingarbörn í fræðslu-
ferð í Vatnaskóg sem er mjög eftir-
minnileg í hugum þeirra. „Vatna-
skógarferðin stendur mjög upp úr,
en hún var alveg geðveik. Það var
ekkert smá gaman. Við höfðum
mikið frelsi og gátum gert allt sem
okkur langaði til. Við fórum í ýmsa
leiki, á kanó og auðvitað i kapelluna
á hverjum degi.”
Fermingarbörnum var gert að
fara í 7 messur fyrir ferminguna en
Ágústa Björg skellti sér í 10 stykki.
„Mér líður svo vel eftir messu, ég
róast einhvern veginn við það.” En
ætli fermingarbörn í dag séu mikið
Agústa Björg við
fermingarhlaðboröið
að hugsa um útlitið fyrir stóra dag-
inn? „Margar stelpur fara í strípur
í fyrsta skipti fyrir fermingardag-
inn. Sumir krakkar fara í ljós, en
ég vildi það nú alls ekki, ég vil
ekki gera sjálfri mér það.” Ágústa
hyggur að einhverjir séu að ferm-
ast vegna gjafanna sem eru í boði.
„Ég hef einhvern veginn aldrei verið
pakkasjúk, en ég fékk þó iYiYi frá
foreldrum mínum og systkinum
sem er aðalgræjan í dag og allt í
senn útvarp, vekjaraklukka og
iPod-standur.” Aðrar vinsælar
fermingargjafir eru iPodar, sjón-
vörp, útlandaferðir, ferðatölvur
og ferða-DVD. „Það var mjög dýrt
þema í ár í fermingargjöfum, enda
lifum við á tækniöldinni.”
Ágústa Björg segir að 8. bekkingar
í dag séu mikið fyrir að „chilla” í
Kringlunni, á MSN eða þá að blogga.
Af allri tækninni leiðir að tölvufíkn
er að verða alvarlegt vandamál,
sérstaklega meðal drengja. „Strák-
arnir hafa tekið upp stíl Gillzeneg-
gers og eru að breytast í rosalega
hnakka: ljósabrúnir með allskonar
bling, strípur og fullt af geli. Einn
ónefndur á meira að segja ljósabekk.”
Hún segir að ungmenni 8. bekkjar
séu ekki sérlega mikið fyrir að lesa
heimsbókmenntir, ef til vill einn og
einn, þar með talin hún sjálf.
Hin unga og efnilega fermingar-
stúlka Ágústa Björg á sér háleit fram-
tíðarplön. „Mig langar að verða
fornleifafræðingur, lögfræðingur
eða leikkona. Það besta við líf mitt
er þó sú góða fjölskylda og vinir
sem ég á.” Þegar sigið var á seinni
hluta fermingardagsins var Ágústa
Björg að vonum orðin dálítið þreytt.
En ánægð var hún þó með þennan
merkilega áfanga í lífi sínu, þrátt
fyrir miklar harðsperrur í kinnum
þar sem hún hafði brosað framan í
fólk í hálfan sólarhring.